Sambýliskona og barnsmóðir mannsins sem kom við sögu í lögregluaðgerðum á Sauðarkróki í gær er nú í felum eftir að hafa óttast um líf sitt. Hún fór af sameiginlegu heimili þeirra á sunnudag, og tók tvö börn þeirra með sér, en maðurinn mun áður hafa beitt hana ofbeldi.
Samkvæmt upplýsingum sem blaðamaður Heimildarinnar hefur aflað fór sambýliskonan til lögreglunnar í gær og gaf skýrslu vegna ofbeldis og hótana í garð hennar. Í framhaldi af því hafi lögreglan ákveðið að grípa til þeirra aðgerða sem áttu sér stað í gær.
Sagðist vilja „frí í sextán ár á Hrauninu“
Maðurinn hafi þá verið búinn að senda fjölda fólks truflandi skilaboð, meðal annars um að hann vildi drepa „ákveðið fólk“ með skotvopni og að hann vilji fá „frí í sextán ár á Hrauninu,“ eins og heimildarmaður orðar það. Maðurinn hafi ekki nafngreint fólkið sem hann hafi viljað drepa en samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar hafi fólk talið augljóst að hann ætti þar við sambýliskonu sína og fyrrverandi sambýliskonu sína, en hann á börn með þeim báðum.
Árið 2019 var maðurinn dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða umræddri fyrrverandi sambýliskonu sinni skaðabætur vegna þess að hann afhenti henni ekki búslóð hennar, í samræmi við úrskurð dómstólsins, eftir að konan fór af heimili þeirra og leitaði í Kvennaathvarfið með börn þeirra. Í því máli lágu fyrir útprentanir af Facebook-auglýsingum þar sem maðurinn auglýsti til sölu ýmsa muni í eigu fyrrverandi konunnar, sem sem ilmvötn, kvenmannsveski og snyrtivörur.
Fór mikinn á samfélagsmiðlum
Maðurinn fór mikinn á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann meðal annars sakaði nafngreinda einstaklinga um refsiverða hluti. Um tíma voru þar einnig aðgengileg afrit af öllum skriflegum samskiptum hans og sérsveitarinnar. Af skrifunum að dæma var maðurinn í miklu andlegu ójafnvægi.
Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur varist frétta af málinu og gaf eftirfarandi út á Facebook-síðu sinni í gær:
„Um miðjan dag í dag, 8. febrúar, bárust lögreglunni á Norðurlandi vestra upplýsingar sem gáfu tilefni til að lögregla greip til aðgerða á Sauðárkróki til að tryggja allsherjarreglu. Við þær aðgerðir naut embættið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Aðgerðum lögreglu er lokið. Enginn var handtekinn vegna málsins og ekki er grunur um ætlaða refsiverða háttsemi.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki var um „umsátur“ að ræða og harmar embættið slíkan fréttaflutning.
Lögreglan á Norðurlandi vestra mun ekki upplýsa frekar um málið vegna eðlis þess og viðkvæmni.“
Athugasemdir