1006. spurningaþraut: Hvaða borg var nefnd eftir þýskum pólitíkusi?

1006. spurningaþraut: Hvaða borg var nefnd eftir þýskum pólitíkusi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að ofan fékkst við margt um dag­ana, stjórn­mál og fleira, en hún er látin fyrir nokkrum miss­erum. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Snákur sem hringar sig um staf er tákn hvaða fræði­greinar?

2.  Í Hrafn­kels­sögu Freys­goða snú­ast átökin sem sagan greinir frá upp­haf­lega um dýr eitt. Hvaða dýr ?

3.  Í rík­is­stjórn Íslands sitja tólf ráð­herrar. Aðeins fjórir þeirra heita aðeins einu skírn­ar­nafni. Hverjir eru það? Nefna þarf alla fjóra.

4.  Donald Trump hefur algengt milli­nafn sem hann notar sjaldan eða aldrei. Hvað er það?

5.  Afmæl­is­dagur hvers var val­inn sem dagur íslenskrar nátt­úru þegar fyrst var haldið upp á dag­inn 2010?

6.  Höf­uð­borg Norður Dakota-ríkis í Banda­ríkj­unum var stofnuð 1872 og kölluð Edwinton eftir ein­hverjum járn­braut­ar­kóngi. Árið eftir, 1873, var borgin hins vegar skírð upp og fékk þá nafn af þýskum stjórn­mála­manni, því for­ráða­menn borg­ar­innar vildu lokka þýska inn­flytj­endur til borg­ar­innar. Hvað hefur þessi borg heitið síðan?

7.  Efni nokk­urt er unnið fyrst og fremst úr tveimur jurtum sem heita á lat­nesku fræði­máli „eryt­hroxylum coca“ og „eryt­hroxylum novograna­tense“. Hvaða efni er það?

8.  Sadismi svo­kall­aður er kenndur við franskan rit­höf­und sem hét Sade. Hvaða aðals­tit­ill fylgir yfir­leitt nafni hans?

9.  Í hvaða hafi eru Asor-eyjar?

10.  Með hvaða fót­boltaliði lék Gylfi Sig­urðs­son áður en hann hvarf af sjón­ar­svið­inu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða stað má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lækn­is­fræði.

2.  Hest.

3.  Bjarni Bene­dikts­son, Jón Gunn­ars­son, Katrín Jak­obs­dóttir, Svandís Svav­ars­dóttir.

4.  John.

5.  Ómars Ragn­ars­sonar.

6.  Bismarck.

7.  Kókaín.

8.  Mark­greifi.

9.  Atl­ants­hafi.

10.  Everton.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Guðrún Ögmunds­dóttir.

Á neðri má sjá Hafn­ar­fjörð!

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár