Stærsti eigandi í íslensku sjókvíaeldi ætlaði að flytja til Sviss en hætti við

Gustav Magnar Witzøe, stærsti eigandi laxeldis­fyrir­tækisins Salmar sem á meirihluta í Arnarlaxi á Bíldudal, sagði frá því í norska ríkis­útvarpinu af hverju hann hefði valið að vera búsettur áfram í Noregi. Fjöldi norskra auðmanna hafa flutt til Sviss á síðastliðnum mánuðum en Witzøe ákvað að fylgja ekki þeirra fordæmi.

Ákvað að vera trúr sjálfum sér
Ákvað að vera trúr sjálfum sér Stærsti eig­andi Salmar AS sem er stærsti hlut­hafi Arnarlax, Gustav Magnar Witzoe, ákvað að flytja ekki til Sviss, líkt og svo margir norskir auð­menn hafa gert á liðnu ári.

Gustav Magnar Witzøe, stærsti hluthafi norska laxeldis­fyrir­tækisins Salmar AS sem er meirihluta­eigandi Arnarlax á Bíldudal, ætlaði að flytja til Sviss af skatta­legum ástæðum í fyrra en hætti við. Frá þessu greinir Witzøe í þætti í norska ríkis­útvarpinu, svokölluðu Sumartali þar sem þekktir Norðmenn segja sögu sína. Hann hefur síðastliðin ár verið efstur eða ofarlega á listanum yfir ríkustu menn Noregs. „Ég hef aldrei komið til Sviss, hvorki til Bern eða Luzerne. En í fyrra­haust var ég við það að flytja þangað,“ segir hann. 

Faðir hans, Gustav Witzøe eldri, er stofnandi Salmar og var hann stærsti hlut­hafinn þar til hann færði hluta­bréfin yfir á son sinn þegar hann var 13 ára gamall, árið 2006. Witzøe eldri settist nýlega í stjórn Arnarlax á Íslandi. Fréttir um þá Witzøe-feðga hafa vakið athygli hér á landi síðastliðin ár þar sem þeir eru stærstu hags­munaðilar í sjóa­kvíaeldinu á Íslandi …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár