Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Helmingur selds bensínlítra fer í vasa ríkissjóðs

Kostn­að­ur­inn við að eiga bíl jókst um­tals­vert um ný­lið­in ára­mót. Fyr­ir vik­ið hef­ur hlut­fall af hverj­um seld­um bens­ín­lítra sem renn­ur í rík­is­sjóð auk­ist. Lík­legt inn­kaupa­verð hef­ur far­ið lækk­andi und­an­farna mán­uði en hlut­deild olíu­fé­lag­anna hef­ur auk­ist.

Helmingur selds bensínlítra fer í vasa ríkissjóðs
Aukinn kostnaður Það er dýrt að eiga bíl á Íslandi í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Viðmiðunarverð á bensíni hækkaði um 1,8 krónur á lítra milli desember og janúarmánaðar og var 317,6 krónur á lítra um miðjan þennan mánuð. Alls fara 157,77 krónur, eða 49,7 prósent, af hverjum seldum bensínlítra til íslenska ríkisins í eldsneytisskatta eftir hækkanir á þeim sem tóku gildi um síðustu áramót. Þau gjöld eru nú um 7,2 krónum hærri en þau voru um miðjan síðasta mánuð og hafa því hækkað samanlagt um næstum fimm prósent. Án þeirrar hækkunar hefði bensínlítrinn lækkað um 5,4 krónur á lítra milli mánaða. 

Þetta má lesa út úr nýrri bensínvakt Heimildarinnar. 

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virðisaukahlutfallið sem leggst á bensínlítrann 19,35 prósent, almenna bensíngjaldið hækkaði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um áramót og sérstaka bensíngjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækkaði kolefnisgjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. 

Ýmis gjöld hækkuð um áramót

Samkvæmt fjárlögum ársins 2023 munu tekjur ríkissjóðs af bílaeign landsmanna aukast umtalsvert milli ára. Þar er áætl­­­­­­­að að tekjur rík­­­­­­­is­­­­­­­sjóðs vegna vöru­gjalda af öku­tækjum auk­ist um 2,9 millj­­­­­arða króna og verði 8,4 millj­­­­­arðar króna, ef horft er annars vegar á áætlaðar tekjur ríkissjóðs í fyrra og hins vegar þær tölur sem settar erum fram í samþykktum fjárlögum.

Vöru­­­­­gjöld af bens­íni aukast um 640 milljónir króna og verða 9,9 millj­­­­­arðar króna, kolefn­is­­­­­gjöld aukast um 660 millj­­­­­ónir og verða 7,6 millj­­­­­arðar króna og olíugjaldið eykst um 2,2 millj­­­­­arða króna og skilar um 14,8 millj­­­­­arðar króna. 

Kíló­­­­­metra­­­­­gjald mun skila rúm­­­­­lega 1,6 millj­­­­­arð króna í rík­­­­­is­­­­­sjóð og bif­­­­­reiða­­­­­gjöld 10,5 millj­­­­­örðum króna.

Sístækkandi hópur bíleigenda greiðir þó mjög lítið fyrir notkun vegakerfisins þar sem tekjur ríkissjóðs af svokölluðu vistvænum bílum – aðallega rafbílum og tengiltvinnbílum – eru afar takmarkaðar. Breytingum á bifreiðagjaldi, vörugjaldi og losunarmörkum í ár var ætlað að marka fyrstu skrefin að nýju kerfi og stuðla að því að fleiri bíleigendur taki þátt í óhjákvæmilegum kostnaði við vegakerfið.

Innkaupaverðið hefur farið lækkandi

Líklegt innkaupaverð á bensínlítra, sem ræðst annars vegar á heimsmarkaðsverði á olíu og hins vegar á gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadal, hefur farið lækkandi undanfarna mánuði. Um miðjan janúar var það 91,40 krónur á lítra sem er 38 prósent lægra verð en í júlí í fyrra, þegar innkaupaverðið náði sinni hæstu krónutölu í sögunni. Alls hefur innkaupaverðið lækkað um 57,1 krónu frá þeim tíma. Verðið sem landsmenn greiða við dæluna hefur hins vegar einungis lækkað um 23,4 krónur á þessu tímabili. 

Hlutur olíufélaganna í hverjum seldum lítra hefur að sama skapi vaxið mikið síðustu mánuði. Hann er nú 68,4 krónur, sem þýðir að 21,5 prósent af hverjum seldum lítra fer til þeirra. Í júní 2022 var það hlutfall tæplega ellefu prósent. 

Að hluta til má rekja þessa þróun til þess að olíufélögin héldu að sér höndum framan af síðasta ári og veltu ekki hækkunum á heimsmarkaðsverði á olíu af fullum krafti út í verðlag. Frá síðasta sumri breyttist þessi þróun og með því gátu olíufélögin endurheimt, að minnsta kosti að hluta, þá álagningu sem þau gáfu eftir á fyrri hluta síðasta árs. 

Styttist í flýti- og umferðargjöld

Von er á fleiri hækkunum á þá sem keyra um á bílum á næstu árum. Ráðamenn hafa lengi boðað veggjöld víða til að standa undir nauðsynlegum samgönguframkvæmdum og á höfuðborgarsvæðinu styttist í að svokölluð flýti- og umferðargjöld leggist á. Þau eiga að að fjármagna helming kostnaðar vegna samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið, þar sem stærsti einstaki kostnaðarliðurinn er hin svokallaða Borgarlína.  

Til stóð að leggja fram frumvarp um þau í nóvember í fyrra og áætlanir gerðu ráð fyrir að þau yrðu lögð á í ár.  Því var þó frestað og nú stendur til að frumvarpið líti dagsins ljós í mars næstkomandi. Gangi það eftir eiga gjöldin að leggjast á frá byrjun næsta árs. Nú er reiknað með, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, að gjöldin skili 74,6 milljörðum króna inn í verkefnið á tíu árum. 

Lítið hefur heyrst af útfærslu þess­­ara gjalda. Ef upp­hæð­inni er skipt jafnt yfir árin frá og með 2024 og út samn­ings­tím­ann þá nema árlegar tekjur af flýti- og umferð­ar­gjöldum 7,5 millj­örðum króna. Það má því búast við að útfærsla þeirra verði umdeild. 

Margt bendir til þess að verk­efnið sé skammt á veg komið en 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið eftir sér­fræð­ingum til að móta gjald­tök­una. Í þeirri aug­lýs­ingu sagði meðal ann­ars að mark­miðið sé „að allir helstu þættir í nýju kerfi sam­göngu­gjalda verði gang­settir fyrir árs­lok 2024“.

Gögn og aðferðafræði

Hér að ofan er birt niðurstaða útreikninga og áætlunar á því hvernig verð á lítra af bensíni skiptist milli aðila.

  • Viðmiðunarverð er fengið frá hugbúnaðarfyrirtækinu Seið ehf. sem meðal annars heldur úti síðunni Bensínverð.is og fylgst hefur með bensínverði á flestum bensínstöðum landsins daglega síðan 2007. Miðað er við næstlægstu verðtölu í yfirlitinu til að forðast að einhverju leyti áhrif tímabundinnar verðsamkeppni á allra lægsta verð. Viðmiðunarverðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíufélagsins en reikna má með að raunin sé meðaltalið af öllu seldu bensíni á landinu.
  • Hlutur ríkisins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlutfallslegir. Upplýsingar um breytingar á skattalögum eru fengnar frá Viðskiptaráði sem fylgst hefur með slíkum breytingum um árabil.
  • Líklegt innkaupaverð er reiknað útfrá verði á bensíni til afhendingar í New York-höfn í upphafi mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands. Í þessum útreikningum kann að skeika nokkru á hverjum tímapunkti vegna lagerstöðu, skammtímasveiflna á markaði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bensíni til afhendingar í Rotterdam, en verðupplýsingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagnaveitum. Mismunur á verði í New York og Rotterdam er þó yfirleitt mjög lítill.
  • Hlutur olíufélags er loks reiknaður sem afgangsstærð enda haldgóðar upplýsingar um einstaka kostnaðarliði olíufélaganna ekki opinberar. Hafa ber í huga að þar sem viðmiðunarverð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill einhverju hærri sé litið til heildarviðskipta með bensín á Íslandi.

Verðupplýsingar miðast við verðlag hvers tíma. Gögnin eru uppfærð mánaðarlega í kringum 15. hvers mánaðar. Fyrirvari er gerður um skekkjumörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreiknaða liði.

 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Þórður Snær Júlíusson
5
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt
9
Viðskipti

Vext­ir þriðj­ungs allra óverð­tryggðra lána til heim­ila lands­ins losna brátt

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar er sagt frá því að meiri­hluti eft­ir­stand­andi óverð­tryggðra lána á föst­um vöxt­um munu koma til end­ur­skoð­un­ar á næstu miss­er­um. Frá og með júlí og til og með ág­úst á næsta ári munu vext­ir losna á óverð­tryggð­um lán­um fyr­ir sam­an­lagt 410 millj­arða króna. Það er rúm­lega þriðj­ung­ur af öll­um óverð­tryggð­um lán­um til heim­ila lands­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
4
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
6
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
7
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
8
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu