Segir nýja fjármálaáætlun geyma engar raunverulegar aðgerðir til að hagræða

Þing­maður Við­reisnar gagn­rýndi fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í dag á meðan þing­maður Vinstri grænna mærði hana og sagði að í áætl­un­inni væri með skýrum hætti for­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins og almanna­trygg­inga­kerf­is­ins þar sem ekki væri gerð aðhalds­krafa.

Segir nýja fjármálaáætlun geyma engar raunverulegar aðgerðir til að hagræða
Mark­að­ur­inn hafi misst trú á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti náð niður verð­bólg­unni Þorbjörg segir að orð fjár­mála­ráð­herra sýni að hann taki það til sín að mark­að­ur­inn hafi misst trú á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti stýrt efna­hags­mál­unum, að hann geti náð verð­bólg­unni niður. Mynd: Eyþór Árnason

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar spyr hvar mark­miðin um að lækka skuldir og lækka við­skipta­halla séu í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára sem sett var fram í vik­unni. Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins í dag. 

Fyrri umræða um fjár­mála­á­ætl­un­ina fer fram síðar í dag en þingið mun fara í páska­frí í tvær vikur eftir dag­inn.

Heim­ildin fjall­aði um fjár­mála­áætl­unina í gær en henni er ætl­að að hjálpa til við að berja nið­ur verð­bólgu og slá á þenslu. Þar eru boð­að­ar skatta­hækk­an­ir, sem sum­ar eru út­færð­ar og aðr­ar ekki, að­halds­að­gerð­ir og eigna­sala. 

Heildarafkoman skiptir máli

Bjarni Bene­diks­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði fyrr í mán­uð­inum að það væri stað­reynd að mark­að­irn­ir hefðu misst trú á að stjórn­völd næðu verð­bólg­unni nið­ur á næstu miss­er­um. „Við verð­um að gang­ast við því,“ sagði hann.

Þorbjörg vís­aði í þessi ummæli og sagði í ræðu sinni í dag að orð ráð­herr­ans sýndu að hann tæki það til sín að mark­að­ur­inn hefði misst trú á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti stýrt efna­hags­mál­unum, að hann gæti náð verð­bólg­unni niður. 

„Ný fjár­mála­á­ætlun geymir nefni­lega engar raun­veru­legar aðgerðir til að hag­ræða. Útgjaldapóli­tíkin er enn sú sama. Það er ekk­ert talað um að lækka svim­andi háan vaxta­kostnað íslenska rík­is­ins, sem myndi hjálpa við að ná niður verð­bólgu. Ísland ætlar áfram að blanda sér alvar­lega í bar­átt­una um Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn í vaxta­kostn­aði. Verð­bólga er skil­greind sem versti óvin­ur­inn en aðgerðir til að berj­ast gegn höf­uð­ó­vin­inum vantar, eru fyrst á dag­skrá 2024 til 2028. Rík­is­stjórnin ætlar þá að skoða sam­ein­ingu stofn­ana eftir ein­hver ár og kannski hærri veiði­leyfagjöld ein­hvern tím­ann seinna.

Þetta hjálpar auð­vitað ekki ungu fólki á hús­næð­is­mark­aði núna. Fjár­mála­á­ætl­unin er eins og geggjað aðhalds­pró­gramm sem byrjar 2024 og skilar kannski þjóð­inni í kjól­inn fyrir jólin 2028. Þrátt fyrir öll varn­að­ar­orð heims­ins valdi fjár­mála­ráð­herra að skila fjár­lögum fyrir þetta ár með 120 millj­arða halla. Hann talar núna um að frum­jöfn­uður sé að batna. Það er fárán­legur mæli­kvarði, eins og að segja að afkoma heim­il­anna sé góð áður en búið er að taka með í reikn­ing­inn afborg­anir af lánum. Það er auð­vitað heild­ar­af­koman sem skiptir máli og það á að reka ríkið á yfir­drætti út árið 2027,“ sagði hún. 

Spurði Þorbjörg hvar mark­miðin um að lækka skuldir væru. „Hvar eru mark­miðin um að lækka við­skipta­halla? Svörin við þessum spurn­ingum geta orðið til þess að fjár­mála­ráð­herra end­ur­heimti trú fólks á því að hann ráði við verk­efnið.“

Rétt að beita ríkisfjármálum með markvissum hætti til að ná niður verðbólgu

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður vel­ferð­ar­nefndar fjall­aði einnig um fjár­mála­á­ætl­un­ina í ræðu sinni undir sama lið í dag. 

Þar sagði hún að fjár­mála­á­ætl­unin sýndi stefnu rík­is­stjórn­ar­innar svart á hvítu, að rétt væri að beita rík­is­fjár­málum með mark­vissum hætti til að ná niður verð­bólgu og koma í veg fyrir frek­ari hækkun vaxta með auknu aðhaldi, tekju­öflun og frestun fram­kvæmda. 

„Á sama tíma er lögð áhersla á að verja grunn­þjón­ust­una, styðja áfram við við­kvæma hópa og verja lífs­kjör almenn­ings. Skulda­hlut­fall rík­is­sjóðs lækkar líka á tíma­bil­inu og afkoma batnar. Þetta er það eina rétta við núver­andi aðstæður,“ sagði hún og vitn­aði í menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, Lilju Dögg Alfreðs­dóttur: „Stóra verk­efnið sam­hliða breyttum aðstæðum er að ná niður verð­bólgu sem er helsti óvinur heim­ila og fyr­ir­tækja í land­inu. Aðhald og skýr for­gangs­röðun er meg­in­stef. Rík­is­fjár­málin þurfa að vinna með pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans til að ná jafn­vægi.“

For­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is­kerf­is­insLíneik Anna segir að í áætl­un­inni sé með skýrum hætti for­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins og almanna­trygg­inga­kerf­is­ins þar sem ekki sé gerð aðhalds­krafa.

Líneik Anna sagði jafn­fram að þrátt fyrir að ýmsum fram­kvæmdum yrði frestað væri stað­inn vörður um fram­kvæmdir sem væru í gangi eða ættu að hefj­ast á árinu eins og við Land­spít­ala og í sam­göngu- og hús­næð­is­málum. „Þá verður sér­stak­lega stutt við þá hópa, sem síst geta mætt áhrifum hærri verð­bólgu, með ýmsum stuðn­ings­að­gerðum stjórn­valda, eins og þegar er hafið með hækkun vaxta­bóta og barna­bóta.

Í áætl­un­inni er líka með skýrum hætti for­gangs­raðað í þágu heil­brigð­is­kerf­is­ins og almanna­trygg­inga­kerf­is­ins þar sem ekki er gerð aðhalds­krafa. Það þýðir að 12 millj­arð­arnir sem bætt var inn í heil­brigð­is­kerfið um síð­ustu ára­mót eru komnir til að vera. Sem for­maður vel­ferð­ar­nefndar hef ég fylgst með vinn­unni í heil­brigð­is­kerf­inu og legg mikla áherslu á að við getum haldið áfram öllum þeim góðu verkum sem nú er unnið að,“ sagði hún að lokum. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár