Hægt að framlengja ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán út september

Skatt­ur­inn er búinn að opna síðu þar sem fólk getur sótt um að fram­lengja ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán. Sækja þarf sér­stak­lega um það, ann­ars hætta greiðslur að ber­ast inn á lánin.

Húsnæðismál
Hús­næð­is­mál Skatt­frjáls ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán rennur út í lok næsta árs, en úrræðið var fram­lengt með lögum undir lok vor­þings. Fast­eigna­eig­endur þurfa að óska sér­stak­lega eftir því að úrræðið haldi áfram og er síð­asti dag­ur­inn til þess í dag. Mynd: Davíð Þór

Fast­eigna­eig­endur sem hafa verið að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn til þess að greiða inn á höf­uð­stól fast­eigna­lána hafa frest út sept­em­ber­mánuð, eða til og með 30. sept­em­ber, þess að óska eftir fram­leng­ingu á úrræð­inu út árið 2024.

Ef það er ekki gert mun ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­að­ar­ins ekki fram­lengj­ast sjálf­krafa, heldur munu umsóknir falla úr gildi frá og með 1. júlí og engar frek­ari greiðslur ber­ast inn á lán.

Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Skatts­ins í gær. Hægt er að sækja um fram­leng­ingu á vef Leið­rétt­ing­ar­innar.

Fjármálaráðherra minnti á að í dag væri lokadagur

Það að úrræðið renni út og falli úr gildi, ef fólk sækir ekki sér­stak­lega um fram­leng­ingu að fyrra bragði, virð­ist hafa flogið undir rad­ar­inn hjá mörgum. Einnig olli til­kynn­ing Skatts­ins tölu­verðum mis­skiln­ingi, en bæði fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn sögðu frá því að í dag væri loka­dag­ur­inn til þess að sækja um fram­leng­ing­una.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra birti til dæmis færslu á Facebook fyrr í dag til þess að minna fólk á að í dag er loka­dagur til að fram­lengja ráð­stöf­un­ina og deildi frétt þar sem hið sama kom fram. Hann, rétt eins og fjöl­miðlar, hafa nú leið­rétt þann mis­skiln­ing.

Skatt­ur­inn hafðu áður birt til­kynn­ingu um að fólk myndi þurfa að sækja sér­stak­lega um fram­leng­ingu, en þegar hún var birt 14. júní höfðu lögin frá Alþingi sem sett voru 9. júní ekki enn tekið form­lega gildi.

Þau hafa hins vegar tekið gildi nú, og búið er að opna vef­síðu þar sem hægt er að sækja um fram­leng­ingu úrræð­is­ins.

Snertir ekki þá sem eru með úrræði fyrir fyrstu kaupendur

Tekið skal fram að þetta á ein­ungis við um þá sem eru að láta sér­eigna­sparn­að­inn renna inn á lán á grund­velli þess almenna úrræðis sem kynnt var til sög­unnar árið 2014.

Annað úrræði fyrir fyrstu kaup­endur, sem einnig felur í sér ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán, þarf ekki að fram­lengja. 

Ákveðið að láta kerfið fjara út

Heim­ildin ræddi fram­leng­ingu úrræð­is­ins og nýt­ingu þess við Sigurð Inga Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra í byrjun maí, en á þeim tíma­punkti var verið að vinna frum­varp ráð­herr­ans um fram­leng­ingu úrræð­is­ins út næsta ár í þing­inu.

Tug­þús­undir íslenskra heim­ila hafa nýtt sér þessa ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á höf­uð­stól hús­næð­is­lána sinna, til þess að grynnka á höf­uð­stólnum og lækka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði lána.

Starfs­hópur um hús­næð­is­stuðn­ing sem ráð­herra skip­aði lagði til í fyrra að sett yrði inn sól­ar­lags­á­kvæði fyrir þetta úrræði. Það felur í sér að úrræðið verður í gildi út næsta ár og svo verður þetta almenna úrræði hús­næð­is­stuðn­ings end­an­lega lagt niður.

Fréttin hefur verið upp­færð og fyr­ir­sögn líka. Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði að í dag væri loka­dag­ur­inn til þess að sækja um áfram­hald úrræð­is­ins. Byggðist það á mis­skiln­ingi blaða­manns.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár