„Stundum koma bara góð tilboð sem maður stekkur á“

Þótt til­finn­ing­arnar hafi verið blendnar þegar Sævar Krist­jáns­son ákvað að selja fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Hagblikk segir hann að með því losni hann líka við það sem er leið­in­legt í rekstr­inum og geti ein­beitt sér að því sem hann er bestur í.

„Stundum koma bara góð tilboð sem maður stekkur á“
Lítil breyt­ing Sævar vinnur enn hjá Hagblikk og sér fyrir sér að gera það næstu árin. Mynd: Hagblikk

Sævar Krist­jáns­son greiddi á síð­asta ári tæpar 152 millj­ónir króna í skatta, þar af um 145 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt. Þær skatt­greiðslur fleyta Sævari í 15. sæti yfir þau sem hæsta greiddu skatt­ana á Íslandi í fyrra. Það dugar Sævari þó ekki nema til að kom­ast í þriðja sætið í röð skatta­kónga í Kópavogi.

Sem hljóta að vera von­brigði, ekki satt?

„Jú, auð­vitað er það,“ svarar Sævar hlæj­andi.

Tekjur Sævars, sem námu um 679 millj­ónum á síð­asta ári, eru að stærstum hluta til­komnar vegna sölu á fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Hag­blikki, sem Sævar seldi á síð­asta ári til fyr­ir­tæk­is­ins Fagkaupa.

„Það voru auð­vitað blendnar til­finn­ingar eins og þú getur ímyndað þér“

Faðir Sævars, Kristján Ingi­mund­ar­son, var einn stofn­enda Hag­blikks en fyr­ir­tækið var stofnað árið 1986 af þremur gam­al­grónum blikk­smiðjum, gagn­gert í þeim til­gangi að bjóða í smíði …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár