Þessi grein birtist upphaflega á Kjarnanum fyrir meira en 2 árum.

Eigum að flytja inn þekkingarstarfsmenn

Sig­ur­lína V. Ingvars­dótt­ir vill laða þekk­ing­ar­starfs­menn hing­að til lands. „Það er gott að búa hérna, sam­fé­lag­ið er ör­uggt og ég held að þarna séu sókn­ar­færi fyr­ir þekk­ing­ar­geir­ann, að ná sér í þetta starfs­fólk.“

Eigum að flytja inn þekkingarstarfsmenn
Sigurlína V. Ingvarsdóttir situr í stjórnum smærri og stærri fyrirtækja og segir mikilvægt að fá fjölbreyttar raddir að borðinu. Hún vill að Ísland nýti tækifærin sem felast í núverandi efnahagsástandi og laði til sín þekkingarstarfsmenn erlendis frá.

Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir er nýlega komin heim eftir 14 ára farsælan feril í sem framleiðandi tölvuleikja í Svíþjóð, Kanada og Bandaríkjunum. Hún kemur inn í íslenskt viðskiptalíf með víðtæka stjórnunarreynslu og segir að nú sé lag að laða hingað til lands þekkingarstarfsmenn.

Sig­ur­lína er í við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ing­ar. Í blað­inu er sjónum sér­stak­lega beint að fjöl­breytni, jafn­rétti og því hvernig unnt er að nýta hæfni og krafta breið­ari hóps í við­skipta­líf­inu, ekki síst í stjórnum og stjórn­un­ar­stöð­um, en ekki bara hæfni og krafta þeirra sem eru líkir þeim sem stýra fyr­ir.

Varasamt að of þröngir eða einsleitir hópar taki stórar ákvarðanir

Hún bendir á í við­tal­inu að það sé vara­samt að of þröngir eða eins­leitir hópar taki stórar ákvarð­an­ir, enda byggir ákvarð­anir ein­stak­linga ávallt á reynslu þeirra sjálfra að ein­hverju leyti. Fólk geti ekki end­ur­speglað reynslu sem það hefur ekki. Þá segir hún mik­il­vægt að nýta þá stöðu sem skap­ast hefur með upp­sögnum stórra tækni­fyr­ir­tækja á hæfu starfs­fólki. Tæki­færi geti falist í því fyrir Ísland að laða þekk­ing­ar­starfs­menn hingað til lands.

Áskorun sem stjórnarmenn og aðrir leiðtogar í viðskiptalífinu standi frammi fyrir telur hún tvíþætta. „Ögrunin fyrir stjórnir fyrirtækja er hvernig sinnum við samfélagslegri ábyrgð gagnvart neytendum samhliða því að nýta þau tækifæri sem sérstaða Íslands veitir. Ég held að við þurfum að vera annars vegar meðvituð um áskoranirnar en líka reyna að sjá tækifæri í þessu,“ segir Sigurlína.

[links]Hún nefnir sem dæmi nýsköpunarfyrirtæki sem reiða sig mikið á þekkingarstarfsmenn.„Nú er það þannig að stórfyrirtæki á til dæmis tæknimarkaði, fyrirtæki eins og Facebook og Google, eru mörg hver búin að setja ráðningarstopp vegna kröfu um aukna arðsemi eða jafnvel segja upp fólki. Tæknifyrirtæki sem hafa verið með þúsundir starfsmanna hafa verið að skera talsvert niður. Þarna er hópur af fólki, mjög hæfu fólki, sem kannski hefur misst vinnuna og það er þörf fyrir þetta vinnuafl á Íslandi.“

Sóknarfæri fyrir þekkingargeirann

Ísland sem samfélag hafi upp á ótrúlega margt að bjóða fyrir þennan hóp að mati Sigurlínu. „Það er gott að búa hérna, samfélagið er öruggt og ég held að þarna séu sóknarfæri fyrir þekkingargeirann, að ná sér í þetta starfsfólk. Spennan á þessum markaði, hámenntuðu sérfræðinganna og forritara, hún hefur verið mikil mjög lengi. Nú þegar þessi stóru fyrirtæki og mörg smærri eru eru að losa sig við starfsfólk þá er lag fyrir okkur að sækja þetta fólk.“

Mikil samkeppni er um starfsfólk í tölvuleikjageiranum að sögn Sigurlínu, geira sem hún þekkir best. „Það hefur þurft að sækja mikið af sérfræðingum og koma með þekkingu þeirra til Íslands. Auðvitað hefur orðið til líka mjög mikið af íslenskum sérfræðingum en það er líka bara gott fyrir öll samfélög að fá inn nýtt blóð. Fá inn fólk sem kemur úr öðru umhverfi, frá öðrum fyrirtækjum, hugsar öðruvísi og kemur með ferskar hugmyndir.“

„Hér er nóg pláss“

Hún bendir á að hingað komi margt fólk í þjónustustörf, til dæmis í ferðaþjónustu, en að það sé gott fyrir samfélagið að sækja líka fólk í fleiri geira.

„Hér er nóg pláss, það er kannski ekki eins mikið framboð af húsnæði eins og þyrfti, en að því gefnu að okkur lánist að byggja nóg þá eigum við að bjóða fólk alls staðar að velkomið hingað. Hér er virkilega gott að búa, það er dásamlegt að vera með börn á Íslandi, þau geta verið frjáls. Ég hefði aldrei gefið dóttur minni strætókort og leyft henni að vera frjáls í Bandaríkjunum. Það að vera kjörkuð og óhrædd við að láta á sig reyna, það kemur úr umhverfi okkar og það gerir það að verkum að börnin okkar verða sjálfstæð og fær um að spreyta sig. Ég held að það sé dýrmætt og við þurfum að gefa fleirum tækifæri á að upplifa það að búa í svona umhverfi.“

Viðtalið við Sigurlínu má lesa í heild sinni í áramótablaði Vísbendingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Siðferðisspurningar vakna vegna uppbyggingar Andra og Birgis
4
Fréttir

Sið­ferð­is­spurn­ing­ar vakna vegna upp­bygg­ing­ar Andra og Birg­is

Fjár­fest­ar sem eru sak­að­ir um að hafa milli­göngu um iðn­að­ar­njósn­ir fyr­ir millj­arða­mær­ing­inn Björgólf Thor Björgólfs­son vilja reisa þétt­býlt hverfi í um tveggja kíló­metra fjar­lægð frá vatns­vernd­ar­svæði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Svo virð­ist sem eng­in krafa sé uppi um sið­ferði fjár­festa þeg­ar kem­ur að Kópa­vogs­bæ.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu