Mynd: Heiða Helgadóttir

Stuðningur við ríkisstjórnina á svipuðum slóðum og hjá stjórnum sem falla

Sam­fylk­ingin mælist áfram langstærsti flokkur lands­ins en vin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar hafa aldrei verið minni. Framsókn og Vinstri græn hafa tapað um helm­ingi fylgis síns en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn minna. Mið­flokk­ur­inn er á sigl­ingu og hefur ekki mælst með meira fylgi á þessu kjör­tíma­bili.

Um 35 pró­sent lands­manna styðja sitj­andi rík­is­stjórn, sam­kvæmt nýjasta þjóð­ar­púlsi Gallup. Það er minnsti stuðn­ingur sem rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, skipuð Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, hefur nokkru sinni mælst með frá því að hún sett­ist að völdum haustið 2017. 

Í aðdrag­anda þess hafði verið kosið tví­vegis á Íslandi á einu ári. Eftir fyrri kosn­ing­arnar, sem áttu rætur sínar að rekja til birt­ingu Panama-skjal­anna og veru ráða­manna sem áttu aflands­fé­lög í þeim, tók sögu­lega langan tíma að mynda nýja rík­is­stjórn. Það tókst raunar ekki fyrr en í jan­úar 2017, þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar var mynduð. Sú hafði eins manns meiri­hluta, var með minni­hluta atkvæða á bak­við sig og varð fljótt ein óvin­sælasta rík­is­stjórn Íslands­sög­unnar. Í ágúst 2017, skömmu áður en sú rík­is­stjórn sprakk vegna upp­reist æru-máls­ins, mæld­ist stuðn­ingur við hana 33,8 pró­sent, eða litlu minni en stuðn­ingur við núver­andi rík­is­stjórn mælist í dag. …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alveg sama hver situr í stjórn hér á landi alt ber það upp á sama bátinn virðist vera
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Það sem mig langar að vita um Samfylkinguna áður en ég greiði henni atkvæði mitt.

    Mun Samfylkingin halda áfram sölu ríkiseigna?
    Mun Samfylkingin halda áfram að virkja fyrir óligarka, til að hýsa gagnaver og grafa upp rafmyntl og fleira?
    Hvað ætlar Samfylkingin að gera öðruvísi en ríkisstjórnin sem er við völd núna og einblínir á að einkavæða allan gróða en ríkisvæða öll töp.

    Þetta eru spurningar sem brenna á mér og ég hélt að ætti ekki að vera neinum vandkvæðum bundið að svara. En, ég fæ engin svör.
    0
  • HKG
    Hans Kristján Guðmundsson skrifaði
    Hefur nokkur ríkisstjórnarflokkanna áhuga á að rjúfa samstarfið í svona stöðu? Hvernig atburðarás gæti komið stjórninni frá? Hafa enn meirihluta á þingi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár