„Tilheyrir þessi ríkisstjórn fortíð frekar en framtíð?“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar sagði rík­is­stjórn­ina ekki taka neinar ákvarð­anir en hún gagn­rýndi hval­veiðar á þingi í dag. „Það að skjóta hvali af færi með skutli fylltum sprengi­efni er eins og stunda veiðar með flug­skeyti,“ sagði Orri Páll Jóhanns­son þing­maður Vinstri grænna.

„Tilheyrir þessi ríkisstjórn fortíð frekar en framtíð?“
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Þing­maður sagði rík­is­stjórn­ina ekki taka neinar ákvarð­anir. Mynd: Eyþór Árnason

Þingmenn gagn­rýndu hval­veiðar í dag í kjöl­far nýrrar skýrslu Mat­væla­stofn­unar um veiðar síð­asta sum­ars. Hlutverk MAST er að hafa eft­ir­lit með veið­unum. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýndu að lög um mark­mið dýra­vel­ferðar voru ekki upp­fyllt. Þar kom einnig fram að 24 pró­sent hvala voru skotnir oftar en einu sinni. 

Orri Páll Jóhanns­son þing­maður Vinstri grænna sagði atvinnu­grein­ina ekki eiga heima í nútíma­sam­fé­lagi. „Það að skjóta hvali af færi með skutli fylltum sprengi­efni er eins og stunda veiðar með flug­skeyti. Þvílíkt offors og til hvers? Til að selja hval­kjöt á örmark­aði úti í heimi? Það er alveg ljóst í mínum huga að hval­veiðar eigi ekki upp á pall­borðið í nútíma­sam­fé­lagi og með þessi gögn til grund­vallar verðum við að hafa alvöru þrek til að ræða þessi mál til hlítar.“

Nið­ur­staða skýrsl­unnar sýnir að með­ferð á hvölum stenst ekki mark­mið um vel­ferð dýra og stóð mat­væla­ráð­herra Svandís Svav­ars­dóttur fyrir svörum á Alþingi í gær um hvort að hval­veiðar yrðu leyfðar í sumar. 

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar sagði rík­is­stjórn­ina ekki taka neinar ákvarð­anir. „Helsta vöru­merki þess­arar rík­is­stjórnar er að hún tekur engar ákvarð­anir. Ráð­herrar birt­ast sem álits­gjafar í fjöl­miðlum og lýsa yfir áhyggjum. Svo ger­ist ekk­ert. Þetta kalla þau síðan gjarnan stöð­ug­leika.“

Þing­maður kall­aði eftir að ákvörðun yrði tekin og sagði almanna­hags­muni, dýra­vel­ferð og umhverf­is­hags­muni vera undir. „65% Íslend­inga telja að hval­veiðar hafi nei­kvæð áhrif á orð­spor lands­ins. Dýrin þjást lengi eftir sprengiskutl­ana og síð­ast en ekki síst er þetta umhverf­is­mál. Hvalir búa yfir þeim magn­aða hæfi­leika að binda kolefni sem nemur um 1.500 trjám á líf­tíma sínum.“

Í gær sagði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra að til­efni væri til að spyrja um hvort að hval­veiðar til­heyrðu for­tíð eða fram­tíð. Þorbjörg Sigríður lauk sinni ræðu í pontu í dag með annarri spurn­ingu: „Stóra spurn­ingin er auð­vitað miklu frekar þessi, til­heyrir þessi rík­is­stjórn for­tíð frekar en fram­tíð?“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár