Það þarf þorp til að skapa fjöldamorðingja

Holy Spider er ljóðræn mynd á þennan óvenju­lega persneska hátt, dimm og drungaleg, en hjarta hennar slær með ólánsömum konum, sem eru töluvert kjarkaðri en aumingja­legir karlarnir, sem öllu ráða.

Sjónvarp & Bíó

Holy Spider

Gefðu umsögn

Við erum stödd á götum Masjad, hinnar heilögu borgar, næst­fjölmennustu borgar Íran. Þar kyssir Somayeh dóttur sína góða nótt og fer svo út í nóttina, þar sem hún starfar sem kynlífs­verkakona. Við fylgjum henni eftir, sjáum samskipti við vafasama kúnna og við dópsala, eldri konu sem virðist sömuleiðis vera sálusorgari hennar. En svo kemur maður á mótor­hjóli.

Somayeh er meðal fórnar­lamba fjölda­morðingja sem drap sextán vændis­konur árin 2000 og 2001, kyrkti þær venjulega með þeirra eigin slæðu og henti líkunum á rusla­hauga borgarinnar. Fyrstu tíu mínúturnar er hún aðal­persóna myndarinnar – og svo tekur blaða­konan Arezoo Rahimi við því hlutverki. Það er einhver þráður á milli þeirra, enda virðist blaða­konan sú eina sem hefur einlægan áhuga á örlögum þessara kvenna.

Hún er kjarna­kvendi en þarf sömuleiðis að þola ágengni frekra karla, meðal annars lögreglu­manna, sem hafa miklu minni áhuga á að hjálpa til við rann­sóknina. Enda læðist að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár