Þorsteinn hafnar aðdróttunum um „mútustarfsemi“ í Þorlákshöfn

Þor­steinn Víglunds­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Horn­steins og tals­maður þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg, hafnar öllum ávirð­ingum um að fyr­ir­tækið sé að bera fé á íbúa Þor­láks­hafnar til að afla fyr­ir­tæk­inu stuðn­ings við fyr­ir­hug­aða verk­smiðju í bænum. Hann upp­lýsir í yfir­lýs­ingu að Heidel­berg hafi greitt 3,5 millj­ónir í styrki til félaga­sam­taka í Þor­láks­höfn.

Þorsteinn hafnar aðdróttunum um  „mútustarfsemi“ í Þorlákshöfn
Hafnar ásök­unum um mútu­starf­semi Þor­steinn Víglunds­son, for­stjóri Horn­steins og tals­maður Heidel­bergs, hafnar ásök­unum um mútu­starf­semi í Þor­láks­höfn. Fyr­ir­tækið styrkti félaga­sam­tök í bænum um 3,5 millj­ónir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þor­steinn Víglunds­son, tals­maður þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg og for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Horn­steins sem Heidel­berg á meiri­hluta í, segir að frétta­flutn­ingur Heim­ild­ar­innar um fyr­ir­hug­aða „möl­un­ar­verk­smiðju í bænum séu „frá­leitar“. Þetta segir hann í yfir­lýs­ingu til Heim­ild­ar­innar.

„Fyr­ir­tækið hafnar alfarið grófum aðdrótt­unum um nokk­urs konar mútu­starf­semi eða óeðli­leg sam­skipti í því skyni að kaupa sér vel­vild eða fyr­ir­greiðslu.“
Þor­steinn Víglunds­son,
for­stjóri Horn­steins og tals­maður Heidel­berg á Íslandi

Þýska fyr­ir­tækið sem Þor­steinn vinnur fyrir vill byggja verk­smiðju í Þor­láks­höfn sem á að mala móberg fyrir sem­ents­gerð og reynir nú að koma þess­ari fram­kvæmd á kopp­inn. Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, segir við Heim­ild­ina að fram­kvæmdin muni alltaf fara í íbúa­kosn­ingu þar sem kjós­endur í Ölfusi ákveða hvort af fram­kvæmd­inni verður. 

Eins og Heim­ildin fjall­aði um í dag og í vik­unni bauð Heidel­berg félaga­sam­tökum í Þor­láks­höfn fjár­styrki í des­em­ber. Lúðra­sveitin í bænum hafn­aði styrknum en björg­un­ar­sveitin þáði hann. Það sem virð­ist sér­stak­lega fara fyrir brjóstið á Þor­steini eru þau orð stjórn­ar­for­manns lúðra­sveit­ar­innar, Ágústu Ragn­ars­dóttur, að styrkt­ar­boðið hafi virkað eins og ein­hvers konar til­raun til að bera fé á fólk. „Þetta var mjög óþægi­legt og maður vill hrein­lega ekki trúa því að þetta séu ein­hverjar mútur. Mér fannst þetta mjög, mjög skrítið.  Við höfum aldrei lent í því áður að vera boð­inn pen­ingur fyrir ekki neitt,“ sagði Ágústa við Heim­ild­ina en lúðra­sveitin hafn­aði styrknum. 

Í yfir­lýs­ingu sinni upp­lýsir Þor­steinn að Heidel­berg hafi veitt styrki upp á sam­tals 3,5 millj­ónir króna til félaga­sam­taka í Þor­láks­höfn.  Ekki liggur fyrir hverjir þáðu styrk­ina, fyrir utan björg­un­ar­sveit­ina. 

Þor­steinn segir að það sé frá­leitt að mark­mið Heidel­berg með styrkj­unum sé að reyna að hafa óeðli­leg áhrif á skoð­anir fólks á fyr­ir­tæk­inu.  „Fyr­ir­tækið hafnar alfarið grófum aðdrótt­unum um nokk­urs konar mútu­starf­semi eða óeðli­leg sam­skipti í því skyni að kaupa sér vel­vild eða fyr­ir­greiðslu. Enginn fótur er fyrir slíkum vanga­veltum enda frá­leitt að verið sé að „bera fé“ á lúðra­sveit til að hafa áhrif á skoð­anir fólks, líkt og mið­ill­inn heldur fram í umfjöllun sinni. Það er alþekkt að fyr­ir­tæki styðji við ýmis verk­efni í nágrenni sínu og fá dæmi um að því sé haldið fram að slíkar styrk­veit­ingar miði að því að hafa óeðli­leg áhrif á skoð­anir fólks á ein­stökum verk­efnum.“

Yfir­lýs­ing Þor­steins til Heim­ild­ar­innar fer hér á eftir í heild sinni: 

„Frá­leitur frétta­flutn­ingur af starf­semi í Þor­láks­höfn

 Vegna fréttar Heim­ild­ar­innar þann 16. og 17. jan­úar sl. sem snertir fyr­ir­hug­aða starf­semi Heidel­berg Mater­i­als í Þor­láks­höfn er rétt að vekja athygli á nokkrum atriðum. 

 Heidel­berg Mater­i­als hefur áform um að hefja starf­semi í Þor­láks­höfn á næstu árum og hefur átt í góðu sam­starfi og sam­tali við fjöl­marga aðila við und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins, þ.á m. Íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Bæði Heidel­berg Mater­i­als og Horn­steinn starfa sam­kvæmt skýrum siða­reglum og reglum um hátt­semi í starfs­um­hverfi sínu. Frá upp­hafi hefur það verið skýrt að mik­ill vilji er til að vinna í sátt við sam­fé­lagið í Þor­láks­höfn og sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð. Heidel­berg Mater­i­als hafði því í lok árs 2022 frum­kvæði að því að styrkja nokkur sam­fé­lags­verk­efni í bæj­ar­fé­lag­inu, án nokk­urra kvaða eða aug­lýs­inga, og voru nokkur sam­fé­lags­tengd verk­efni styrkt um sam­tals 3,5 millj­ónir króna. 

Fyr­ir­tækið hafnar alfarið grófum aðdrótt­unum um nokk­urs konar mútu­starf­semi eða óeðli­leg sam­skipti í því skyni að kaupa sér vel­vild eða fyr­ir­greiðslu. Enginn fótur er fyrir slíkum vanga­veltum enda frá­leitt að verið sé að „bera fé“ á lúðra­sveit til að hafa áhrif á skoð­anir fólks, líkt og mið­ill­inn heldur fram í umfjöllun sinni. Það er alþekkt að fyr­ir­tæki styðji við ýmis verk­efni í nágrenni sínu og fá dæmi um að því sé haldið fram að slíkar styrk­veit­ingar miði að því að hafa óeðli­leg áhrif á skoð­anir fólks á ein­stökum verk­efnum.

Heidel­berg Mater­i­als hefur gert sitt besta til að stuðla að skýrri upp­lýs­inga­gjöf, m.a. með íbúa­fundi þar sem athuga­semdir og spurn­ingar íbúa komu fram sem og með dreif­ingu bæk­lings og opnun vef­svæðis um verk­efnið. Auk þess hafa skýr og eðli­leg skoð­ana­skipti átt sér stað víða, m.a. í fjöl­miðlum. Þetta er einmitt gert með það að leið­ar­ljósi að for­sendur verk­efn­is­ins séu öllum ljós svo fólk geti sjálft myndað sér upp­lýsta skoðun. 

Um full­yrð­ingar í frétt­inni sem snúa að fyr­ir­tækj­unum Jarðefni og Jarð­efna­iðn­aði getur und­ir­rit­aður lítið sagt. Jarð­efna­iðn­aður ehf. á óbeinan hlut í Horn­steini sem er að meiri­hluta í eigu Heidel­berg Mater­i­als.

Starf­semi Jarð­efna­iðn­aðar ehf., jarða­kaup eða önnur við­skipti sem lýst er í umfjöll­un­inni, tengj­ast hvorki starf­semi Horn­steins né starf­semi Heidel­berg á Íslandi með neinum hætti. Inn­römmun blaða­manns á meintum tengslum fyr­ir­tækj­anna tveggja geta hins vegar í besta falli flokk­ast sem kæru­leys­is­leg vinnu­brögð og eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­anum. Augljóst er að hverju verið er að ýja. Hefði blaða­maður haft fyrir því að bera þessar aðdrótt­anir undir Heidel­berg hefði fyr­ir­tækið getað upp­lýst að engin tengsl af nokkru tagi eru á milli fjár­fest­inga Jarð­efna­iðn­aðar í Ölfusi og fyr­ir­hug­aðrar upp­bygg­ingar á vegum Heidel­berg í Þor­láks­höfn.

Heidel­berg hefur átt í góðu sam­tali við sam­fé­lagið og bæj­ar­yf­ir­völd og vinnur nú að næstu skrefum, m.a. með hlið­sjón af ábend­ingum og áhyggjum sem fram hafa komið meðal íbúa. Móbergs­vinnsla í Þor­láks­höfn er risa­stórt verk­efni sem getur haft mikil jákvæð efna­hags­leg áhrif fyrir sveit­ar­fé­lagið og jákvæð lofts­lags­á­hrif, en krefst um leið tals­verðrar yfir­bygg­ingar og umsvifa. Þar skiptir öllu máli að umfjöllun sé skýr og mál­efna­leg. Það er eðli­legt og sjálf­sagt að fólk hafi mis­mun­andi skoð­anir á verk­efni sem þessu. Aðdrótt­anir og hálf­kveðnar vísur sem sýna málið í ann­ar­legu ljósi eru hins vegar engum til sóma.

                                                            Þor­steinn Víglunds­son,

for­stjóri Horn­steins og tals­maður Heidel­berg Mater­i­als á Íslandi.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vonbrigði að nýi aðhaldsmiðillinn Heimildin þolir ekki væga gagnrýni og eyðir athugasemd eins og þessari:

    "Hugrekki stjórnarformanns lúðrasveitarinnar er lofsvert. Þurfum fleiri sem þora. Heimildin lifir á þeim sem þora.

    Sjónarhorn Heimildarinnar lofaði góðu þangað til útdráttur "umfjöllunarinnar" og tonn af yfirlýsing forstjórans varð það eina sem stóð eftir. Engin yfirlýsing frá Ágústu!? 1-0 fyrir Þorsteini og krísustjórnun hans."
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Erlent fyrirtæki styrkir aðila í öðru landi bara af góðmennsku einni en tilviljun ræður að það hefur áhuga á arðbærum framkvæmdum sem eru líklegar til að valda litlum raunhagnaði en verulegu raski á ... af einskærri tilviljun líka .... nákvæmlega sama stað.

    Fyrirgefið en ef þetta er ekki að bera fé á fólk... hvað er þetta þá ? Einskær góðmennska að íslenskum sið ?

    Bullið í Þorsteini... þetta eru vel þekktar og stundaðar aðgerðir sem eru í þeim tilgangi að kaupa sér "goodwill" og refsivert í mörgum löndum.
    2
    • Ingibjörg Þorleifsdóttir skrifaði
      Mikið er ég sammála þér. Og þetta fyrirtæki er ekki starfandi í Þorlákshöfn. Það er að reyna að troða sér þangað.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár