Elliði bæjarstjóri hjálpar fyrirtæki sem selur honum hús við áhrifakaup í Ölfusi

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi á Suð­ur­landi, hefur aðstoðað þýska fyr­ir­tækið Heidel­berg og fyr­ir­tæki sem það á með íslenska námu­fyr­ir­tæk­inu Jarð­efna­iðn­aði við að reyna að kaupa sér vel­vild í Þor­láks­höfn með veit­ingu fjár­styrkja. Jarð­efna­iðn­aður er í eigu útgerð­ar­manns­ins Einars Sig­urðs­sonar. Þetta fyr­ir­tæki á líka húsið sem Elliði býr í.

Elliði bæjarstjóri hjálpar fyrirtæki sem selur honum hús við áhrifakaup í Ölfusi
Greið­andi styrks­ins Heidel­berg eða Horn­steinn Í styrkt­ar­boð­inu til lúðra­sveit­ar­innar í Þor­láks­höfn var ekki gerður neinn grein­ar­munur á Heidel­berg eða Eign­ar­halds­fé­lagið Horn­steinn greiddi styrk­inn. Einar Sig­urðs­son útgerð­ar­maður er einn af eig­endum Horn­steins en hann á fyr­ir­tæki sem selur Elliða Vign­is­syni bæj­ar­stjóra hús. Ágústa Ragn­ars­dóttir er stjórn­ar­for­maður er lúðra­sveit­ar­innar í Þor­láks­höfn. Mynd: Heimildin

Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, hefur aðstoðað þýska jarð­efna­fyr­ir­tækið Heidel­berg og íslenskt fyr­ir­tæki í eigu Einars Sig­urðs­sonar, útgerð­ar­manns í Þor­láks­höfn, við að að reyna að kaupa sér vel­vild félaga­sam­taka í sveit­ar­fé­lag­inu.

Heidel­berg, og fyr­ir­tæki sem er í sam­eig­in­legri eigu þess og Einars og ann­arra fjár­festa, Eign­ar­halds­fé­lagið Horn­steinn ehf., hafa haft sam­band við félaga­sam­tök í Þor­láks­höfn og boðið þeim pen­inga í formi fjár­styrkja. 

Þýska fyr­ir­tækið hefur fengið úthlutað lóðum í Þor­láks­höfn þar sem til stendur að byggja möl­un­ar­verk­smiðju sem á að geta fram­leitt 1 til 1,5 millj­ónir tonna af íblönd­un­ar­efni fyrir sem­ent. Eitt af því sem Heidel­berg vill gera er að vinna móberg úr Litla-Sand­felli í Þrengslum sem og úr Lamba­felli þar sem náma er fyr­ir­huguð. 

Verk­smiðja Heidel­berg er umdeild í Þor­láks­höfn en hún að vera við höfn­ina í bænum og verður sýni­leg langt að. Sumir íbúar eru hlynntir henni en aðrir ekki. „Mér finnst þetta ömur­leg­t. Á að gera Þor­láks­höfn að ein­hvers konar þunga­iðn­að­ar­bæ?“ spurði einn íbúi á Facebook.  Sumir eru hins vegar jákvæðir:  „Þetta lítur nú nokkuð vel út og skapar vinnu og tekj­ur,“ sagði annar. 

Bæjarstjórinn sendi lista með nöfnum

Fulltrúi Heidel­berg og Horn­steins hafði meðal ann­ars sam­band við lúðra­sveit­ina í Þor­láks­höfn bréfleiðis fyrir  jól, þann 22. des­em­ber, og bauð henni 500 þús­und króna fjár­styrk.  Í tölvu­póst­inum kom fram að Elliði Vign­is­son  hefði bent fyr­ir­tækj­unum á að setja sig í sam­band við lúðra­sveit­ina til að bjóða henni pen­ing­ana. „Ég fékk nafn og net­fangið þitt sent til mín frá honum Elliða Vign­is­syni, bæj­ar­stjóra í Ölfusi,“ segir í bréf­inu frá Heidel­berg og Hornsteini.

„Þetta var mjög óþægi­legt og maður vill hrein­lega ekki trúa því að þetta séu ein­hverjar mútur“
Ágústa Ragn­ars­dóttir,
stjórn­ar­for­maður í lúðra­sveit­inni í Þor­láks­höfn

Elliði segir í sam­tali við Heim­ild­ina að Heidel­berg hafi haft sam­band við hann og beðið um lista með nöfnum félaga­sam­taka og líkn­ar­fé­laga sem gætu verið mögu­legir styrk­þegar. Bæj­ar­stjór­inn segir að þetta ger­ist stundum og þá verði hann við þess­ari beiðni. Þetta hafi meðal ann­ars gerst nú fyrir jólin. „Heidel­berg leit­aði eftir upp­lýs­ingum um félaga­sam­tök, íþrótta­fé­lög og líkn­ar­fé­lög. Við sendum þeim lista með nöfnum og þá styrkja þessi fyr­ir­tæki félögin í kjöl­farið,“ segir Elliði.   

Aldrei fengið slíkt boð áður

Tölvu­bréfið var stílað á Ágústu Ragn­ars­dóttur, for­mann stjórnar lúðra­sveit­ar­innar. Hún segir við Heim­ild­ina: „Þetta var mjög óþægi­legt og maður vill hrein­lega ekki trúa því að þetta séu ein­hverjar mútur. Mér fannst þetta mjög, mjög skrítið.  Við höfum aldrei lent í því áður að vera boð­inn pen­ingur fyrir ekki neitt.“

Í póst­inum var lúðra­sveit­inni bent á að stíla reikn­ing­inn annað hvort á Heidel­berg eða á Eign­ar­halds­fé­lagið Horn­stein.  Fyr­ir­tækið Jarðefni, sem á 47 pró­senta hlut í Horn­steini, er meðal ann­ars í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Jarð­efna­iðn­aðar sem flytur út vikur úr Heklu frá Þor­láks­höfn.  Jarð­efna­iðn­aður er að stærstu leyti í eigu áður­nefnds Einars Sig­urðs­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar.  Þetta fyr­ir­tæki hefur verið að kaupa upp jarðir í Ölfusi sem eiga námu­rétt­indi í sveit­ar­fé­lag­inu. 

Elliði býr í húsi í eigu Jarðefnaiðnaðar

Ein af jörð­unum sem Jarða­efna­iðn­aður ehf. hefur keypt, í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Leð­ur­brún ehf., er Hjalli við Þor­láks­hafn­ar­veg. Eins og Heim­ildin greindi frá fyrir helgi hefur Elliði Vign­is­son búið í húsi á jörð­inni Hjalla sem er þá í eigu Jarð­efna­iðn­aðar og þeirra Einars Sig­urðs­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar.  Þegar félag Einars og Hrólfs keypti jörð­ina Hjalla fylgdu með henni námu­rétt­indi í Lamba­felli. Fyr­ir­tæki þeirra hefur einnig keypt fleiri jarðir sem eiga námu­rétt­indi í Ölfusi.  

Eitt af því sem vekur athygli er að félag Einars og Hrólfs, Jarð­efna­iðn­aður ehf., hefur einmitt verið að tryggja sér námu­rétt­indi í Lamba­felli. Þar stendur til að byggja námu  en móbergið sem Heidel­berg vill vinna í möl­un­ar­verk­smiðj­unni á einmitt meðal ann­ars að koma þaðan, eins og Kjarninn hefur fjallað um.  

Í sam­tali við Heim­ild­ina sagði Elliði að hann væri að ganga frá því að kaupa húsið, sem hefði skemmst í vatns­tjóni. „Ég er að kaupa af þeim íbúð­ar­húsið sem var metið ónýtt eftir vatns­tjón. Ég er að koma mér fyrir þarna og hef búið í bíl­skúrnum á meðan húsið hefur verið gert upp. Það varð alls­herj­ar­tjón á hús­inu. Þetta er allt í und­ir­bún­ingi og hefur tekið lengri tíma en við ætl­uðum.“ 

„Í raun og veru spara þeir sér kostnað við að rífa húsið með því að ég kaupi það af þeim“
Elliði Vign­is­son
im kaup sín á hús­inu á Hjalla

Á meðan, sagði Elliði, byggi hann í hús­inu án þess að greiða leigu þar sem litið væri svo á að pen­ing­arnir sem hann greiddi fyrir end­ur­bætur húss­ins væru ígildi leigu.  „Leigan verður bara end­ur­bæt­urnar á hús­inu. Þeir hefðu þurft að rífa húsið og í raun og veru spara þeir sér kostnað við að rífa húsið með því að ég kaupi það af þeim.“

Elliði sagði, þrátt fyrir að fyr­ir­tæki Einars og Hrólfs séu stórir hags­muna­að­ilar í sveit­ar­fé­lag­inu, að hann teldi ekki að neinir hags­muna­á­rekstrar væru á milli leigu og kaupa hans á hús­inu og starfs hans sem bæj­ar­stjóra. „Ég man ekki eftir neinum sam­þykktum eða vinnu sem ég hef gert sem teng­ist þeim. Lamba­fellið er ekki í eigu okkar, það til­heyrir bara þeim jörðum sem þeir hafa verið að kaupa. Það hefur bara ekki reynt á það. Við höfum enga samn­inga gert við þá og ekk­ert keypt af þeim. Námu­vinnsla þeirra teng­ist sveit­ar­fé­lag­inu ekki neitt. [...] Allar emb­ætt­is­færslur starfs­manna hér þola alla rýni.“

Óskaði lúðrasveitinni til hamingju með styrkinn

Í bréf­inu frá Heidel­berg til lúðra­sveit­ar­innar óskaði sem­ents­fyr­ir­tækið hljóm­sveit­inni til ham­ingju með að hafa verið valið til að fá styrk­inn, í kjöl­farið á ábend­ingu Elliða Vign­is­sonar. „Þannig er mál með vexti að Heidel­berg Mater­i­als er að veita fjár­styrk til félaga­sam­taka í Þor­láks­höfn. Ykkar félaga­sam­tök er eitt af þeim félögum sem hljóta fjár­styrk­inn í ár og óska á ég ykkur til ham­ingju með það.“

Svo var beðið um að reikn­ingur upp á 500 þús­und yrði annað hvort sendur beint til Heidel­berg eða til Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins. 

Heidel­berg hefur styrkt ÞórÞýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg hefur meðal ann­ars styrkt körfuknattslið Þórs í Þor­láks­höfn, eins og aug­lýs­ing frá fyr­ir­tæk­inu á keppn­is­treyju liðs­ins sýnir. Um er að ræða treyju sem Þór not­aði þegar liðið keppti erlendis en liðið er með aðra aug­lýs­ingu á bún­ing­unum í dag.

Styrkveitingunni var hafnað af félagsmönnum

Ágústa Ragn­ars­dóttir, stjórn­ar­for­maður lúðra­sveit­ar­innar, segir að styrk­veit­ingin hafi verið borin undir félags­menn í lúðra­sveit­inni í Þor­láks­höfn í lýð­ræð­is­legri kosn­ingu.  „Ég velti þessu styrkt­ar­boði fyrir mér í sól­ar­hring áður en ég bar þetta upp við stjórn­ina. Allir stjórn­ar­menn voru á því að þiggja ekki styrk­inn. Það sem ger­ist eftir að við tókum þetta fyrir á stjórn­ar­fundi var að bera þetta boð undir félags­menn með könnun.  Það var svo lýð­ræð­is­legur meiri­hluti fyrir því að hafna þessum styrk,“ segir Ágústa en 30 félags­menn tóku þátt í kosn­ing­unni. 

Stjórn­ar­for­mað­ur­inn segir að það sem stjórn lúðra­sveit­ar­innar þótti óþægi­legt var að verið væri að draga hana inn í „hring­iðu póli­tískrar umræðu“ með þessu styrkt­ar­boði.  „Þetta er algjört eins­dæmi í okkar sögu.“

Heidelberg ábyrgist skuldir Hornsteins

Tengsl þýska félags­ins Heidel­bergs og Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins eru mjög mikil. Norskt dótt­ur­fé­lag þýska sem­ents­ris­ans, Norcem AS, á fyr­ir­tæki á Íslandi sem heitir Heidel­berg Mater­i­als Iceland ehf. Þetta fyr­ir­tæki á svo 53 pró­senta hlut í Horn­steini á móti 47 pró­senta hluts Íslenskra jarð­efna ehf.  Fyr­ir­tæki Einars Sig­urðs­sonar og Hrólfs Ölv­is­sonar, Jarð­efna­iðn­aður ehf., er svo stærsti hlut­hafi Íslenska jarð­efna ehf. með tæpan fjórð­ungs­hlut. 

Í árs­reikn­ingi Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins fyrir árið 2021 kemur fram að tengsl Heidel­berg við eign­ar­halds­fé­lagið séu einnig þau að þýska sem­ents­fyr­ir­tækið sé í ábyrgð fyrir skuldum þess. „Þann 12. febr­úar 2019 gaf Heidel­berg Cement AG út ábyrgð að and­virði 900 millj.kr. til trygg­ingar á öllum skuldum Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins ehf. við við­skipta­banka félags­ins. Engar veð­setn­ingar eiga að hvíla á eignum félags­ins skv. ákvæðum lána­samn­ings við við­skipta­banka félags­ins,“ segir í árs­reikn­ingnum. 

Þegar horft er til þess­ara miklu tengsla þess­ara tveggja félaga er kannski ekki skrítið að Heidel­berg geri ekki sér­stakan grein­ar­mun á því í bréf­inu til lúðra­sveit­ar­innar í Þor­láks­höfn hvort félagið muni greiða henni styrk­inn.  Lúðra­sveitin geti ein­fald­lega valið hvort félagið fái reikn­ing­inn. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Elliði heppinn að búa á Íslandi. Í fyrra féll nefnilega dómur í USA þar sem opinber starfsmaður var dæmdur fyrir mútubrot vegna þess að hann tók að sér að greiða götu fyrirtækis nokkurs í þeirri trú að hann væri að ávinna sér "goodwill" fyrirtækisins og fyrirtækið staðfesti að hann hefði með athöfnum sínum áunnið sér goodwill þeirra. Svo nei... það þarf ekki að vera fjárhagslegur ávinningur til að mútur eigi sér stað.
    6
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Hreint út sagt ótrúlegt hvert þetta þjóðfélag er komið..
    3
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Í "Draumalandinu" Andra Snæs Magnasonar (2006) er einnig góð lýsing á því hvernig stór fjársterkur aðili getur lagt lítið samfélag undir sig. Það gerist einmitt svona.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár