Stærsti hagsmunaaðili laxeldis á Íslandi ákveður að stýra ekki fjölskyldufyrirtækinu

Stærsti eig­andi og hags­mun­að­ili í íslensku lax­eldi Gustav Magnar Witzøe, eig­andi Salmar, hefur gefið það út opin­ber­lega að hann muni ekki stýra fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu. Fjöl­miðlar í Noregi slá mál­inu upp sem tals­verðum tíð­indum.

Stærsti hagsmunaaðili laxeldis á Íslandi ákveður að stýra ekki fjölskyldufyrirtækinu
Stýrir ekki Salmar Gustav Magnar Witzøe mun ekki koma að því í fram­tíð­inni að stýra Salmar, stærsta eig­anda Arnarlax á Bíldudal og öðru stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi. Frá þessu er greint í norskum fjöl­miðlum í dag.

Stærsti eig­andi og hags­mun­að­ili í íslensku lax­eldi, Norð­mað­ur­inn Gustav Magnar Witzøe, mun í fram­tíð­inni ekki koma að því að stýra fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Salmar AS. Þetta fyr­ir­tæki er stærsti hlut­hafi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax á Bíldudal og er Gustav Magnar stærsti eig­andi Salmar AS.

Norskir fjöl­miðlar greina frá þessum tíð­indum í dag og þykja þau stór en Gustav Magnar er rík­asti maður Noregs vegna eign­ar­halds síns á Salmar. 

Stærst á Íslandi, næststærst í heimi

Salmar er næst stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi á eftir norska félag­inu Mowi sem nýlega eign­að­ist Arctic Fish á Ísafirði. Gustav Magnar Witzøe á nærri helm­ings­hlut í fyr­ir­tæk­inu í gegnum fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Kverva AS. Faðir hans færði hlut­inn í Salmar til hans árið 2006, þegar hann var ein­ungis 12 ára gam­all. 

„Með auð­lind­skatt­inum og þeim aðstæðum sem eru hér núna, þá er hag­stæð­ara að fara til ann­arra landa“
Gustav Witzøe
stofn­andi Salmar AS sem er eig­andi Arnarlax á Bíldudal

Fjöl­miðlar í Noregi hafa lengi haft mik­inn áhuga á Gustav Magnar Witzøe og lífi hans enda hefur hann verið á list­anum yfir auð­ug­ustu Norð­menn­ina um ára­bil. Einkalíf hans hefur einnig vakið athygli en hann hefur kosið að starfa sem módel frekar en að vinna í lax­eld­is­fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar þó svo að hann hafi sann­ar­lega reynt fyrir sér þar. 

Í fyrra fram­leiddi Arnarlax, sem kall­ast Icelandic Salmon 11.563 tonn af eld­is­laxi í sjó­kvíum. Þetta var tæp­lega 26 pró­sent af heild­ar­fram­leiðsl­unni í sjó­kvía­eldi á Íslandi en hún var 44.504 tonn hér á landi í fyrra. 

Tvö stærsu lax­eld­is­fyr­ir­tæki heims stór á ÍslandiTvö stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi eru tveir stærstu hags­mun­að­il­arnir í lax­eldi á íslandi. Þetta eru Salmar AS, stærsti hlut­hafi Arnarlax á Bíldudal, og Mowi, eig­andi Arctic Fish á Ísafirði.

Sonurinn ætlar bara að vera eigandi en ekki stjórnandi

Það er faðir hans og nafni, sem jafn­framt er stofn­andi Salmar, sem segir frá þess­ari ákvörðun í dag. Norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv segir frá mál­inu undir fyr­ir­sögn­inni: „Gustav Witzøe skipu­leggur fram­tíð Salmar án son­ar­ins í stjórn­enda­hlut­verki hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu,“ og vísar til við­tals sem birt­ist við hann í sjáv­ar­út­vegs­blað­inu Intra­fish í dag. „Ég á son sem hefur verið alveg skýr með það að til fram­tíðar sér hann sjálfan sig í virku eig­enda­hlut­verki, frekar en að vera þátt­tak­andi í fram­leiðsl­unni, líkt og ég hef verið. Svo erum við með frá­bært starfs­fólk. Það mun þá bara fá sín tæki­færi,“ segir Gustav Witzøe við Intra­fish sem hreykir sér af því að hafa náð við­tali við hann þar sem veiti þau sjaldan. Hann var lengi for­stjóri Salmar en er nú stjórn­ar­for­maður félags­ins. 

Í við­tali við Intra­fish stað­festir Gustav Magnar að hann muni ekki starfa sem stjórn­andi hjá Salmar í fram­tíð­inni. „Dagleg stjórnun á Salmar er í góðum höndum hjá því dug­mikla fólki sem stýrir félag­inu. Ég hef notið þess mjög að fá að reyna mig í verk­efnum í allri virð­is­keðj­unni, meðal ann­ars bæði við að slátra fiski og reykja hann, en fram­tíð­ar­hlut­verk mitt verður að vera eig­andi í gegnum fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Kverva AS.“

Gustav Magnar Witzøe býr í Þránd­heimi í dag og starfar sem módel sam­hliða því að halda utan um eignir sem gera hann að rík­asta manni Noregs. 

Samkvæmt þessu mun Gustav Magnar því ekki verða einn af stjórn­endum eig­anda stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis á Íslandi í náinni fram­tíð. Salmar er hins vegar komið til að vera á Íslandi. 

Stofn­and­inn og faðir stærsta eig­and­ansGustav Witzøe er stofn­andi Salmar AS en hann arf­leiddi son af hluta­bréfum sínum í félag­inu árið 2006.

Faðirinn segir hagstæðara að fara til Íslands

Faðir Gustav Magnar Witzøe segir í við­tal­inu við Intra­fish að það sé mögu­lega hag­stæð­ara fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tæki eins og Salmar As að stunda lax­eldi í öðrum löndum en í Noregi. Ástæðan er sá hái auð­linda­skattur sem verið hefur inn­leiddur á sjó­kvía­eldi í Noregi. Þessi skattur hefur verið harð­lega gagn­rýndur af norskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum síð­ast­liðna mán­uði. 

Í við­tal­inu segir Gustav Witzøe um þetta að aðstæður fyrir lax­eldi í sjó­kvíum í Noregi séu ein­fald­lega ekki hag­stæðir grein­inni: „Með auð­lind­skatt­inum og þeim aðstæðum sem eru hér núna, þá er hag­stæð­ara að fara til ann­arra landa [...] Skotland er land sem liggur nálægt. Við erum með starf­semi í Skotlandi og eigum 50 pró­sent í næst stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu þar og einnig á Íslandi. En við vitum auð­vitað ekki hvernig þetta endar.“

 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár