Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
Þaf að flytja út í mars Úkra­ínsku flótta­menn­irnir sem búa í The Swan House, Svana­hús­inu, á Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr hús­inu í mars. Einn af þeim er Olga Dov­gopolova, 42 ára kona, sem missti báða for­eldra sína úr veik­indum um það leyti sem hún flúði stríðið í Úkraínu í fyrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Úkra­ínskir flótta­menn sem búið hafa í 43 hót­el­í­búðum í eigu Ölmu leigu­fé­lags við Lind­ar­götu og Vatns­stíg í miðbæ Reykja­víkur þurfa að flytja úr þeim í mars á þessu ári.  

Tveir af íbú­unum í hús­inu, Olga og Dima, sem bæði eru rúm­lega fer­tug, segja við Heim­ild­ina að þau viti ekki hvert þau muni flytja þegar þau þau þurfa að yfir­gefa húsið. Þau lýsa bæði yfir mik­illi óvissu um fram­tíð­ina þar sem þau viti ekki hvar þau munu búa næst. „Ég er hrædd um að enda á göt­unni  í dag en í gær þá átti ég allt,“ segir Olga. Dima segir að hann og kona hans viti sömu­leiðis ekki hvert þau flytji með 4 ára gamlan son sinn. „Þetta er hræði­legt fyrir okkur, við erum með lítið barn og við vitum ekki hvert við munum flytja.“

Þau Olga og Dima lentu bæði mjög illa í stríð­inu í Úkraínu …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði
GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.
„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár