Strætó skoðar verðhækkanir frá 1. júlí

Til skoð­unar er hjá Strætó hvort hækka skuli gjald­skrá fyr­ir­tæk­is­ins frá 1. júlí. Ekkert hefur verið ákveðið, hvorki hve mikið verð ætti að hækka né hvort það skuli hækka yfir höfuð, segir fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Sá guli
Sá guli Síðustu verð­hækk­anir hjá Strætó tóku gildi 1. októ­ber í fyrra, eða fyrir rúmum sjö mán­uðum. Þá hækk­aði verðið að jafn­aði um 12,5 pró­sent. Mynd: Davíð Þór

Strætó er að hefja skoðun á því hvort til­efni sé til að hækka gjald­skrá félags­ins frá og með 1. júlí næst­kom­andi, en um þetta var fjallað á síð­asta stjórn­ar­fundi, sem fram fór 21. apríl. Jóhannes Svavar Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir skoðun á þessu máli á fyrstu metr­unum.

„Það var sam­þykkt fyrir þó nokkuð löngu síðan svona gjald­skrár­stefna, um að láta hana hækka í sam­ræmi við hækkun kostn­aðar, og nú er að fara af stað skoðun á því hver sú hækkun eigi að vera og hvort hún verði,“ segir Jóhannes við Heim­ild­ina. 

Ekki er langt síðan Strætó réðst síð­ast í gjald­skrár­breyt­ingar, en 1. októ­ber í fyrra hækk­uðu far­miðar með almenn­ings­vögnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 12,5 pró­sent að jafn­aði og fór ferðið á stökum miða í Strætó þá úr 490 krónum upp í 550 krónur. 

Eig­enda­stefna Strætó mælir fyrir um að far­gjalda­tekjur standi undir 40 pró­sentum af kostn­aði við rekst­ur­inn. Þrátt fyrir að aldrei hafi jafn mörg inn­stig mælst í stræt­is­vagna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í mars­mán­uði, eða 1.242.000 tals­ins, eru tekj­urnar þó nokkuð fjarri því að standa undir þeim hluta sem eig­endur Strætó, sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hafa ákveðið að þær skuli helst gera.

Jóhannes Svavar segir að hlut­fall far­gjalda af kostn­aði hafi hæst farið í 35 pró­sent á und­an­förnum árum, en að þrátt fyrir met­fjölda inn­stiga hafi far­gjalda­tekjur Strætó ein­ungis staðið undir tæpum 30 pró­sentum af rekstr­ar­kostn­aði félags­ins á fyrstu mán­uðum árs­ins.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Hvernig væri að lækka frekar verðið?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár