1005. spurningaþraut: Óskar bæði fyrir leik og skrif?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan? Athugið að þið eruð eflaust van­ari því að sjá hann nokkru eldri og ekki eins hár­prúðan og þarna sést.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tvö af nyrstu ríkjum Banda­ríkj­anna heita sama nafni, nema annað er kennt við norður og hitt suður. Hvað heita þau bæði tvö?

2.  Milli hvaða tveggja fyr­ir­bæra er svo­nefnt vél­inda?

3.  Hvað hefur vakið sér­staka athygli í sam­bandi við leik­ritið Marat/Sade sem nú er sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu af leik­flokknum LabLoka?

4.  Hver leik­stýrir verk­inu?

5.  Hvað heitir næst­lengsta hvala­teg­undin sem nú syndir um sjó?

6.  Einar Bergur Ingv­ars­son heitir rétt tæp­lega fer­tugur við­skipta­fræð­ingur sem á von á sínu öðru barni í næsta mán­uði. Sú stað­reynd hefur vakið nokkra athygli en það verður að segj­ast að athyglin er ekki bein­línis vegna Einars Bergs, heldur vegna þess að ... hvað?

7.  Hvað nefn­ast — nákvæm­lega! — þeir þýsku skrið­drekar sem Úkra­ínu­menn hafa óskað eftir að fá til að verj­ast Rússum?

8.  Árið 1991 úrskrif­að­ist ungur karl að nafni Sadiq Khan sem lög­fræð­ingur. Hvaða starfi gegnir hann nú?

9.  Hér er svo þriðja spurn­ingin undan rifjum Þorfinns Ómars­sonar um kvik­myndir: Hver af eft­ir­töldum kvik­mynda­leik­urum er sá eini sem hefur fengið Ósk­arsverð­laun bæði fyrir leik og hand­rits­skrif? Er það Woody Allen — Humprey Bogart — Kenneth Branagh — Matt Damon — Ava Gardner — Emma Thompson — Orson Wells?

10.  Hvað gerði Gavrilo Princip sér til frægðar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hvaða sort er þessi hvutti?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Norður-Dakota og Suður-Dakota. Svarið getur ekki verið Norður- og Suður-Karólína þar sem þau eru ekki meðal nyrstu ríkj­anna.

2.  Munns og maga. Koks og maga er vita­skuld rétt líka.

3.  Leik­ar­arnir eru allir af elstu kyn­slóð leik­ara.

4.  Rúnar Guð­brands­son.

5.  Lang­reyður.

6.  Kona hans og barns­móðir er Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

7.  Leopard 2.

8.  Borg­ar­stjóri í London.

9.  Emma Thompson.

10.  Myrti rík­is­arfa Aust­ur­ríkis-Ung­verja­ands 1914.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Nikita Krjúsjov leið­toga Sov­ét­ríkj­anna eftir daga Stalíns.

Никита Хрущев

Á neðri mynd­inni er snotur hvutti af sort­inni labrador.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár