Froðudiskó og feikileg mengun

Stærsta skemmtiferða­skip heims er það „umhverf­is­væn­asta” hingað til. Segir skipa­félagið. Með því að nota fljótandi jarðgas sem aðal­uppsprettu eldsneytis sé losun koldíoxíðs 30-40 prósentum minni en af dísilolíu. Segir skipa­félagið. Ekki tákn heims­hafanna, líkt og vísað er til í nafni þess, heldur mengandi, kapítal­ískur og blautur draumur. Segja gagn­rýnendur.

Það stærsta
Það stærsta Tölvu­teikn­ingar af Icon of the Seas hafa kannski kitlað ferða­gleði ein­hverra en hlát­ur­taugar ann­arra.

Í sömu viku og fréttir bárust af því að skemmtiferða­skip væru helsti mengunar­valdur Evrópu var eitt slíkt, splunkunýtt og sælgætis­blátt að lit, sjósett við strendur Finnlands þar sem það var smíðað fyrir bandaríska eigendur sína. Þetta var þó ekki formleg jómfrúar­ferð fleysins, hún verður ekki farin fyrr en í janúar á næsta ári er það leggur úr höfn frá Miami í Flórída í ferð um Karabíska hafið. Með um 8.000 manns innanborðs, álíka margt fólk og skráð er til heimilis á Akranesi og í nærsveitum.

Kynn­inginEngu hefur verið til sparað við kynn­ingu á Icon of the Seas.

Allt frá því Freedom of the Seas var hleypt af stokkunum árið 2006 hefur bandaríska lystiskipa­félagið Royal Caribbean haft í flota sínum stærstu skemmtiferða­skip heims­hafanna. Freedom of the Seas er þó smábátur í saman­burði við þau sem á eftir komu og þá sérstak­lega það allra …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár