Óhjákvæmilegt að hugurinn leitaði í átt að stjórnmálum

Mikil umræða um póli­tík í nærum­hverfi Birgis Ármanns­sonar þegar hann var barn og ungur maður hafði án efa áhrif á þá braut sem Birgir síðan fet­aði. Afi Birgis var þing­maður og faðir hans áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Óhjákvæmilegt að hugurinn leitaði í átt að stjórnmálum
Póli­tískur áhugi vakn­aði snemma Birgir segir að þó faðir hans hafi dáið þegar hann var aðeins fimm mán­aða og afi hans þegar hann var átta ára hafi hann alist upp í umhverfi þar sem póli­tík var nálæg. Afi hans, Birgir Kjaran, sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokkin, og Ármann Sveins­son faðir hans var for­ystu­maður í röðum ungra sjálf­stæð­is­manna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Þeir þing­menn sem Heim­ildin ræddi við í sam­hengi við úttekt á ætt­ar­tengslum töl­uðu flestir á svip­uðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ætt­ar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig póli­tík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál sem fram hafi farið inni á heim­il­inum hafi þar haft meira að segja.

Eitt leiðir af öðru

Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­seti Alþingis er fæddur 1968, sonur Helgu Kjaran og Ármanns Sveins­sonar. Ármann var for­ystu­maður í röðum ungra sjálf­stæð­is­manna á sinni tíð en hann lést ungur, aðeins 22 ára. Birgir Kjaran, móð­ur­afi Birgis, var þing­maður sjálf­stæð­is­flokks­ins 1959-1963 og 1967-1971.

Sjálfur er Birgir lög­fræð­ingur að mennt og starf­aði sem slíkur hjá Versl­un­ar­ráði Íslands en varð síðar aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri ráðs­ins. Áður var hann blaða­maður á Morg­un­blað­inu. Birgir var for­maður Heimdallar, og sat í stjórn SUS, og þá var hann í stjórn Vöku og sat í stúd­enta­ráði Háskóla Íslands fyrir hreyf­ing­una. Hann sat einnig í stjórn full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík og í mið­stjórn flokks­ins. Birgir var kjör­inn á þing árið 2003 og var kjör­inn for­seti Alþingis eftir síð­ustu kosn­ingar.

Spurður hvort ætt­ernið hafi haft áhrif á Birgi og orðið til þess að hann hafi fetað hinn póli­tíska stíg svarar hann: „Alveg örugg­lega. Auðvitað hefur það án efa haft áhrif á það að hjá mér vakn­aði póli­tískur áhugi mjög snemma. Jafnvel þó að pabbi deyi þegar ég er bara fimm mán­aða og afi þegar ég er átta ára þá elst ég upp í umhverfi þar sem póli­tíkin er tölu­vert nálæg og það hefur ábyggi­lega haft þau áhrif að ég fékk áhuga á stjórn­málum og tengdum efnum mjög snemma. Síðan bara leiðir eitt af öðru. Ég held að það hafi óhjá­kvæmi­lega haft þau áhrif að hugur minn leit­aði í þessa átt frekar en ein­hverjar aðrar.“

„Ég býst við að dætur mínar fylgist betur með því sem er að ger­ast heldur en algengt er“

Birgir segir að póli­tík hafi mikið verið til umræðu á æsku­heim­ili hans. Þó að ekki hafi önnur ætt­menni en faðir hans og afi verið mikið starf­andi í Sjálf­stæð­is­flokknum þá hafi fólkið í kringum hann fylgst vel með fréttum og póli­tík, mál­efnum lands og þjóðar. „Það var mikið talað um póli­tík í mínu nærum­hverfi, fólkið mitt hafði skoð­anir og viðr­aði þær. Auðvitað hefur það áhrif.“

Birgir á full­orðnar dætur og á ung­lings­aldri. Spurður hvort að þær hafi sýnt áhuga á stjórn­mála­starfi segir Birgir að þær hafi ekki verið virkir þátt­tak­endur í því fram að þessu. „En óhjá­kvæmi­lega fylgj­ast þær með þó maður hafi reynt að halda ein­hverjum aðskiln­aði milli stjórn­mála­starfa og fjöl­skyldu­lífs. Auðvitað er það þannig að fyrir þá sem eru í stjórn­málum geta þau mörk stundum orðið svo­lítið óglögg. Ég býst við að dætur mínar fylgist betur með því sem er að ger­ast heldur en algengt er, þó þær hafi hingað til ekki verið þátt­tak­endur í neinu stjórn­mála­starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár