Einföld lausn sérsniðin að kolefnismörkuðum

„Lausnin okkar er sér­sniðin að kolefn­is­mörk­uðum og mun veita inn­sýn inn í kolefn­is­verk­efni,“ segir Íris Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Orb. Langtíma mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins er að lausn þeirra verði notuð við skóg­ar­út­tektir um allan heim.

Íris Ólafsdóttir Eigendur Orb vilja leggja sitt af mörkum til umhverfismála.

Íris Ólafs­dóttir er fram­kvæmda­stjóri Orb, fyr­ir­tækis sem þróar hug­búnað sem byggir á tölvu­sjón og mælir þver­mál og hæð trjáa í skógum. „Lausnin okkar er sér­sniðin að kolefn­is­mörk­uðum og mun veita inn­sýn inn í kolefn­is­verk­efni,“ útskýrir Íris.

Hver mæl­ing er fram­kvæmd með appi sem safnar gögnum um trén og veitir síðan upp­lýs­ingar sem nýt­ast í kolefn­is­verk­efni. „Þessi gögn eru keyrð með loft­myndum til að reikna heildar við­ar­magn í skóg­inum og það er til dæmis notað til að áætla hvað skóg­ur­inn er búinn að binda mikið kolefni.“

Fram­kvæmda­stjór­inn greinir frá því að með gögn­unum sé ekki ein­ungis hægt að mæla rúm­mál trjáa heldur einnig öðl­ast inn­sýn inn í trjá­teg­undir. Markmið hennar með Orb er líka að geta, einn dag­inn, veitt upp­lýs­ingar um líf­fjöl­breytni. 

Nýstárlegri mælingar

Hug­myndin að Orb varð til árið 2020 þegar fram­leið­and­inn Apple gaf út iPhone síma með tækni­bún­að­inum LiDAR. Þannig gátu eig­endur sím­anna …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Töfrasprotar

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár