Vonast til þess að starfslokasamningur Birnu komi fyrir augu almennings í vikunni

Formaður fjár­laga­nefndar segir að stefnt sé að því að senda út beiðni til stjórnar Íslands­banka um að fá starfs­loka­samn­ing Birnu Ein­ars­dóttur afhentan í dag. Það muni þó taka ein­hverja daga að afgreiða beiðn­ina.

Vonast til þess að starfslokasamningur Birnu komi fyrir augu almennings í vikunni
Vilja birta strax Þrír stjórn­ar­þing­menn sem sitja í fjár­laga­nefnd köll­uðu eftir því um helg­ina að starfs­loka­samn­ing­ur­inn yrði birtur. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að nefndin von­ist til þess að geta sent út beiðni til stjórnar Íslands­banka um að fá starfs­loka­samn­ing Birnu Ein­ars­dóttur, fyrr­ver­andi banka­stjóra bank­ans, afhentan. Vinna við beiðn­ina hafi verið sett á stað í morgun. 

Bjarkey segir að það sé erfitt að segja hvenær von geti verið á svari. „Við óskum eftir því að fá samn­ing­inn afhentan strax og þá verður hann birtur um leið. Lögin segja það, það þarf að birta hann öllum hlut­höfum á um leið. Ég von­ast til þess að brugð­ist verði hratt og vel við. Við þurfum að óska eftir þessu í gegnum Banka­sýsl­una. Það er hún sem talar fyrir okkar hönd.“

Hún efast þó um að svarið muni ber­ast strax í dag. „Ef erindið fer út í dag þá …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Einkennileg hegðun stjórnar Íslandsbanka, svona á banasænginni. Skylt er hvort eð er að birta samninga við æðstu stjórendur skráðra fyrirtækja í síðasta lagi við næsta ársfjórðungsuppgjör.
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Hvaða máli skiptir þessi starfslokasamningur? Hann er í samræmi við ráðningarsamning við Birnu og því ekkert hægt að hrófla við honum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár