Icelandair sér fram á bjartari tíma eftir 80 milljarða tap frá 2018

Uppgjör Icelandair Group fyrir árið 2022 var birt í gær. Þar má lesa að félagið horfi fram á bjartari tíma, í kjölfar þess að hafa tapað 826 milljónum króna á síðasta ári, sé miðað við ársloka­gengi bandaríkja­dals. Uppsafnað tap félagsins frá árinu 2018 nemur um 80 milljörðum. „Við höfum náð vopnum okkar,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri.

Icelandair
Icelandair Flug­fé­lagið tók sjö nýjar Boeing 737-MAX vélar í notkun á árinu 2022. Mynd: Icelandair

Tap Icelandair Group á síðasta ári nam 5,8 milljónum bandaríkja­dala, jafnvirði rúmlega 826 milljóna króna sé miðað við gengi dollara gagnvart krónu á síðasta degi nýliðins árs (USD = 142,5 kr.).

Afkoma félagsins var mun betri en árið 2021, er félagið tapaði 105 milljónum dala, jafnvirði 13,7 milljarða króna á ársloka­gengi þess árs. Rekstrar­afkoma félagsins fyrir fjármagns­liði og skatt­greiðslur (EBIT) var jákvæð um 2,6 milljarða króna á síðasta ári.

Flug­félagið birti uppgjör sitt síðdegis í gær og lýsir árinu 2022 sem ári viðsnúnings, en kórónu­veiru­faraldurinn lék félagið eins og önnur flugfélög grátt. Rekstur Icelandair hafði þó einnig verið þungur fyrir faraldurinn og flug­félagið hafði tapað fé á hverju ári síðan 2018. Uppsafnað tap félagsins síðan þá nemur samtals um 80 milljörðum króna, miðað við ársloka­gengi hvers árs, og þar af nam tapið rúmum 50 milljörðum árið 2020.

Uppgjör Icelandair virðist hafa farið ágætlega í fjárfesta, en á öðrum tímanum í dag hafði gengi hluta­bréfa í félaginu hækkað um rúm 3,3 prósent innan dagsins í um 2 milljarða króna viðskiptum.

„Við höfum náð vopnum okkar“

Á síðasta ári flutti Icelandair 3,6 milljónir farþega, 2,2 milljónum fleiri en árið 2021, og horfa stjórn­endur félagsins björtum augum á árið 2023, en flug­áætlun félagsins hefur aldrei verið jafn umfangs­mikil með flug­framboð til 54 áfanga­staða. 

Staðan sé sterkBogi Nils Bogason for­stjóri lýsir árinu 2022 sem ári við­snún­ings í rekstri Icelandair Group.

„Sterk tekju­myndum með met farþega­tekjum á seinni hluta ársins og stórbætt EBIT hlutfall sýnir að viðskipta­líkan félagsins hefur enn og aftur sannað gildi sitt. Við höfum náð vopnum okkar og höldum ótrauð áfram, sterkari en nokkru sinni fyrr, með stærstu flug­áætlun í sögu félagsins á þessu ári þegar kemur að tíðni og fjölda áfanga­staða,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra félagsins í tilkynningu.

Gengur á gjafabréfastaflann

Í uppgjöri Icelandair kemur fram að við áramót hafi félagið verið búið að selja flugmiða í ferðir sem ekki enn höfðu verið farnar fyrir alls 212,3 milljónir bandaríkja­dala, jafnvirði rúmlega 30 milljarða íslenskra króna.

Kórónu­veiru­faraldurinn hafði í för með sér umfangs­mikla útgáfu inneigna af hálfu flug­félagsins, en sá stafli hefur rúmlega helmingast frá árslokum 2021. Á þeim tíma­punkti áttu viðskipta­vinir Icelandair alls 83,7 milljónir dala í inneignum hjá félaginu án þess að vera búnir að bóka sér flug, en við árslok 2022 var upphæðin komin niður í 41,1 milljón dala, jafnvirði 5,8 milljarða króna.

Eigið fé Icelandair Group í lok árs nam 273,4 milljónum dollara, eða 33,8 milljörðum króna.

Meta tjón af lokun Reykjanesbrautar á milljarð

Fram kemur í yfir­lýsingu Boga Nils forstjóra, sem fylgdi uppgjörs­tilkynningu félagsins, að Icelandair meti tjón sitt af skítviðrinu sem gekk yfir í desember­mánuði og leiddi m.a. til lokunar Reykja­nesbrautar, á sama tíma og Kefla­víkur­flugvöllur var opinn, á um einn milljarð króna. 

Bogi Nils segir að tjónið megi að langmestu leyti rekja til lokunar akvegarins og segir í því ljósi „ánægjulegt og mikilvægt að innviða­ráðherra hafi sett af stað vinnu til að tryggja að slíkt ástand muni ekki skapast aftur við sambærilegar veður­aðstæður“.

Forstjórinn segir ljóst að rekstrar­umhverfi flug­félagsins verði „áfram krefjandi með verðbólgu­þrýstingi og hækkun launa­kostnaðar“ en að stjórn­endur félagsins séu „sannfærð um að eftir­spurn verði áfram mikil eftir ferða­lögum og að mikil tækifæri séu fyrir Ísland sem áfanga­stað“ eins og þegar sjáist merki í „sterku bókunar­flæði“ næstu misserin.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár