Bændapólitíkin grunnur að þingmennskunni

Þórarinn Ingi Pét­urs­son segir að honum hafi ekki þótt sem sér væri vörðuð leið í stjórn­mál sem ungum manni. Það hafi meira bara gerst. Enginn vafi sé á að félags­mála­þátt­taka og stjórn­mála­vafstur föður hans, séra Péturs Þór­ar­ins­sonar, hafi þó haft á hann áhrif.

Bændapólitíkin grunnur að þingmennskunni
Ber skylda til að taka þátt Þórarinn Ingi segir að það hafi áhrif að alast upp í sam­fé­lagi á lands­byggð­inni þar sem allir þurfi að leggja sitt af mörkum.

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Þeir þing­menn sem Heim­ildin ræddi við í sam­hengi við úttekt á ætt­ar­tengslum töl­uðu flestir á svip­uðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ætt­ar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig póli­tík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál sem fram hafi farið inni á heim­il­inum hafi þar haft meira að segja.

Allir verða fyrir áhrifum í uppvextinum

Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er sonur þeirra Ingi­bjargar Svöfu Sig­laugs­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ings og Péturs heit­ins Þóra­ins­sonar, bónda og prests, lengs af í Laufási.  Pétur var á sinni tíð lands­þekktur maður og tók virkan þátt í félags­starfi, einkum kirkj­unnar og ung­menna­hreyf­ing­ar­innar. Hann var þá vara­þing­maður Stefáns Val­geirs­sonar í sér­fram­boði hans, J-list­anum, og sat um skeið á þingi.

Sjálfur er Þórarinn Ingi búfræði­mennt­aður frá Bænda­skól­anum á Hólum og hefur verið bóndi lengst af. Hann sat í stjórn og varð síðar for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda og í sveit­ar­stjórn Grýtu­bakka­hrepps. Hann var vara­þing­maður á síð­asta kjör­tíma­bili.

„Maður getur ekki beðið eftir því að fólk geri hlut­ina fyrir mann, maður á að gera þá sjálfur og á sama tíma leggja öðrum lið“

Þórarinn Ingi segir að ekki sé vafi um að upp­eldið hafi hafi mótað hann. „Ég held að það liggi nú alveg fyrir. Menn verða alltaf fyrir áhrifum af því sem þeir alast upp við. Langafi minn var líka Bryn­leifur Tob­í­as­son sem var einn af stofn­endum Bænda­flokks­ins á sínum tíma og var í fram­boði fyrir hann, þó hann næði ekki kjöri á þing.“

Þórarinn Ingi segir að félags­törf og stjórn­mála­þátt­taka föður hans einkum hafi haft veru­lega mikið um það að segja hvaða leið hann sjálfur fet­aði, það hafi verið honum fyr­ir­mynd. „Ég fór í bændapóli­tík­ina og ég myndi segja að hún væri mesti grunn­ur­inn að því að ég fór út í lands­málapóli­tík­ina. Svo er það svo sem þannig að maður fer ekki endi­lega í póli­tík, fólk kemur að máli við mann og fær mann til þátt­töku. Það hefur líka áhrif að hafa alist upp í sam­fé­lagi á lands­byggð­inni þar sem allir þurfa að leggja sitt af mörkum, taka þátt félags­lega.“

Sem ungum manni hafi honum ekki liðið þannig að fyrir hann væri vörðuð leið sem hlyti að leiða til þess að hann myndi taka þátt í félags­málum eða póli­tík, segir Þórarinn Ingi. „Þetta bara gerð­ist. Mér hefur fund­ist mér bera skylda til þess að mæta á fundi þegar þeir hafa verið haldnir um mál sem snerta mann, það er bara sam­fé­lags­leg skylda að taka þátt og leggja eitt­hvað af mörkum. Hvort sem það er í félags­málum í sveit­inni eða í smala­mennsku, nú eða póli­tík. Maður getur ekki beðið eftir því að fólk geri hlut­ina fyrir mann, maður á að gera þá sjálfur og á sama tíma leggja öðrum lið.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
5
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár