„Óumbeðnar kyrkingar í kynlífi er eitthvað sem við erum að sjá gerast allt of oft“

Gagn­kyn­hneigðar konur voru í miklum meiri­hluta þeirra sem leit­uðu sér aðstoðar hjá Bjark­ar­hlíð, mið­stöðvar fyrir þolendur ofbeldis, á síð­asta ári. Algeng­ast var að ger­andi væri fyrr­ver­andi maki og aðeins 13% sögð­ust hafa kært ofbeldið til lög­reglu. Þegar þjón­ustu­þegar áttu að nefna eina ástæðu komu nefndu flestir heim­il­is­of­beldi. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Bjark­ar­hlíðar sem kynnt var í dag.

Jenný Kristín Valfells, teymisstjóri Bjarkarhlíðar.
Jenný Kristín Valfells, teym­is­stjóri Bjark­ar­hlíðar. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„88% þjón­ustu­þega eru konur, 90% þjón­ustu­þega eru gagn­kyn­hneigðir. Gerendur í þessum málum eru aðal­lega karl­menn,“ segir Jenný Kristín Valberg, teym­is­stjóri Bjark­ar­hlíðar, mið­stöðvar fyrir þolendur ofbeldis, vegna kynn­ingar á árs­skýrslu mið­stöðv­ar­innar fyrir síð­asta ár.

„Við sjáum að 51% þeirra sem komu á síð­asta ári sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Það er mjög alvar­legt að 488 ein­stak­lingar, aðal­lega konur, hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi heima hjá sér. Það er bara galið og eitt­hvað sem við sem sam­fé­lag eigum að hafa miklar áhyggjur af. Við búum í sam­fé­lagi þar sem karlar leiða og konur fylgja, konum er sagt hvað þær eiga að gera í kyn­lífi. Konur eru að rekja sig til baka og finna grunn­inn að sínum áföllum, oft hefur það mikið að gera með þeirra fyrstu sam­bönd eða þeirra fyrstu kyn­lífs­reynslu þar sem farið var yfir mörk. Margar konur tala um að þær viti ekki hver mörkin sín eru,“ segir Jenný Kristín.

Andlegt ofbeldi grunnurinn

Á árinu 2022 leit­uðu alls 978 ein­stak­lingar til Bjark­ar­hlíðar, mið­stöðvar fyrir þolendur ofbeldis, í fyrsta við­tal. Fjöldi ein­stak­linga í fyrsta við­tali árið 2020 var 1.059 ein­stak­lingar. Sam­dráttur fjölda þeirra sem kom í fyrsta við­tal milli áranna 2021 og 2022 er því um 8%. Ein skýr­inga þessa kann að vera sam­dráttur á þjón­ustu vegna hús­næð­is­vanda. Konur voru 88% þjón­ustu­þega en 11% karlar. Fimm ein­stak­lingar skil­greindu kyn sitt á annan hátt. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árs­skýrslu Bjark­ar­hlíðar fyrir árið 2022.

Jenný vekur athygli á því að 94% þjón­ustu­þega lýsi and­legu ofbeldi. „Það er grunn­ur­inn í öllum ofbeld­is­sam­böndum. Ef ger­andi nær stjórn­un­inni og stýr­ing­unni, og nær að koma mark­miðum sínum á fram­færi með þá eru ger­endur jafn­vel ekki að beita fleiri teg­undum ofbeldis,“ segir hún.

Þá eru 70% þeirra sem komu í Bjark­ar­hlíð í fyrra að koma vegna ofbeldis sem átti sér stað fyrir minna en ári síðan, sumsé að fólk er enn í aðstæð­unum eða er nýlega komið út úr þeim.

Ógn við líf og heilsu

„Eins og áður eru flestir sem leita til Bjark­ar­hlíðar á aldr­inum 18-40 ára, barn­eign­ar­aldr­inum. Ef við skoðum eldri hópa þá er fólk oft að koma eftir skilnað eða þegar maki er fall­inn frá. Þessi hópur kannski skil­greinir ofbeldi á annan hátt en við og yngri ald­urs­hópar gera. Hjá elsta hópnum var ofbeldið kannski aldrei rætt,“ segir Jenný Kristín.

Hún segir mikið áhyggju­efni að 55% þeirra sem komu í fyrra lýsi lík­am­legu ofbeldi, sem sé ógn bæði við lif og heilsu þol­anda.

„15% sögð­ust hafa verið tekin kyrk­ing­ar­taki. Það er eitt­hvað sem við þurfum að hafa miklar áhyggjur af. Kyrk­ing­ar­tak getur haft miklar afleið­ingar, sem jafn­vel verða ekki ljósar fyrr en síðar og getur jafn­vel leitt til heila­blæð­ingar og minnistaps. Óum­beðnar kyrk­ingar í kyn­lífi er eitt­hvað sem við erum að sjá ger­ast allt of oft,“ segir hún.

Jenný Kristín vekur einnig athygli á því að þolendum sem lýsa staf­rænu ofbeldi hafi fjölgað á milli ára, 31% árið 2022 sam­an­borið við 12% árið 2021.

Fyrrverandi maki oftast gerandinn

Að með­al­tali komu 82 ein­stak­lingar í fyrsta við­tal í Bjark­ar­hlíð í hverjum mán­uði árið 2022.

90% þeirra sem leit­uðu til Bjark­ar­hlíðar í fyrra voru gagn­kyn­hneigðir. Tví­kyn­hneigðir voru 4% þjón­ustu­þega, 2% sam­kyn­hneigðir og 4% sögð­ust ekki viss um kyn­hneigð sína.

Flestir sem leit­uðu til Bjark­ar­hlíðar í fyrra vegna ofbeldis sögðu ger­anda vera fyrr­ver­andi maki, eða 51%. Nítján pró­sent sögðu ger­anda vera núver­andi maki og 12% sögðu ger­anda vera for­eldri.

 Bjark­ar­hlíð býður upp á áfalla­mið­aða ráð­gjöf, stuðn­ing og upp­lýs­ingar fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri. Boðið er upp á sam­hæfða þjón­ustu á einum stað og hægt er að fá ein­stak­lings­við­töl þar sem boðið er upp á lög­fræði­lega ráð­gjöf, félags­lega ráð­gjöf og stuðn­ing. Til við­bótar veitir lög­reglan upp­lýs­ingar um ferli mála í rétt­ar­vörslu­kerf­inu og kemur málum í far­veg innan lög­regl­unnar.

Öll þjón­usta Bjark­ar­hlíðar þolendum að kostn­að­ar­lausu.

Bjark­ar­hlíð er sam­starfs­verk­efni Reykja­vík­ur­borgar, vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins, inn­an­rík­is­ráðu­neytis, Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Samtaka um kvenna­at­hvarf, Stíga­móta, Dreka­slóðar, Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands og Kvenna­ráð­gjaf­ar­innar.

Tæp 60% glíma við fötlun eða langvarandi sjúkdóm

Til að henda reiður á fjölda þeirra ein­stak­linga sem til Bjark­ar­hlíðar leita og búa við fötlun og/eða sjúk­dóm eru þjón­ustu­þegar spurðir hvort þeir búi við eitt­hvað af eft­ir­far­andi; and­legan sjúk­dóm, lík­am­legan sjúk­dóm, kulnun í starfi, hreyfi­hömlun, heyrn­ar­leysi, þroska­skerð­ingu, blindu/sjón­skerð­ingu og/eða annað. Alls svör­uðu 946 ein­stak­lingar spurn­ing­unni og tæp 60% svör­uðu henni ját­andi.

64% þeirra sem leit­uðu til Bjark­ar­hlíðar í fyrra voru á aldr­inum 18-40 ára.

Þegar þjón­ustu­þegar voru spurðir um birt­ing­ar­myndir ofbeldis sem þeir hafi mátt þola greindu flestir, 94%, frá and­legu ofbeldi, 55% greindu frá lík­am­legu ofbeldi, 51% frá kyn­ferð­is­legu ofbeldi, 50% frá beinu eða óbeinu ofbeldi gegn börnum og 46% frá fjár­hags­legu ofbeldi. Þá voru 15% sem greindu frá því að hafa verið teknir kyrk­ing­ar­taki.

Ríflega helm­ingur, 56%, greindi frá því að börn byggju á heim­il­inu og er það svipað hlut­fall og síð­ustu ár. Heild­ar­fjöldi barna á heim­ilum þjón­ustu­þega er 710 börn, á aldr­inum 0 til 17 ára. Alls sögðu 222 þjón­ustu­þegar að barna­vernd hefði haft afskipti af heim­il­inu, eða 23% þjón­ustu­þega.

Meiri­hluti þjón­ustu­þega, 69%, er að koma vegna atviks sem er nýtt, það er átti sér stað á und­an­gengnu ári, en 28% þjón­ustu­þega leita til Bjark­ar­hlíðar vegna atviks sem er gam­alt, það er átti sér stað fyrir lengra en ári síðan. Um 3% þjón­ustu­þega gáfu ekki upp hvenær ofbeld­is­at­vik átti sér stað.

Heldur dró úr þjón­ustu­fram­boði hjá Bjark­ar­hlíð á árinu 2022 og eru á því nokkrar skýr­ingar, að því er fram kemur í árs­skýrsl­unni.

„Dreka­slóð hætti starf­semi og var ekki í sam­starfi við Bjark­ar­hlíð á árinu og lög­regla var að jafn­aði þrjá daga í viku í Bjark­ar­hlíð.  Þá greind­ist mygla í Bjark­ar­hlíð­ar­hús­inu við Bústaða­veg í maí 2022 og í fram­hald­inu var starf­semin flutt í bráða­birgða­hús­næði að Bleik­ar­gróf 6 meðan við­gerðir á Bjark­ar­hlíð­ar­hús­inu stóðu yfir. Í hús­næð­inu við Bleik­ar­gróf eru aðeins þrjú við­tals­her­bergi og hafði það þau áhrif að skerða þurfti þjón­ust­una. Kvenna­at­hvarf og Stígamót hafa ekki getað veitt þjón­ustu til skjól­stæð­inga í sama húsi frá því í maí 2022 og starfs­fólk vann heima 1-2 daga í viku til að rýma fyrir lög­reglu og lög­fræði­ráð­gjöf,“ segir í árs­skýrsl­unni. Starf­semi Bjark­ar­hlíðar er nú aftur komin á Bústað­ar­veg.

Hér má nálg­ast árskýrslu Bjark­ar­hlíðar fyrir árið 2022 í heild sinni. 


Býrð þú eða ein­hver þér nákom­inn við ofbeldi?
Á vef­síðu Bjark­ar­hlíðar getur þú tekið próf til að kanna hvort þú sért í ofbeld­is­sam­bandi eða búið við heim­il­is­of­beldi.
Ofbeld­is­gátt 112 er vef­svæði Neyð­ar­lín­unnar þar sem má finna fjöl­breytta fræðslu um birt­ing­ar­myndir ofbeldis, dæmisögur og úrræði.
Í neyð­ar­til­vikum skal alltaf hringja í 112.
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár