Formlegur samruni Stundarinnar og Kjarnans, undir merkjum Heimildarinnar, er langt kominn. Fyrirkomulag samrunans er með þeim hætti að fyrri hluthafar Stundarinnar eiga samtals 62,5 prósent í sameinuðu útgáfufélagi, sem ber nafnið Sameinaða útgáfufélagið, og fyrri hluthafar Kjarnans eiga 37,5 prósent.
Ný stjórn hins sameinaða félags er skipuð Birnu Önnu Björnsdóttur, Hjálmari Gíslasyni, Vilhjálmi Þorsteinssyni, Heiðu B. Heiðarsdóttur og Elínu Guðrúnu Ragnarsdóttur, sem er stjórnarformaður og eini stjórnarmaðurinn sem er ekki á meðal hluthafa í félaginu. Erlent heiti útgáfufélagsins er United Publishing.
Líkt og greint var frá í fyrsta leiðara Heimildarinnar er eignarhald hins sameinaða félags dreift og enginn einn hluthafi fer með stærri hlut en 7,6 prósent í félaginu. Hægt er að sjá yfirlit yfir hluthafa og eign þeirra neðst í þessari frétt.
Tilkynningarskylt til Samkeppniseftirlitsins
Formlegur samruni útgáfufélaganna tveggja tafðist vegna athugunar Samkeppniseftirlitsins á honum. Almennt þarf heimild Samkeppniseftirlitsins til þess að sameina tvö félög sem hafa sameiginlega meira en þrjá milljarða króna í veltu. Þrátt fyrir að Stundin og Kjarninn hafi samtals rétt rúmlega tíunda hluta þess í veltu, sem samanstendur að langmestu leyti af áskriftum og styrkjum almennings, þurftu fjölmiðlarnir að tilkynna samrunann til Samkeppniseftirlitsins.
Ástæðan er sérákvæði í lögum um fjölmiðla sem skylda fjölmiðla til að tilkynna samruna þeirra félaga sem hafa meira en 100 milljónir króna í veltu.
Samhliða var óskað eftir undanþáguheimild til að hefja útgáfu á sameinuðum fjölmiðli. Sú undanþáguheimild fékkst 12. janúar, degi áður en prent- og vefútgáfa Heimildinar var sett í loftið. Því var hægt að hefja sameiginlega starfsemi en með þeim formerkjum að áhrif hennar yrðu afturkræf ef niðurstaða eftirlitsins gagnvart samrunanum yrði neikvæð. Því var ekki hægt að stíga nein endanleg skref í samruna útgáfufélaga Stundarinnar og Kjarnans fyrr en endanleg niðurstaða Samkeppniseftirlitsins lá fyrir.
Dreift eignarhald
Samrunaaðilar bentu á að með samrunanum og öflugri ritstjórn yrði hægt að styðja betur við bakið á dýpri rannsóknarblaðamennsku og greiningu á málefnum líðandi stundar. Þar af leiðandi myndi samruninn ekki hafa skaðleg áhrif á fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði. Fjölmiðlanefnd og Samkeppniseftirlitið voru sammála um að eftir samrunann yrði útgáfufélag hins sameinaða fyrirtækis eftir sem áður í dreifðu eignarhaldi.
Því var það niðurstaða eftirlitsins að ekki væru forsendur til aðhafast neitt vegna samruna Stundarinnar og Kjarnans í Heimildina. Í niðurstöðuskjali þess segir: „Að gögnum málsins virtum telur Samkeppniseftirlitið að samruni Stundarinnar og Kjarnans leiði ekki til þess að markaðsráðandi staða myndist eða styrkist, eða að samkeppni verði raskað að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Þá mun samruninn ekki hafa skaðleg áhrif á fjölræði og/eða fjölbreytni í fjölmiðlun á þeim mörkuðum sem samrunaaðilar starfa.“
Í kjölfar þessa var hægt að stíga næstu skref í samruna félagana. Daginn eftir, 17. febrúar, var haldinn hluthafafundur þar sem samþykkt var breyting á nafni útgáfufélagsins og nýjar samþykktir samþykktar af stjórn. Yfirtökuvarnir eru innbyggðar í samþykktir félagsins og ritstjórar Heimildarinnar hafa skráð formlega hagsmuni sína á opinberum vettvangi.
Fjölmiðlanefnd hefur verið haldið upplýstri um ferlið og Heimildin verður skráð þar sem fjölmiðill á næstu dögum.
Hluthafar í Sameinaða útgáfufélaginu, sem gefur út Heimildina
- Heiða B. Heiðarsdóttir 7,6%
- Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir 7,6%
- Jón Ingi Stefánsson 7,6%
- Jón Trausti Reynisson 7,6%
- Höskuldur Höskuldsson 7,6%
- Góður punktur ehf. (í eigu Reynis Traustasonar) 7,6%
- Snæbjörn Björnsson Birnir 7,6%
- HG80 ehf. (í eigu Hjálmars Gíslasonar) 6,9%
- Miðeind ehf. (í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar) 6,8%
- Birna Anna Björnsdóttir 4,4%
- Magnús Halldórsson 3,6%
- Þórður Snær Júlíusson 3,0%
- Charlotta María Hauksdóttir 2,8%
- Kol ehf. (í eigu Helga Más Haraldssonar) 2,5%
- Hjalti Harðarson 2,3%
- Vogabakki ehf. (í eigu Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar) 1,9%
- Fjélagi eignarhaldsfélag (í eigu Jason Whittle (99%) og Steindórs Sigurgeirssonar (1%)) 1,5%
- Stormur Seafood ehf. (Að mestu í eigu Steindórs Sigurgeirssonar) 1,5%
- Fagriskógur ehf. (Í eigu Stefáns Hrafnkelssonar) 1,4%
- Milo ehf. (í eigu Eddu Hafsteinsdóttur og Guðmundar Hafsteinssonar) 1,4%
- Kjarninn Miðlar ehf. 1,4%
- Valgerður Oddsdóttir 1,0%
- Sameinaða útgáfufélagið ehf. 0,9%
- Birgir Þór Harðarson 0,7%
- Jónas Reynir Gunnarsson 0,7%
- Gunnar Tómasson 0,5%
- Áslaug Karen Jóhannsdóttir 0,5%
- Kristrún Lind Birgisdóttir 0,3%
- Egill Sigurðarson 0,2%
Athugasemdir