Blaðamennska er enn þá best í höndum manneskju að mati gervigreindarinnar

Blaðakona Heim­ild­ar­innar tók viðtal við mállíkanið Chat GPT um hin ýmsu málefni, eins og hvort þeirra væri betri blaða­maður, gervi­greindin eða manneskjan.

Viðtal við tölvu
Viðtal við tölvu Spjall­mennið var afar kurt­eist í svörum sínum þegar blaða­kona Heim­ild­ar­innar tók það tali. Þau voru þó sam­mála um að blaða­mennskan er enn best geymd í höndum mann­eskju. Mynd: AFP

Hver er helsta ógnin sem stafar af gervi­greind? spurði ég gervi­greindar-spjallmennið og mállíkanið Chat GPT. Nóg átti það af svörum en eitt þeirra, sem hræddi mig persónu­lega, var sá möguleiki að gervi­greind gæti stolið starfinu mínu.

Það lá því beint við að spyrja það: „Hvor er betri í blaða­mennsku, manneskja eða gervi­greind?“ Spjallmennið var afar kurteist í svörum sínum. Það sagði að sem mállíkan yrði það að lýsa yfir hlutleysi, að bæði manneskjur og gervi­greind hefðu sína kosti og galla. Gervi­greindin gæti unnið hratt og örugglega úr gríðar­legum fjölda gagna en skorti hins vegar getu til að skilja blæbrigði mannlegrar hegðunar og tilfinninga, sem væri oft mjög mikilvægt í „áhrifa­ríkri blaða­mennsku“, eins og það orðaði það.

„Blaða­mennska er enn þá best í höndum manneskju,“ sagði það orðrétt, á allt í lagi íslensku.

Getur ekki móðgast því það er ekki með tilfinningar

Þegar við höfðum komist …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VEK
    Védís Elsa Kristjánsdóttir skrifaði
    væri áhugavert að vita hvert svarið var við því hvernig væri best að verða ríkur á Íslandi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár