Íslensk heimili greiddu alls 15,9 milljarða króna af séreignarsparnaði sínum inn á íbúðalán á fyrstu átta mánuðum ársins 2023. Í ágústmánuði einum saman námu inngreiðslurnar 3,4 milljörðum króna, sem er það langmesta sem greitt hefur verið inn á íbúðalán með þessum hætti í stökum mánuði frá því að úrræðið var sett á laggirnar árið 2014. Fyrra metið, sett í mars á þessu ári, var 2,4 milljarðar króna. Alls hafa landsmenn ráðstafað um 146 milljörðum króna inn á íbúðalán sín með þessum hætti frá því að úrræðið tók gildi síðla árs 2014.
Þetta má lesa úr tölum sem Seðlabanki Íslands birti nýverið.
Þeir sem nýta sér séreignarlífeyrissparnað til að greiða niður íbúðalán sitt samkvæmt úrræðum sem stjórnvöld hafa innleitt á undanförnum árum fá tvöfaldan ávinning. Annars vegar vegna þess að stjórnvöld gefa …
Athugasemdir