120 herbergja hótel við Skógarböðin þarf ekki í umhverfismat

Fimm hæða hótel sem áformað er að reisa við hlið Skógar­baðanna í Eyja­fjarðar­sveit þarf ekki að undir­gangast umhverfismat samkvæmt ákvörðun Skipulags­stofnunar. Byggingar­lóðin er skógi vaxin og því þarf að færa merk tré og gróður­setja önnur í stað þeirra sem verða felld.

Inni í brekku
Inni í brekku Hótelið á að byggja á eyri við Eyja­fjörð og nokkuð inn í brekku. Tölvu­teikn­ingin er gerð af Basalt Arki­tektum. Mynd: Hótel Gjá

Hótel Gjá ehf. áformar að byggja allt að 120 herbergja hótel á fimm hæðum auk kjallara á jörðinni Ytri-Varðgjá við hlið Skógar­baðanna við Eyjafjörð. Bílastæði, aðkomu­vegur og ný laug verða einnig hluti af framkvæmdunum. Hótelið á að byggja á eyri og að hluta inni í brekku. Það verður að líkindum um 23 metrar á hæð og umvafið skógi á þrjá vegu.

Hótel Gjá ehf., sem er í eigu sömu aðila og eiga Skógar­böðin, kynnti áformin fyrir Skipulags­stofnun sem leitaði umsagnar ýmissa stofnana sem komust allar að því að þrátt fyrir að umhverfis­áhrif hótelsins verði einhver, m.a. á fuglalíf, þyrfti framkvæmdin ekki að undir­gangast mat á umhverfis­áhrifum. Tók Skipulags­stofnun undir þá niður­stöðu og telur framkvæmdina ekki líklega til að hafa í för með sér veruleg og óafturkræf áhrif á umhverfið.

Er það mat Skipulags­stofnunar að um sé að ræða umfangs­mikla mann­virkjagerð sem jafnframt sé við jaðar svæðis á náttúru­minjaskrá. Þrátt fyrir verndar­stöðu Óshólma Eyja­fjarðarár telur hún svæðið ekki viðkvæmt enda sé það töluvert raskað nú þegar af land­fyllingu og vega­framkvæmdum.

Umvafið skógiSkóg­ar­böðin draga nafn sitt af Vaðla­skógi sem þau eru inn í og hið fyr­ir­hug­aða hótel, sem merkt er með gulum kassa til hægri á mynd­inni, verður innan skóg­ar­ins sömu­leiðis.

Samkvæmt gögnum Hótels Gjár er auk gistiherbergjanna 120 gert ráð fyrir veitinga­stað, bar, fundar­herbergjum, heilsu­lind og líkamsræktarstöð í byggingunni sem yrði að hámarki 9.000 fermetrar að stærð. Þak hótelsins verður ýmist flatt eða með lágmarks halla og það og veggir hafðir í náttúru­legum tónum og klæddir timbri til að lágmarka sýnileika. „Hótelið verður staðsett þannig að útsýni úr herbergjum þess verður til vesturs og suðurs að Akureyri og inn Eyjafjörð,“ segir í gögnum framkvæmda­aðila. „Það er talið eitt helsta aðdráttarafl hótelsins ásamt því að byggja það inni í skóginum og að hafa baðstaðinn Skóga­böðin í næsta nágrenni.“

 Lögð verði sérstök áhersla á að mannvirki falli sem best að landslagi og raski á skógi verði haldið í lágmarki.

Stækka þarf landfyllingu og leggja veg yfir lón

Vinnu­vegur að fyrir­huguðu hóteli verður frá Eyja­fjarðar­braut eystri og þverar lón á fyllingu á milli Eyja­fjarðar­brautar eystri og fjöru­borðsins. Hótelið verður innan núverandi land­fyllingar en þörf verður á viðbótar land­fyllingu vegna bílastæða og aðkomu­svæðis vestan hótels. Innan lóðar hótels er gert ráð fyrir bíla­stæðum 20-40 bíla­stæðum en í bíla­geymslu í kjallara hótelsins yrðu 54 stæði til viðbótar.

Við hótelið er gert ráð fyrir heitri laug frá laug sem þegar er við Skógar­böðin Laugin verður um 100 metrar að lengd.

Á eyr­inniUpp­dráttur af svæð­inu úr deiliskipu­lags­til­lögu svæð­is­ins.

Innan byggingareits hótelsins er Vaðla­skógur á um 0,2 hektara svæði og þarf að ryðja þann skóg. Vegna laugar þarf einnig að ryðja skóg á um 8 metra breiðu og 100 metra löngu belti. Framkvæmda­aðilar segjast þegar hafa átt samráð við Skógræktar­félag Eyfirðinga vegna þessa rasks. „Þar sem því er við komið munu merk tré sem þurfa að víkja af svæðinu verða tekin upp og þeim plantað á öðrum stað í skóginum. Sótt verður um fellingar­leyfi skógar til Skóg­ræktarinnar. Þær mótvægis­aðgerðir verða að skógi verður plantað í land Ytri-Varðgjár í jafn stórt svæði og þarf að ryðja vegna hótels og tengdra framkvæmda.“

Með uppbyggingu hótels mun atvinnulíf á svæðinu eflast þar sem mörg störf verða til á hótelinu eftir opnun þess, segir í gögnum Hótel Gjár um verkefnið. „Vegna þessa starfa má gera ráð fyrir að áhrif á íbúaþróun í sveitar­félaginu verði jákvæð þar sem gera má ráð fyrir að starfs­fólk hótelsins muni í einhverjum tilfellum sækjast eftir því að setjast að í sveitar­félaginu. Gera má ráð fyrir því að einhver afleidd störf í þjónustu muni skapast í Eyja­fjarðar­sveit auk þess sem frekari grund­völlur er fyrir aukinni þjónustu í sveitar­félaginu.“

Vel tekið

Skógar­böðin í Eyja­fjarðar­sveit voru opnuð í fyrravor. Hagnaður á fyrsta rekstrarári var um 100 milljónir króna. Stofn­endur og aðal­eigendur Skógar­baðanna eru hjónin Sigríður María Hammer og Finnur Aðalbjörnsson, en næst­stærsti hluthafi er félagið Bjarnason Holding ehf., sem er í eigu Birkis Bjarna­sonar, atvinnu­manns í knatt­spyrnu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár