Björgunarsveitin í Þorlákshöfn þáði styrk frá þýska sementsrisanum

Skipulags­stofnun hefur ákveðið að bygging mölunar­verksmiðju þýska sements­fyrir­tækisins Heidelberg þurfi að fara í umhverfismat. Meirihluti Sjálfstæðis­flokksins í sveitar­stjórn taldi hins vegar ekki þörf á því að framkvæmdin færi í umhverfismat. Björgunar­sveitin í Þorláks­höfn, Mannbjörg, er einn af þeim aðilum sem þáði fjárstyrk frá Heidelberg fyrir jól, í aðdrag­anda íbúa­kosningar um framkvæmdina.

Fyrrverandi ráðherra leiðir verkefnið
Fyrr­ver­andi ráð­herra leiðir verk­efnið Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Við­reisnar, er sá sem farið hefur fyrir því að kynna bygg­ingu verk­smiðj­unnar í Ölfusi, meðal ann­ars á íbúa­fundi í Versölum í Þor­láks­höfn í fyrra. Hann er for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Horn­steins, sam­starfs­að­ila Heidel­berg á Íslandi, og tals­maður þýska fyr­ir­tæk­is­ins hér á landi.

Skipulags­stofnun hefur ákveðið að bygging mölunar­verksmiðju þýska sements­fyrir­tækisins Heidelberg í Þorláks­höfn þurfi að fara í mat á umhverfis­áhrifum. Meirihluti Sjálfstæðis­flokksins í sveitar­stjórn Ölfuss taldi ekki sérstaka þörf á að framkvæmdin færi í sérstakt umhverfismat en Skipulags­stofnun hefur komist að annarri niður­stöðu. 

Í niður­stöðu Skipulags­stofnunar segir að líklegt sé að bygging mölunar­verksmiðjunnar muni hafa veruleg umhverfis­áhrif: „Á grund­velli fyrir­liggjandi gagna er það niður­staða Skipulags­stofnunar að fyrir­huguð framkvæmd kann að hafa umtals­verð umhverfis­áhrif, sbr. þau viðmið sem tilgreind eru í 2. viðauka 6 laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Því skal framkvæmdin háð mati á umhverfis­áhrifum.“

Verksmiðjan á að vera staðsett inni í bænum, við höfnina, og á að framleiða allt að 3 milljónir tonna af efni í steypu á ári, eins og segir í niður­stöðunni. „Byggt verður í tveimur áföngum með tilheyrandi aðstöðu við aðliggjandi höfn og innviða­uppbyggingu fyrir starfsemina. Ráðgert er að í fyrsta áfanga verði …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • L
    Logi skrifaði
    Takk fyrir góða grein. Spillingin á íslandi er orðin nokkuð gagnsæ. Það er skiljanlegt þar sem menn komast upp með flest sem þeir vilja, sbr laxeldi og útgerð. Alltaf sama minstrið er, bæjarstjórarnir eru málpípan menn sem selja hvað sem er vegna ágirndar sinnar sem þeir reyndar kalla framfarir. Á toppi spillingarinnar er fjármálaráðherra og hans flokkur sem tjaldar skjaldborg yfir herlegheitin og enn skítnar ísland út.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðar­menn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi

Einar Sigurðsson og Hrólfur Ölvisson námu­fjárfestar hafa fjölþættra hagsmuna að gæta af því að mölunar­verksmiðja Heidelberg rísi í Ölfusi og að fyrir­tækið fái að vinna efni af hafsbotni við Landeyjar. Elliði Vignisson segir tilgátur um hagsmuna­árekstra tengda námu­fjár­festunum lang­sóttar. Harðar deilur eru um verksmiðjuna og efnis­tökuna.

8 mín. lestur

FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi

Lögmanns­stofan Logos sendi tölvupóst fyrir hönd Heidelberg með beiðni um að starfs­maður Hafrann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúafundi í Ölfusi. Starfs­maðurinn hafði unnið rannsókn um áhrif námu­vinnslu fyrir­tækisins á fiskimið og hrygningar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upplýsa almenning segir forstjórinn.
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagnrýnir „fordæma­lausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi

Hafrann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagnrýna umsögn um fyrir­hugaða efnistöku þýska sements­fyrir­tækisins Heidelberg í Ölfusi. Fyrir­tækið ætlar að taka tæp 12 þúsund tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 fullestuðum flutninga­bílum, af hafsbotni. Hafró telur framkvæmdina geta haft slæm áhrif á fiskistofna sem hrygna á svæðinu og að efnis­takan geti breytt strand­lengjunni til frambúðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár