556 milljónir í að draga úr fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelja í Reykjanesbæ

Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa birt aðgerða­á­ætlun í 16 liðum sem miðar að því að fækka umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem dvelja í Reykja­nesbæ. Upp­gef­inn heild­ar­kostn­aður er 556 millj­ónir.

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa unnið aðgerða­á­ætlun til að fækka þeim umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem dvelja í Reykja­nesbæ vegna þeirra „sér­stöku aðstæðna sem uppi eru í Reykja­nesbæ vegna mik­ils fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem þar dvelja í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög.“ Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Draga á úr fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelja í Reykja­nesbæ á vegum Vinnu­mála­stofn­unar og breyta á Officera-klúbbnum á Ásbrú í virkni­m­ið­stöð fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í 16 liða aðgerða­á­ætlun sem Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa unnið að vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum Vinnu­mála­stofn­unar.   

300 milljónir í þróunarskóla fyrir börn á grunnskólaaldri

Upp­gef­inn heild­ar­kostn­aður aðgerða­á­ætl­un­ar­innar er 556 millj­ónir króna, auk 45 milljón króna í árlegan leigu­kostnað við hús­næði virkni­m­ið­stöðv­ar­innar, sem mun bera heitið Klúbb­ur­inn, og verður í hús­næði sem áður hýsti Officera-klúbb­inn á Ásbrú og þar verður boðið upp á nám­skeið, smiðjur og fjöl­breytta dag­skrá. 

Kostn­að­ar­samasta aðgerðin felst í stofnun þró­un­ar­skóla í Klúbbnum, sem mun fá nafnið Frið­heimar, sem á að tryggja öllum börnum á grunn­skóla­aldri, sem eru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, aðgengi að menntun. Þró­un­ar­skól­inn á að taka til starfa í haus og nemur kostn­aður við hann 300 millj­ónum króna. 

„Sérstakar aðstæður í Reykjanesbæ“ 

Í upp­hafi árs und­ir­rit­uðu félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið, Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær vilja­yf­ir­lýs­ingu um að greindar yrðu þær áskor­anir sem Reykja­nes­bær stæði frammi fyrir vegna fjölg­unar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelj­ast í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum rík­is­ins. Ákveðið var að aðilar að yfir­lýs­ing­unni myndu vinna saman að lausnum og er aðgerða­á­ætl­unin afrakstur þeirrar vinnu.

Áætlunin er gerð „vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi eru í Reykja­nesbæ vegna mik­ils fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem þar dvelja í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög,“ að því er segir í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins. Vinnu­mála­stofnun tók síð­ast­liðið sumar við því hlut­verki sem Útlend­inga­stofnun hafði áður varð­andi þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Útlend­inga­stofnun ber eftir sem áður ábyrgð á afgreiðslu umsókna og máls­með­ferð þeirra. 

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins segir jafn­framt að meg­in­mark­mið aðgerða­á­ætl­un­ar­innar er ann­ars vegar að draga til lengri tíma litið úr fjölda umsækj­enda sem dvelja í bænum og hins vegar að auka virkni og vellíðan fólks á meðan það bíður eftir afgreiðslu umsóknar sinnar hjá Útlend­inga­stofnun. Áætlunin var unnin sam­eig­in­lega af Reykja­nesbæ og Vinnu­mála­stofnun.

Aðgerðir eru þegar hafnar sam­kvæmt áætl­un­inni og hafa börn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd meðal ann­ars sótt tóm­stunda­nám­skeið nú í sumar sem Vinnu­mála­stofnun kom á fót á Ásbrú. Meðal aðgerða sem hefj­ast á næst­unni er að koma á fót þró­un­ar­skóla í Klúbbnum undir heit­inu Frið­heimar, auka þjón­ustu við flótta­fólk og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd með aðkomu sjálf­boða­liða úr nær­sam­fé­lag­inu og ráð­ast í hug­mynda­söfnun meðal umsækj­enda um það hvað fólk vilji helst gera og hvernig virkni það mæli með. Þá mun þjón­ustu- og mót­tökuteymi alþjóðateymis Reykja­nes­bæjar verða tvo morgna í viku á Ásbrú með upp­lýs­inga­gjöf um þá þjón­ustu sem bær­inn veitir og leið­beina fólki varð­andi nyt­sam­lega hluti.

Leita að hentugri staðsetningu fyrir einingahús 

Meðal aðgerða sem mið­ast að því að fækka umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem dvelja í Reykja­nesbæ er sam­starf Vinnu­mála­stofn­unar við Reykja­vík­ur­borg að því að finna hent­uga stað­setn­ingu fyrir ein­inga­hús fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. 

Um leið er „unnið mark­visst að því að fjölga sveit­ar­fé­lögum sem hýsa umsækj­end­urna“. Nýleg mót­töku­sveit­ar­fé­lög sem bæst hafa í hóp­inn eru  Blá­skóga­byggð, Grinda­vík, Kópa­vogur og Vest­manna­eyjar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár