Fékk heilaslag en enga björgunarþyrlu

Kona sem fékk heilaslag á Hólmavík síðastliðinn föstudag fékk ekki aðstoð björgunar­þyrlu Landhelgis­gæslu Íslands vegna þess að tvær vélanna voru í reglu­bundnu viðhaldi og sú þriðja bilaði óvænt. Málið er ekki einsdæmi.

Þyrla
Þyrla Gæslan rekur þrjár björg­un­ar­þyrlur. Mark­miðið er að hafa alltaf tvær þeirra til taks en það gengur ekki alltaf vegna reglu­bund­ins við­halds. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Það getur skipt sköpum fyrir fólk sem fær heilaslag að komast hratt undir læknis hendur en afleiðingar geta verið lífs­hættulegar. Því varð dóttur konu á Hólmavík illa við á föstudag þegar móðir hennar fékk heilaslag og Landhelgis­gæslan gat ekki ræst út björgunar­þyrlu til þess að koma henni fljótt á Land­spítala.

Ástæðan var sú að tvær af þremur björgunar­þyrlum Landhelgis­gæslunnar voru í reglu­bundnu viðhaldi og sú eina sem eftir stóð bilaði á föstudag. Því þurfti sjúkra­flutninga­fólk á Hólmavík að aka konunni til Akraness þar sem annar sjúkra­bíll tók við. Ferðin tók um tvær klukku­stundir.

Þetta er ekki einsdæmi, stöku sinnum kemur það fyrir að engar björgunar­þyrlur eru til taks hjá Landhelgis­gæslunni en Guðmundur Birkir Agnarsson, aðgerða­stjóri hjá Landhelgis­gæslunni, segir þó að það gerist sjaldan.

„Það er kappsmál hjá okkur að hafa alltaf tvær vélar til taks en við vitum að við höfum þær ekki alltaf,“ segir Guðmundur Birkir …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár