Senuþjófar sumarsins

Fyrir utan hið andlausa plast­ævintýri Barbie eru stóru sumar­smellirnir frá Hollywood að venju flestir með karla í aðal­hlutverkum. En það kemur ekki í veg fyrir að nokkur kjarna­kvendi steli senunni.

Helena Shaw
Helena Shaw Guð­dóttir Indy.

Fimmta Indiana Jones-myndin reynist til dæmis prýðileg skemmtun – enda er Phoebe Waller-Bridge stór­skemmtileg þar sem harðhausinn Helena Shaw, guðdóttir Indy, sem hann kallar ávallt Wombat. Persónan er eins og beint upp úr orðheppnum screwball-myndum fimmta áratugarins og Waller-Bridge fer ótrúlega vel að leika ólíkindatól og hörkutól með passlega sveigjanlegan siðferðis­kompás. Svo horfir maður bara á Fleabag-þættina hennar aftur, á meðan maður lætur sig dreyma um að hún fái sína eigin hasar­seríu, enda er myndin í raun ekkert síður um hana en Dr. Jones.

Mission: Impossible-myndirnar hafa alltaf þurft að reiða sig á öflugar mótleik­konur til að draga fram alvöru tilfinningar úr spýtu­kallinum Tom Cruise – og tókst það best í þeirri fimmtu, þar sem hin sænska Rebecca Ferguson labbar beint inn úr Casablanca sem hasar­útgáfan af Ilsu Lund, enda nefnd eftir henni – Ilsa Faust. Hún er því miður lítið í nýjustu myndinni, en það er myndinni til happs að handbendi skúrksins er Paris, þögult morð­kvendi sem Pom Klementieff leikur og skapar eftir­minnilega persónu með líkams­tjáningu, dans­kenndum bardaga­hreyfingum og svip­brigðum – það er nánast eins og hún hafi villst úr þögulli mynd og stelur þessari splunkunýju talmynd með húð og hári.

Kjósa
-3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár