Meirihluti landsmanna ósáttur með kvótakerfið – 83 prósent telja auðlindagjöld eiga að vera hærri

Ný skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sýnir mikla óánægju lands­manna með núver­andi kerfi fisk­veiði­stjórn­unar. Ríflega 8 af hverjum 10 lands­mönnum telja að auð­linda­gjöld í sjáv­ar­út­vegi eigi að vera hærri en þau eru í dag og meira en helm­ing­ur­inn seg­iri að þau skuli vera „mun hærri“.

Sjávarútvegsmál
Sjáv­ar­út­vegs­mál Ný skoð­ana­könnun sýnir að 83 pró­sent lands­manna telur að auð­linda­gjöld í sjáv­ar­út­vegi eigi að vera hærri. 57,3 pró­sent telja að þau eigi að vera mun hærri en þau eru í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir


Rúm 56 pró­sent lands­manna eru frekar ósátt eða mjög ósátt við fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar skoð­ana­könn­unar sem Félags­vís­inda­stofnun vann fyrir mat­væla­ráðu­neytið. 

Að sama skapi segj­ast ein­ungis rúm­lega 22 pró­sent lands­manna vera mjög sátt eða frekar sátt við fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. Tæplega 21 pró­sent segj­ast hvorki sátt né ósátt.

Þetta má lesa í skýrslu um könn­un­ina, sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Rúm 83 prósent landsmanna telja auðlindagjöld eiga að vera hærri

Þau sem sögð­ust ósátt með kerfið voru spurð hvað þau væru helst ósáttir með, og af þeim skrif­legu svörum er ljóst að óánægja margra stafar af því að þeim þykir arður af sjáv­ar­auð­lind­inni ekki skila sér í nægum mæli til sam­fé­lags­ins. 

KönnunEinungis rúm 22 pró­sent svar­enda eru sátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið.

Spurt var sér­stak­lega út í auð­linda­gjöld af sjáv­ar­út­vegi síðar í skoð­ana­könn­unni og í þeim svörum kemur fram að 57,3 pró­sent svar­enda telja þau eiga að vera „mun hærri“ og 25,9 pró­sent til við­bótar sögðu að þau ættu að vera nokkuð hærri. Sam­an­dregið telja því rúm­lega 83 pró­sent lands­manna að auð­linda­gjöldin ættu að vera hærri en þau eru í dag.

Gerð skoð­ana­könn­un­ar­innar er liður í þeirri vinnu sem mat­væla­ráðu­neytið hefur staðið fyrir undir heit­inu Auð­lindin okkar, en könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 7.-26. mars. Alls voru 2.579 manns í úrtaki, en 1.133 svör­uðu könn­un­inni, sem jafn­gildir tæp­lega 44 pró­senta þátt­töku­hlut­falli.

Kjósendur Sjálfstæðisflokks sér á báti

Allar spurn­ing­arnar í skoð­ana­könn­unni eru brotnar niður eftir hinum ýmsu bak­grunns­breytum. Þegar spurn­ingum um álit fólks á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu er skoðuð kemur í ljós lít­ill munur á milli hópa út frá búsetu, aldri, menntun og stöðu á vinnu­mark­aði, en þeim mun meira afger­andi munur þegar svörin eru skoðuð eftir fylgi við stjórn­mála­flokka.

Þau sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn skera sig sér­stak­lega úr, en tæp 60 pró­sent úr þeim hópi segj­ast mjög eða frekar sátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. Rúm 20 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn lýsa því hins vegar yfir að þau séu ósátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­innBjarni Bene­dikts­son er for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hvað varðar ánægju með kvóta­kerfið koma þeir sem segja að þau myndu kjósa Framsókn næst á eftir kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks, en 34,9 pró­sent úr þeim hópi segj­ast frekar eða mjög sátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. Þar á eftir koma væntir kjós­endur Mið­flokks­ins og Við­reisnar, en um 20 pró­sent úr þeim hópum segj­ast frekar eða mjög sátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið.

Meiri­hluti væntra kjós­enda Pírata (83,6 pró­sent), Sam­fylk­ingar (83,5 pró­sent) Við­reisnar (72,5 pró­sent), Flokks fólks­ins (68,4 pró­sent) og Mið­flokks­ins (65,1 pró­sent) segj­ast ósátt með fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið og það gera einnig 44,5 pró­sent væntra kjós­enda Vinstri grænna og 34,9 pró­sent væntra kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kerfið hafi verið nauðsynlegt, en sé ekki gott

Hvað varðar fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið segj­ast 70 pró­sent svar­enda vera ýmist mjög sam­mála eða frekar sam­mála þeirri full­yrð­ingu að á sínum tíma hafi verið nauð­syn­legt að koma kvóta­kerf­inu á til að vernda fiski­stofna. Hins vegar lýsa rúm 59 pró­sent svar­enda sig frekar eða mjög ósam­mála þeirri full­yrð­ingu að kvóta­kerfið virki eins og það á að gera. 

Rúm 64 pró­sent svar­enda segj­ast svo frekar eða mjög ósam­mála því að íslensk stjórn­völd hafi komið á góðu kerfi til að styrkja byggð­ar­lög þar sem fisk­veiðar hafa dreg­ist saman, en ein­ungis rúm 10 pró­sent segj­ast sam­mála því að kerfið sé gott hvað það varðar.

Meirihluti ósáttur með stjórnun og gagnsæi sjávarútvegsfyrirtækja

Tæp 57 pró­sent svar­enda segj­ast svo frekar eða mjög ósátt með við­skipta- og stjórn­un­ar­hætti íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og enn fleiri, eða tæp 65 pró­sent svar­enda, segj­ast frekar eða mjög ósátt við gagn­sæi í starf­semi íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. 

Þátt­tak­endur í skoð­ana­könn­unni voru spurðir hvað þeir teldu að myndi auka sátt um íslenskt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi og mátti hver og einn velja fleiri en einn svar­mögu­leika. 

Þeir val­mögu­leikar sem skor­uðu hæst voru að auka gagn­sæi í eign­ar­haldi á kvóta (57,6 pró­sent), að hækka veiði­gjöld svo meira renni til sam­fé­lags­ins (66,2 pró­sent) og að setja í stjórn­ar­skrá að fisk­ur­inn sé í eigu þjóð­ar­innar (61,8 pró­sent). Einnig sögðu 52,7 pró­sent að bann við fram­sali kvóta gæti aukið sátt um íslenskt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi.

Umræðan um sjávarútveginn talin neikvæð

Þátt­tak­endur í könn­un­inni voru einnig spurðir út í það hvernig þeir upp­lifðu opin­bera umræðu um sjáv­ar­ú­veg á Íslandi. Flestir, eða 48,4 pró­sent, sögð­ust telja hana frekar nei­kvæða og til við­bótar voru tæp 12 pró­sent á því máli að hún væri mjög nei­kvæð.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár