Vill að unga fólkið taki við keflinu í hamfarafréttunum

Fréttir af eld­gos­inu sem hófst á mánu­dag hafa verið fyr­ir­ferð­ar­miklar í vik­unni. Fyrir Stöð 2 stendur frétta­mað­ur­inn Kristján Már Unn­ars­son ham­fara­vakt­ina og birt­ist áhorf­endum, oftar en ekki íklæddur gulu vesti á vett­vangi, með nýj­ustu tíð­indi af hraun­flæði og gasmengun. Hann sagði Heim­ild­inni allt af létta um starf frétta­manns í eld­gosa­tíð.

Vill að unga fólkið taki við keflinu í hamfarafréttunum
KMU Frétta­hauk­ur­inn Kristján Már Unn­ars­son var mættur á vett­vang á undan flestum öðrum á mánu­dag, er gos hófst við Litla-Hrút. Mynd: Skjáskot/Vísir

Athygli vakti hve fljótt Kristján Már Unn­ars­son og töku­maður Stöðvar 2 voru komnir að gos­s­töðv­unum eftir að eld­gos hófst í vik­unni. Myndbrot af Krist­jáni, að benda á að sjálf Land­helg­is­gæslan hefði verið um tutt­ugu mín­útum á eftir fréttateym­inu á stað­inn, hefur vakið nokkra kátínu meðal net­verja. 

Hann segir að dag­ana í aðdrag­anda goss­ins hafi verið rætt hvernig frétta­stofan ætl­aði að bregð­ast við og menn hafi séð að það væri ef til vill gott að hafa aðgang að þyrlu. „Það kom sér svo sann­ar­lega vel. Við hefðum ekki getað komið þessu í kvöld­frétt­irnar almenni­lega nema af því að við vorum búin að ræða við þá hjá Norð­ur­flugi um að við fengjum að fara með fyrstu þyrlu. Það var mikil heppni,“ segir Kristján Már og bætir því við að þeir hafi kom­ist í loftið og á stað­inn áður en til­kynn­ing barst um að búið væri að loka fyrir flug­um­ferð um …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár