Bumbuboltakarlar sleppa með skrekkinn en ekki brjóstapúðakonur

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segir fáránlegt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostnaði við að láta fjarlægja brjósta­púða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikjast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjarlægja brjósta­púða kostar mörg hundruð þúsund krónur og er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands.

Þingmaður
Þing­maður „Miðaldra körlum sem fót­brotna í bumbu­bolta er ekki refsað fyrir það með því að þurfa að bera kostn­að­inn sjálfir. Af hverju ætti annað að gilda um konur sem veikj­ast, þó að það sé út af ein­hverju sem þær völdu sjálfar að gera?” spyr Andrés Ingi. Mynd: Davíð Þór

Þingmaður Pírata telur að konur með brjóstapúða­veiki ættu að fá aðgerð til þess að fjarlægja púðana niður­greidda af Sjúkra­tryggingum Íslands. Hann segir að þó að brjósta­stækkun sé valkvæð aðgerð þá sé ekki hægt að tala um aðgerð til þess að fjarlægja púða sem eru að valda veikindum sem valkvæða. 

Heimildin fjallaði í síðasta tölublaði um brjóstapúða­veiki, veikindi sem brjótast út með ólíkum hætti en geta orðið mjög alvarleg. Brjóstapúða­veiki einkennist oft af þreytu, skertu úthaldi, heilaþoku og liðverkjum.

Erlendar rann­sóknir benda til þess að þrjú til fimm prósent þeirra sem fá sér brjósta­púða fái sömuleiðis brjóstapúða­veiki en sumar rann­sóknir segja að hlut­fallið sé hærra, allt að 10%.

Þrjár konur sem rekja veikindi sín til brjósta­púða og Heimildin ræddi við höfðu ekki efni á að fara í aðgerðina. Tvær þeirra fóru samt og tóku lán fyrir henni. Sú þriðja, Guðrún Eva Jóns­dóttir, er ekki í stöðu til …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Um brjóst kvenna gildir viðhorfið “valkvæð fegrunaraðgerð”. Konur sem þjást af langvarandi verkjum vegna þungra brjósta fá brjóstaminnkun ekki niðurgreidda og fara aftast á biðlista hjá Landsspítslanum. Þær þurfa að greiða fyrir aðgerð og uppbyggingu. Skiptir ekki máli hvort brjóstastærð er erfðir, vegna brjóstagjafar og meðgöngu eða vegna offitu. Niðurgreitt ef mjólkurkirtlar sem fjarlægðir eru vegi a.m.k. 500 gr. í hvoru brjósti. Ekki er tekið tillit til þyngdar húðar sem vegur þyngra en kirtlarnir. Hrykkskekja og slit í hrygg er ekki heilsufarsvsndamál ef manneskja er kona.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Bera læknar enga ábyrgð á gölluðum brjóstapúðum eða misheppnuðum aðgerðum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Brjóstapúðaveiki

ViðtalBrjóstapúðaveiki

Upplýsa ætti konur á leið í brjósta­stækkun um möguleg veikindi

Nokkur fjöldi kvenna lætur fjarlægja brjósta­púða árlega vegna veikinda sem talin eru tengjast þeim. Ekki er hægt að segja með vissu hversu margar þær eru því lýta­læknar hafa, á grund­velli persónu­verndar­sjónarmiða og trúnaðar, neitað að veita landlækni upplýsingar sem gætu leitt það í ljós. Frumvarp sem á að styrkja heimild land­læknis til þess að krefjast upplýs­ing­anna á að fara fyrir haustþing.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Nýtt líf eftir að 500 milli­lítra sílíkon­púðar voru fjar­lægðir

Skömmu eftir að Klara Jenný H. Arnbjörns­dóttir ljósmóðir gekkst undir ristilnám kom í ljós að sílíkon­púðar í brjóstum hennar láku. Hún lét setja púðana í sig árið 2006, þegar hún var 19 ára, og að eigin sögn með lítið sjálfs­traust. Hún hefur glímt við veikindi frá árinu 2008. Nú hafa púðarnir verið fjar­lægðir og Klara Jenný segist hafa öðlast nýtt líf.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Veik kona ætti að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp

Konur sem rekja alvarleg veikindi til brjósta­púða hafa þurft að taka lán fyrir aðgerð þar sem púðarnir eru fjar­lægðir. Aðgerðin, sem kostar mörg hundruð þúsund krónur, er ekki niður­greidd af Sjúkra­tryggingum Íslands. Ónæmis­fræðingur telur að ekki ætti að láta konur gjalda þeirrar ákvörðunar að hafa farið í brjósta­stækkun, og segir að veikar konur ættu að eiga skilyrðis­lausan rétt á hjálp.
ViðtalBrjóstapúðaveiki

Lá í dái í fjórar vikur

Guðrún Eva Jóns­dóttir fékk andnauðar­heilkenni og féll í dá í fjórar vikur síðasta sumar. Undanfari veikindanna voru síend­ur­teknar lungna­bólgur og sveppur sem fannst í lunga hennar árið 2020. Orsök veikinda hennar er á huldu en sjálf telur hún síli­kon­púð­unum um að kenna. Hún á ekki fyrir aðgerð til þess að láta fjarlægja þá. Sjúkra­tryggingar Íslands niður­greiða ekki aðgerðina. Hún kostar mörg hundruð þúsund.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár