Taldi að lengra væri komið í jafnréttismálum en raunin var

Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur þótti hálf hlá­legt þegar amma hennar gaf henni árið 2007 bók til að brýna hana í jafn­rétt­is­málum. Hún hafi talið litla þörf á því. „Ég var viss um að við værum komin tölu­vert lengra í jafn­rétt­is­málum en við vorum, og lengra en ég síðar sá.“

Taldi að lengra væri komið í jafnréttismálum en raunin var
Var sagt að hún hefði valið rangan flokk Þórdísi Kolbrúnu var sagt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri eng­inn flokkur fyrir venju­lega stelpu af Skaganum.„Ég held að það sé nú nokkuð ljóst að það var rangt.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Þeir þing­menn sem Heim­ildin ræddi við í sam­hengi við úttekt á ætt­ar­tengslum töl­uðu flestir á svip­uðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ætt­ar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig póli­tík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál sem fram hafi farið inni á heim­il­inum hafi þar haft meira að segja.

Komin af vestfirskum þingmönnum

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að þvert á það sem margir kynnu að halda hafi póli­tík ekki verið mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil á æsku­heim­ili hennar. For­eldrar hennar, Fjóla Katrín Ásgeirs­dóttir sjúkra­liði og Gylfi R. Guð­munds­son þjón­ustu­stjóri hafi ekki mikið rætt ein­staka þætti í flokkapóli­tík heldur hafi fremur verið talað um ákveðin gildi. Engu að síður er Þórdís nátengd fyrr­ver­andi þing­mönnum og stjórn­mála­mönnum.

Þórdís Kolbrún er lög­fræði­menntuð og vann við fagið. Hún var þá fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2013 til 2014 og síðan aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra 2014 til 2016 en þá tók hún fyrst sæti á Alþingi. Hún tók þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokknum snemma, var í stjórn og síðan for­maður ungra sjálf­stæð­is­manna á Akranesi. Þá sat hún í stjórn Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna og í stjórn Félags laga­nema við HR. Hún var ráð­herra ferða­mála, iðn­aðar og nýsköp­unar á síð­asta kjör­tíma­bili og utan­rík­is­ráð­herra frá síð­ustu kosn­ingum. Hún var kjörin vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2018.

Jóna Val­gerður Krist­jáns­dóttir, föð­ur­amma Þórdísar, var þing­kona Samtaka um kvenna­lista 1991-1995. Bróðir Jónu Val­gerðar, og þar með ömmu­bróðir Þórdísar, er Guðjón Arnar Krist­jáns­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­maður Frjáls­lynda flokks­ins. Guðjón sat á þingi 1999-2009 en var áður vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á ýmsum tímum frá 1991 til 1995. Guðjón var for­maður Frjáls­lynda flokks­ins 2003 til 2009. Þá var Guð­mundur, föð­ur­afi Þórdísar, hrepps­nefnd­ar­maður og síðan odd­viti í Eyr­ar­hreppi og síðan bæj­ar­full­trúi á Ísafirði, þar af átta ár sem for­seti bæj­ar­stjórnar. Þá var hann sveit­ar­stjóri í Reyk­hóla­hreppi.

Þórdís Kolbrún segir að rætur sínar liggi allar vestur á firði þaðan sem ættir hennar eru, þar á meðal ætt Jónu Val­gerðar ömmu hennar, ömmu Gerðu eins og hún kallar hana. „Ég man aðeins eftir henni sem þing­konu, þó ég væri bara lítil stelpa. Föðurafi minn, Guð­mundur, var líka mjög póli­tískur. Hann var í bæj­arpóli­tík­inni bæði í Hnífsdal og í Ísa­fjarð­arbæ, og kom meðal ann­ars að stofnun Orkubús Vest­fjarða. Þegar ég hef verið að grúska í gömlum ræðum frá honum sé ég að hann var mjög fram­sýnn maður og kannski að ákveðnu leyti á undan sinni sam­tíð, tal­aði fyrir sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga til að mynda. Amma Gerða var það líka, hún tók auð­vitað ákvörðun um að bjóða sig fram fyrir fram­boð, Kvenna­list­ann, sem var tölu­vert að ögra.“

Addi Kidda Gauj hrókur alls fagnaðar

Guðjón Arnar, ömmu­bróðir hennar, heit­inn, Addi Kidda Gauj, var harður í horn að taka í póli­tík­inni, ekki síst þega kom að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu, sem var kjarn­inn í flokks­starfi Frjáls­lynda flokks­ins. Þórdí Kolbrún segir gaman að hitta fólk, oft­ast þó karl­menn, sem hafi verið sam­ferða­menn hans í póli­tík og heyra af honum sögur. „Hann var mjög fylg­inn sér í póli­tík­inni en maður heyrir að sam­ferða­fólk hans, sem var alveg á önd­verðum meiði við hann, áttu samt í honum góðan félaga. Ég man svo sem ekki svo mikið eftir Adda Kidda Gauj sem stjórn­mála­manni, ég man miklu frekar eftir honum hjá ömmu og á ætt­ar­mótum. Hann var alltaf hrókur alls fagn­aðar og elskaði að dansa, svo mín minn­ing af honum er helst hann að tjútta.“

„Hún er alveg óhrædd við að hafa skoð­anir“
Þórdís Kolbrún
Um Jónu Valgerði ömmu sína.

Þórdís var aðeins 8 ára þegar Jóna Val­gerður amma hennar vék af þingi en 22 ára þegar Guðjón Arnar frændi hennar lét af þing­mennsku. Þá var hún sjálf farin að skipta sér af póli­tík en hún hóf virka þátt­töku árið 2007, sama ár og hún byrj­aði í laga­deild HR. „Ég man að þegar ég útskrif­að­ist gaf amma Gerða mér bók um fyrsta kven­fé­lagið sem stofnað var á Vest­fjörðum, með svona vís­bend­ingu um að ég hefði gott af því að lesa þá sögu svona fyrst ég hefði tekið ákvörðun um að fara að skipta mér af póli­tík. Ég man að ég hugs­aði: Amma mín, það er komið árið 2007. Mér fannst þetta fal­leg gjöf en hugs­aði með mér að það væri nú ekki nein gríð­ar­leg þörf fyrir þessa brýn­ingu á þeim tíma. Ég var viss um að við værum komin tölu­vert lengra í jafn­rétt­is­málum en við vorum, og lengra en ég síðar sá.“

Sagt að hún hefði valið rangan flokk

Þórdís Kolbrún segir að hún ræði tölu­vert póli­tík við ömmu sína, til að mynda um heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál. Spurð hvort amma hennar leggi henni lífs­regl­urnar eða skammi hana hlær Þórdís Kolbrún og segir það nú kannski ekki vera. „Nei, ég get nú ekki sagt það en það hefur komið fyrir að hún hefur nefnt mál við mig sem hún hefur ýmist haft áhyggjur af eða spurt út í. Hún er alveg óhrædd við að hafa skoð­anir.“

„Ég valdi flokk­inn út af þeirri hug­mynda­fræði sem ég hef mótað með mér“

Vegna þess að amma hennar og ömmu­bróðir voru þing­menn segir Þórdís Kolbrún stundum velta fyrir sér hvort fólk telji þá að hún komi úr mjög póli­tísku upp­eldi. Það sé alls ekki þannig. „Pólitík var ekki mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil á heim­il­inu, ekki flokkspóli­tík, heldur meira talað um ákveðin gildi og hvernig maður færi í gegnum lífið. Það var ekki mikið verið að ræða ein­staka póli­tík sem sagt var frá í frétta­tím­anum, ekki eins og ég skynj­aði að gert var heima hjá sumum vinum mínum og bekkj­ar­systk­inum þegar ég var barn og ung­lingur.

Ég þekkti ekk­ert fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum, og man þar af leið­andi eftir athuga­semdum um að ég hefði nú örugg­lega valið rangan flokk, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri nú ekk­ert flokkur fyrir venju­lega stelpu af Skaganum, ég ætti ekk­ert séns. Ég held að það sé nú nokkuð ljóst að það var rangt. Ég valdi flokk­inn út af þeirri hug­mynda­fræði sem ég hef mótað með mér en ekki það að ég hafi valið flokk­inn og skoð­anir mínar hafi mót­ast út frá honum.“

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár