Neitar að fljúga heim úr rannsóknarleiðangri á loftslagsneyð

Vís­inda­maður sem unnið hefur að lofts­lags­rann­sóknum á Salómons-eyjum í hálft ár neitar að fljúga heim til Þýska­lands. Hann ætlar þess í stað að fá far með flutn­inga­skipi, allt í þágu umhverf­is­ins. En yfir­mað­ur­inn er ekki par sáttur og hótar að reka hann.

Neitar að fljúga heim úr rannsóknarleiðangri á loftslagsneyð
Sökkvandi Salómons-eyjar eru að sökkva í sæ vegna hækk­unar yfir­borðs sjávar.

Ef þú verður ekki mættur við skrif­borðið þitt á mánu­dag þá missir þú starfið.“

Á þennan veg hljóð­uðu skila­boð sem þýski vís­inda­mað­ur­inn Gianluca Grimalda seg­ist hafa fengið frá yfir­manni sínum eftir að hafa til­kynnt að hann ætli að sigla heim úr rann­sókn­ar­leið­angri í Kyrra­haf­inu en ekki fljúga. Sem vissu­lega tekur mun lengri tíma. Að fá far með flutn­inga­skipi til Evrópu stóð alltaf til en veru­leg seinkun varð á heim­för og til­kynnti hann yfir­manni sínum hjá Kiel-stofn­un­inni í alþjóða­við­skiptum um þær með skömmum fyr­ir­vara. Og fékk væg­ast sagt litlar und­ir­tektir. Yfir­mað­ur­inn svar­aði honum á föstu­degi og eina leiðin til að kom­ast að skrif­borð­inu á mánu­degi hefði verið með flugi. En það kemur ekki til greina í huga vís­inda­manns­ins stað­fasta.

Grimalda hefur síð­asta hálfa árið stundað rann­sóknir á áhrifum alþjóða­væð­ingar og lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum á sam­fé­lög Salómons-eyja. Líkt og fleiri eyjar í Kyrra­hafi eru þær hægt og bít­andi að sökkva í sæ vegna hækk­unar yfir­borðs sjávar og eru auk þess orðnar mjög við­kvæmar fyrir nátt­úru­ham­förum á borð við felli­bylji. Hann kom þangað með sama hætti og hann stefnir á að ferð­ast til baka.

„Flug­ferðir eru hrað­asta aðferðin við að brenna jarð­efna­elds­neyti svo þau eru líka hrað­asta leið okkar í átt að ham­förum.“

Nú bíður Grimalda eftir flutn­inga­skip­inu í bænum Buka. Hann ætlar sér aðeins að ferð­ast á landi og á sjó til Þýska­lands – um 22 þús­und kíló­metra leið. Til að kom­ast heim ætlar hann að ferð­ast með flutn­inga­skipum, ferjum, lestum og rútum og mun ferða­lagið, að því er Grimalda hefur sjálfur sagt, taka tvo mán­uði. Það er auð­vitað mun lengri tími en tekur að fljúga til Þýska­lands en Grimalda vill minnka kolefn­is­spor sitt og hefur reiknað út að með því að ferð­ast með þessum hætti muni hann losa 3,6 færri tonn af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum en með því að fljúga.

Valdi rétt

„Ég hef skrifað for­seta stofn­un­ar­innar sem ég vinn hjá og sagt honum að ég muni ekki mæta í dag [mánu­dag] og að ég ætli að ferð­ast til baka með skipi og á landi,“ sagði Grimalda um áform sín í færslum á sam­fé­lags­miðl­inum X. Hann segir síð­ustu daga hafa verið erf­iða þar sem hann hafi alls ekki átt von á þeim við­brögðum sem hann fékk frá yfir­mönnum sínum. „Ég tel mig samt hafa valið rétt,“ segir hann og heldur áfram: „Flug­ferðir eru hrað­asta aðferðin við að brenna jarð­efna­elds­neyti svo þau eru líka hrað­asta leið okkar í átt að ham­förum.“ Þetta sé ástæðan fyrir því að hann ætli sér ekki að fljúga aftur.  

Hjálp­ar­kallDickson Panakitasi Mua, ráð­herra umhverf­is­mála á Salómons-eyjum hélt erindi á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í Egypta­landi í fyrra. Við erum að sökkva, sagði hann.

Í sex mán­uði hefur Grimalda farið um Bougainville, stærstu eyju Salómons-eyja, til að rann­saka hvaða áhrif lofts­lags­neyðin er farin að hafa á eyja­skeggja.

Salómon-eyjar eru það ríki ver­aldar sem er hvað við­kvæm­ast fyrir áhrifum hlýn­andi lofts­lags. Í rann­sóknum sínum komst Grimalda m.a. að því að íbúar heilu þorp­anna hafa orðið að flytja heim­ili sín vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs. Eyja­skeggar eru að reyna sitt til að draga úr áhrif­unum, m.a. með því að planta leiru­við (e. mang­roves) við strendur en slíkar plöntur eru nátt­úru­legar flóð­varnir á mörgum stöðum í heim­inum. Þær mega sín þó lít­ils gegn hinum hröðu breyt­ingum sem eru að verða á lofts­lag­inu.

Grimalda hélt fjölda fyr­ir­lestra í tengslum við vinnu sína og minnti eyja­skeggja m.a. á að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í hinum vest­ræna heimi væri ein helsta ástæða þess að lofts­lagið væri að breyt­ast. Við honum blasti hans eigin tví­skinn­ungur og hann hóf að lofa þeim sem á hann hlýddu að minnka eigið kolefn­is­spor, m.a. með því að fljúga ekki heim til Þýska­lands. Þannig vildi hann sýna fólk­inu þann vilja sinn í verki.

 Vill ekki vera svindlari

„Oft eru hvítir menn kall­aðir hér giaman sem þýðir lyg­ari eða svindl­ari á tungu heima­manna,“ skrif­aði Grimalda í ítar­legri færslu sinni. „Ég vil ekki vera giaman.“

Hann við­ur­kennir að hann hafi ekki sagt yfir­mönnum sínum frá breyttum ferða­plönum sínum með löngum fyr­ir­vara. Í raun hafi starfi hans á eyj­unum átt að ljúka í júlí og hann átti að vera mættur við skrif­borðið í Þýska­landi um miðjan sept­em­ber. Sagan verður enn snún­ari við útskýr­ingar hans á töf­unum. Hann seg­ist hafa verið hnepptur í hald glæpa­manna sem ætl­uðu að stela öllu hans haf­urtaski. Helsta áskor­unin hafi þó verið að fá eyja­skeggja til að opna sig, tala við „hvíta mann­inn“ og treysta honum. Það hafi reynst tíma­frekara en hann ráð­gerði.

Í umfjöllun breska blaðs­ins The Guardian um málið er haft eftir stuðn­ings­mönnum Grimalda að yfir­menn hans virð­ist vera að leita hefnda vegna þátt­töku hans í lofts­lags­mót­mælum. Julia Stein­berger, pró­fessor í félags­legum áhrifum lofts­lags­breyt­inga við Háskól­ann í Lausanne, segir það „óvenju­legt“ að rann­sókn­ar­stofnun hóti að reka vís­inda­mann fyrir að vinna sín störf af alúð og fyrir að bregð­ast við því sem hann komst að með því að fljúga ekki til baka. Stein­berger er einn aðal­höf­undur lofts­lags­skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Við höfum ekki mik­inn tíma til stefnu,“ sagði hún m.a. þegar skýrsla árs­ins 2022 var kynnt.  Hún telur að Kiel-stofn­unin sé að refsa Grimalda fyrir að taka þátt í mót­mælum vís­inda­manna, hóps fólks sem starfar að marg­vís­legum rann­sóknum á umhverf­inu og áhrifum lofts­lags­breyt­inga og telja yfir­völd ekki leggja við hlustir.

Fleiri þekktir vís­inda­menn á þessu sviði hafa lýst yfir stuðn­ingi við Grimalda og sagt að ákvörðun hans að létta sitt kolefn­is­spor með þessum hætti lýsi kjarki og sé til fyr­ir­myndar.

The Guardian leit­aði við­bragða Kiel-stofn­un­ar­innar við ásök­unum Grimalda. Tals­maður hennar sagði að stofn­unin tjáði sig ekki um ein­stök starfs­manna­mál en bætti við: „Í vinnu­ferðum þá styður stofn­unin starfs­menn sína í því að ferð­ast með lofts­lagsvænum hætti.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár