Óli Björn segir Svandísi hafa gert atlögu að stjórnarsamsamstarfinu

Þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir mat­væla­ráð­herra hafa kastað blautri tusku í and­lit þing­manna sam­starfs­flokka og að það sé „póli­tískur barna­skapur að halda að slíkt hafi ekki áhrif á sam­starfið innan rík­is­stjórn­ar­innar.“

Óli Björn segir Svandísi hafa gert atlögu að stjórnarsamsamstarfinu
Gagnrýni Óli Björn gagn­rýnir ekki ein­ungis afstöðu Vinstri grænna til hval­veiða í grein­inni heldur líka afstöðu sam­starfs­flokks­ins í meðal ann­ars orku- og útlend­inga­málum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Mat­væla­ráð­herra hefur gert atlögu að sam­starfi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Og þar með veikt rík­is­stjórn­ina og grafið undan mögu­leikum hennar til að leysa erfið verk­efni á kom­andi mán­uðum.“

Þetta skrifar Óli Björn Kárason, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Þar segir hann að sterk og skýr rök hafi verið sett fram um að umræddur ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, hafi gengið gegn lögum með ákvörðun um að fresta hval­veiðum. „Ekki verður séð að ráð­herr­ann hafi sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni né gætt með­al­hófs – fylgt sann­gjarnri og hóf­samri stjórn­sýslu. Gengið er þvert á stjórn­ar­skrár­varin atvinnu­rétt­indi og í engu hugað að þeim mikla fjár­hags­lega skaða sem ákvörð­unin veldur um 150 launa­mönnum og fjöl­skyldum þeirra. And­mæla­réttur er eng­inn og fyr­ir­var­inn nokkrir klukku­tímar.“

Óli Björn segir Svandísi hafa kastað blautri tusku í and­lit allra þing­manna sam­starfs­flokka rík­is­stjórn­ar­innar. „Það er póli­tískur barna­skapur að halda að slíkt hafi ekki áhrif á sam­starfið innan rík­is­stjórn­ar­innar. Eitt er að minnsta kosti víst: Traust milli mat­væla­ráð­herra og stjórn­ar­þing­manna er lítið og það mun hafa áhrif á sam­starf þeirra á kom­andi mán­uðum.“

Fram­ganga Svan­dísar sé vatn á myllu þeirra sem efast hafi um rétt­mæti þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn haldi áfram sam­starfi við flokk sem sé lengst til vinstri. „Flokk sem fagnar þegar ekki er hægt að nýta sjálf­bærar orku­auð­lindir, flokk sem ekki er til­bú­inn til að horfast í augu við vanda vegna flótta­manna, flokk sem telur betra að auka álögur á fyr­ir­tæki og launa­fólk en að nýta sam­eig­in­lega fjár­muni betur, flokk sem er sann­færður um að biðraðir séu betri en að nýta einka­fram­takið í heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Útilokaði ekki áhrif á samstarfið

Fyrir rúmri viku sagð­ist Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vera ósáttur við hval­veiði­bannið sem Svandís setti á degi áður en ver­tíð árs­ins átti að hefj­ast á grund­velli dýra­vel­ferð­ar­sjón­ar­miða. Það gerði hann í þætt­inum Pall­borð­inu á Vísi og bætti við að flokkur sinn hefði sent út þau skýru skila­boð að end­ur­skoða ætti ákvörðun Svan­dísar. „Ég hef á til­finn­ing­unni að þetta snú­ist ekki bara um aðferða­fræð­ina við veið­arnar, ég hef á til­finn­ing­unni að þetta snú­ist um að vera á móti hval­veiðum.“

Bjarni bætti við að hann úti­lok­aði ekki að málið gæti haft áhrif á fram­hald rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, sem var gestur í sama þætti, sagð­ist telja að ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur hafi verið rétt og styður hana.

Könnun Maskínu sem birt var um miðjan síð­asta mánuð sýna að meiri­hluti þjóð­ar­innar er and­vígur hval­veiðum, eða 51 pró­sent, á meðan að 29 pró­sent er hlynnt þeim. And­staðan hefur auk­ist á und­an­förnum árum. 

Óánægja með stjórnina aldrei verið meiri

Hin harða gagn­rýni Óla Björns, sem Morg­un­blaðið full­yrðir í morgun að sé ekki sett fram án þess að hann hafi ráð­fært sig við Bjarna Bene­dikts­son fyrst, kemur á tíma þar sem rík­is­stjórn­ar­sam­starfið stendur veikt. 

Í könnun sem Maskína birti í síð­ustu viku kom fram að ein­ungis 18 pró­sent kjós­enda væru mjög ánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar en 54 pró­sent óánægður. 

Í könnun sem Gallup birti í gær kom fram að 35 pró­sent lands­manna styðja sitj­andi rík­is­stjórn, Það er minnsti stuðn­ingur sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum  fyr­ir­tæk­is­ins frá því að hún sett­ist að völdum haustið 2017. 

Samkvæmt könnun Gallup sögð­ust 35,7 pró­sent lands­manna ætla að kjósa stjórn­ar­flokk­anna. Þeir fengu 54,3 í síð­ustu kosn­ingum, sem fóru fram fyrir minna en tveimur árum síðan. Þeir hafa því tapað sam­tals 18,6 pró­sentu­stigum af fylgi, eða rúm­lega þriðj­ungi þess stuðn­ings sem þeir nutu í sept­em­ber 2021. Rík­is­stjórnin væri því kol­fallin ef kosið yrði í dag, og nið­ur­stöð­urnar væru í takti við könn­un­ina. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn hafa tapað um helm­ingi síns fylgis en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn minna.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Ég fagna því hvernig Svandís lét yfirráðherra Sjálfstæðisflokksins vita um gildandi landslög

    Það er gott að loksins að einn ráðherra VG sem hefur sýnt af sér eðlilegt lífsmark.

    Ég skil einnig hvers vegna þessi sviphreini og fagri Óli Björn er svona viðkvæmur fyrir því hvaladráparanum er sýnt hvernig á að taka á þeim sem virðist fara á svig lög í landinu árum saman án þess að nokkuð sé gert í málinu.

    Árum saman hefur verið um það rætt að ólöglegt sé að vinna að slátrun spendýra undir berum og vinnslu á kjöti af þeim undir berum himni.

    Þar sem fuglar himins fljúga gjarnan yfir og gefa skít í vinnubrögðin á matvælum fyrir fólk sem eru valda-flokkunum þóknanleg.

    Þá hefur einnig verið lengi rætt um hvernig farið er að drápum á þessum dýrum, þar sem þau verða gjarnan að líða miklar og langvinnar kvalir vegna drápsaðferða þegar þau eru skotin með ófullkomnum skutlum .

    En það hefur fram að þessu skort á sannanir fyrir ómennskunni. Á síðustu vertíð varð dráparinn að sætta sig við, að um borð í veiðiskipunum væru eftirlitsmenn sem tóku myndir af ófögnuðunum.

    Nú lágu sannanir fyrir. Þetta vissi útgerðarmaðurinn auð-vitað allt um og hafði í byrjun árs fengið formlega vitn-esgju um.

    Nú yrði að finna viðurkennd drápstól. A.m.k. var nú skyndilega reynt að finna mannúðlegri aðferðir við drápin. En sú leit hefur enn ekki tekist.

    Nú hefur Óli væntanlega áhyggjur af því ásamt öðrum þingmönnum gömlu valdaflokkana um að það komi eitthvað minna í sjóði flokkana en áður þar sem þeir hefðu brugðist sjálfu yfirvaldinu.

    Það er vitað að það eru fjölmargar færar leiðir til að fara framhá reglunum um styrki til gömlu valdaflokkana. Bara svo það sé sagt.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þessi Nasista blus Óla Björns er leiðinda bull mans sem ekki neitt markvert liggur eftir og greinar hans i Mogganum döpur lesning. Það besta sem gæti hent þessa þjoð er að þessi stjorn fari FRA STRAX, Svandis er Gull molin i þessari Rikistjorn sem er FALIN, Islandsbanka Malið er til SKAMMAR Raðherra Fjarmala er þar Sökudolkur no 1.
    I Bretlandi þar sem Lyðræðið er virkt væri Bjarni Fokin ur stjorn Fjarmala
    I Bretlandi er Vagga Lyðræðinsins. A Islandi Ræður Spilling malum og sökudoldar leystir ut með PENINGAGJÖFUM HAUM.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ríkisstjórnin er sprungin, það er augljós staðreynd því er bara haldið leyndu líkt og hver ber ábyrgðina á sölu-RÁNI Íslandsbanka, sölu-RÁNI Lindarhvols, hverjir hindra birtingu á rannsókn ÍL-sjóðsins og ÍE-eignum almennings í Seðlabankanum.
    Flýtur á meðan ekki sekkur ÁSTAND er í myrkrakompunni og hr. Hégómi ráðleggur Katrínu að segja það ríki traust á milli foringjanna. Hvað varðar okkur um það, hvaða máli skiptir það fyrir okkur almenning ? Þið hafið fyrirgert öllu trausti hjá almenningi, þið hafið misst lögmætið að sitja áfram í ráðherrastólunum og eigið að skila LYKLINUM af stjórnarráðinu tafarlaust og boða til kosninga strax.
    4
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Er Óli Björn þarna að lýsa þreytu sjálfstæðismanna. Kanski væri best að efna til nýrra kosninga og gefa sjálfstæðisflokknum frí í nokkur kjörtímabil.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár