Þessi grein birtist fyrir rúmlega 12 mánuðum.

Stöndum frammi fyrir því að skoða „hvort þessi atvinnugrein tilheyri ekki fortíð frekar en framtíð”

Andrés Ingi Jóns­son spurði Svandísi Svavars­dótt­ur mat­væla­ráð­herra hvort hún hygð­ist leyfa hval­veið­ar í sum­ar, í kjöl­far nýrr­ar skýrslu frá MAST um með­ferð hvala sem veidd­ir eru við Ís­lands­strend­ur.

Stöndum frammi fyrir því að skoða „hvort þessi atvinnugrein tilheyri ekki fortíð frekar en framtíð”
Svandís Svavarsdóttir Matvælaráðherra sagði skort á þekkingu um vistkerfi. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata spurði matvælaráðherra Svandísi Svavarsdóttur hvort að hún ætlaði að leyfa hvalveiðar í sumar í ljósi nýrrar eftirlitsskýrslu frá Matvælastofnun. 

Í fyrirspurn sinni sagði Andrés Ingi að í ljósi þess að af þeim  148 hvölum sem drepnir voru síðasta sumar hefði fjórðungur verið drepinn með fleiri en einum skutli og fjórðungur hvalanna þurft að þola pyntingar í dauðastríðinu, væri „bara hægt að draga einn lærdóm af þessari niðurstöðu“.

„[Þ]ess vegna vil ég spyrja ráðherra: Ætlar ráðherra nokkuð að leyfa hvalveiðar í sumar?“ sagði Andrés Ingi.

Andrés gagnrýndi einnig skort á rannsóknum um lífríki og vistfræði hafsins. Hann sagði hvali hafa verið hafða fyrir rangri sök þegar veiðar á þeim hefðu verið réttlættar. 

„Þeir voru sakaðir um afrán, að þeir væru að éta þorskinn sem mannfólkið ætti, þegar raunin er sú og vísindamenn hafa leitt í ljós að hvalir stunda einhverja mestu garðyrkju jarðarkúlunnar, með því að færa næringarefni á milli laga í sjónum og viðhalda þannig ótal vistkerfum,“ sagði Andrés og bætti við að það hefði verið reiknað út að „þjónustuna“ sem hvert stórhveli veitir við kolefnisföngun mætti meta á þrjár milljónir bandaríkjadala, þannig að nú væri „fólk farið að tala um að jafnvel stappi nærri vistmorði að halda hvalveiðum áfram“.

„Það er vandkvæðum háð að afturkalla leyfi

Svandís tók undir að skortur væri á þekkingu um vistkerfi. „Það er þá staðreynd sem fyrir liggur og það er það að þekking okkar er engan veginn fullnægjandi að því er varðar lífríki og vistkerfi hafsins og við höfum lagt áherslu á það, þessi ríkisstjórn og ég í embætti matvælaráðherra, að auka fjármuni til hafrannsókna, ekki bara til að kanna betur vistkerfisgrunninn heldur líka til að vera betur á vaktinni varðandi loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki sjávar,“ sagði Svandís.

Um skýrslu MAST sagði Svandís að niðurstöðurnar væru sláandi: „Það er að veiðarnar séu ekki í samræmi við markmið laga um velferð dýra.”

En það er ekki einfalt verk að afturkalla gildandi leyfi, samkvæmt ráðherra. „Það er vandkvæðum háð að afturkalla leyfi sem nú er í gildi en það vakna sannarlega ýmsar spurningar um það hvort þær aðferðir sem beitt er við þessar veiðar og samræmast tæpast lögum um dýravelferð gerir það ekki að verkum að við séum stöndum frammi fyrir því að endurskoða það hvort þessi atvinnugrein tilheyri ekki fortíð frekar en framtíð,“ sagði Svandís.

Andrés Ingi mat svar ráðherra svo að áform um endurnýjun leyfisins hlytu að vera í lausu lofti. Hann endurtók spurningu sína til ráðherra og sagði: „Hún er skýr. Hún snýst ekkert um vandkvæði í framtíðinni. Hún snýst ekkert um breiðan grunn. Hún snýst um það að fjórðungur hvala sem voru veiddir á síðasta ári voru pyntaðir. Varúðarreglan segir okkur að hér þurfi að taka í handbremsuna. Mun ráðherra sjá til þess að hvalveiðar fari ekki fram á þessu ári?“

Svandís sagði ákvarðanir sínar byggja á lagagrundvelli. „Eins og kom fram í mínu fyrra svari þá er það svo að mínar ákvarðanir þurfa auðvitað að byggja á lagagrunni og sá grundvöllur er ekki fyrir hendi að því er mín þekking, eða [...] þekkingin í ráðuneytinu leggur til grundvallar og upplýsir mig um.“

„Hins vegar vil ég segja það að þessar veiðar hafa verið stundaðar um langan tíma en samfélagið okkar hefur breyst, gildin um það hvað okkur finnst í lagi og hvað okkur finnst ekki í lagi hafa sem betur fer líka breyst og það er svo sannarlega kominn tími til þess að við ræðum það á grundvelli staðreynda hvort okkur finnist ásættanlegt að stunda atvinnugrein af þessu tagi miðað við þau gildi sem við viljum vera þekkt fyrir á alþjóðavettvangi,“ sagði Svandís.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Einarsson skrifaði
    Menn hafa verið að fara á límingunum yfir mögulegri siðblindu gervigreindar (sérfræðingar snúið baki við þróun hennar af þeim sökum), þá hefur hvalveiðarinn mikli ákveðið að taka hana í þjónustu sína við drápin. Forvitnilegt að sjá hvernig útfærslan verður.
    0
    • Gudmundur Einarsson skrifaði
      https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-05-08-hvalur-innleidir-gervigreind-til-ad-gera-veidar-skilvirkari
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
4
Fréttir

Millj­arð­ar kvenna sem passa ekki inn í út­lits­box­ið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki leng­ur í tísku og að Bridget Jo­nes sé ekki leng­ur tal­in feit, eru út­lit­s­kröf­ur til nú­tíma­kvenna enn óraun­hæf­ar, seg­ir pró­fess­or í fé­lags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áð­ur hafi ver­ið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smán­að út af út­liti.“
Birgir segir mistök að ekki sé gert ráð fyrir nýrri kvennadeild á nýja Landspítalanum
6
Fréttir

Birg­ir seg­ir mis­tök að ekki sé gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild á nýja Land­spít­al­an­um

Í störf­um þings­ins ræddu þing­menn ým­is mál. Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir gagn­rýndi Sam­fylk­ing­una, Birg­ir Þór­ar­ins­son benti á myglu­vanda­mál Land­spít­al­ans og sér­stak­lega þá stöðu sem er kom­in upp á kvenna­deild­inni. Gagn­rýndi hann að ekki væri gert ráð fyr­ir nýrri kvenna­deild í bygg­ingu nýja Land­spít­al­ans. Jó­hann Páll Jó­hann­es­son benti á að eins og stað­an er í dag geti smá­lána­fyr­ir­tæki not­fært sér neyð fólks og grætt á þeirra stöðu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
2
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
4
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
6
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
7
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
8
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
9
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár