PLAY hefur tapað næstum tíu milljörðum á tveimur árum

PLAY ætl­aði ekki í hluta­fjár­aukn­ingu á árinu 2022 og lýsti því yfir að félagið gerði ráð fyrir rekstr­ar­hagn­aði á síð­ari hluta þess árs. Það gekk ekki eftir og PLAY þurfti að sækja 2,3 millj­arða króna í nýtt hlutafé í lok síð­asta árs. Handbært fé um ára­mót er mun minna en tap síð­asta árs.

Rekstr­ar­tap flug­fé­lags­ins PLAY var 55,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala á síð­asta ár, eða sem nemur 7,9 millj­örðum króna á árs­loka­gengi þess gjald­mið­ils sem eru upp­gjörs­mynt félags­ins. Heild­ar­tap PLAY var samt minna, eða 45,5 millj­ónir króna, þar sem félagið gat bók­fært skatta­lega inn­eign til að draga úr því. Því var það 6,5 millj­arðar króna á árinu 2022. Skatta­leg inn­eign PLAY vegna tap­rekst­urs síð­ustu tveggja ára er bók­færð á um 2,3 millj­arða króna í árs­reikn­ingi félags­ins sem birtur var á mið­viku­dag.

Mest var tapið á síð­asta árs­fjórð­ungi, alls um 2,4 millj­arðar króna. Þar af metur PLAY tap vegna ófærðar á Reykja­nes­braut í des­em­ber á um 312 millj­ónir króna. Alls flutti PLAY 789 þús­und far­þega á síð­asta ári. Tapið nam því tæp­lega tíu þús­und krónum á hvern far­þega ef miðað er við árs­loka­gengi Banda­ríkja­dals.

Heildatap PLAY í fyrra var mun meira en á árinu 2021, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gekk yfir af fullum krafti …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár