Fann ævistarfið óvænt í blómabúð

Danil hefur unnið í blóma­búð í átta ár og sér fyrir sér að vinna alltaf með blómum.

Fann ævistarfið óvænt í blómabúð

Ég hef unnið í átta ár í Blóma­torg­inu, þar sem ég er versl­un­ar­stjóri. Eig­and­inn lést nýlega, þann 28. des­em­ber. Þannig að það er smá óvissa hér í búð­inni en við sjáum hvernig fer. 

Vill standa sig eftir fráfall eigandans

Eig­and­inn hét Sigurður Þórir Sig­urðs­son og var búinn að reka blóma­búð­ina allt frá því að ég var krakki. Faðir hans stofn­aði fyr­ir­tækið, en sjálfur var hann búinn að reka það í 56 ár. Já, þannig að þetta er svo­lítið erf­iður tími fyrir okkur hér í blóma­búð­inni, en við höldum áfram. Ég var búinn að þekkja Þóri lengi og hann var rosa­lega góður vinur. Í raun búinn að kenna mér allt. Það er auð­vitað erfitt að missa góðum vin. Í vinnu hugsa ég að eftir and­lát hans þurfi ég að standa mig. 

Það var þannig að fyrir átta árum var ég að leita að vinnu með skóla, en ég var í for­rit­un­ar­námi sem er svo­lítið annað en það sem ég er að gera núna. Svo ég ákvað að kíkja við og spyrja hvort það vant­aði mann­eskju. Hér vant­aði starfs­mann fyrir sum­arið og Þórir bað mig um að byrja eins fljótt og ég gæti. 

Fyrst var ég bara að vinna með skóla. Eftir nokkur ár ákvað ég að hætta í námi til að vera hér í fullu starfi. Mér líkar vel hér. Þetta dugir alveg. Ég er ánægður með launin, vinn­una, og svo er þetta gott and­lega.

Mun alltaf vinna með blómumDanil seg­ist viss um að hann muni alltaf starfa í kringum blóm hvort sem það verði á Blóma­torg­inu eða ekki.

Jú, þegar það er mikið að gera þá er álagið mikið en oft­ast er það hvorki of mikið né of lítið, bara þægi­legt. Það er mjög skemmti­legt að vinna með blóm allan dag­inn. Þú getur alltaf lært eitt­hvað nýtt og það er það besta við þetta. Fullt af nýjum blómum koma á markað sem þú lærir á, svo lærir þú nýjar inn­pökk­un­ar­leiðir og bara nefndu það. 

Gefandi að vinna með blóm

Þórir var búinn að vera rosa­lega veikur og liggja á spít­ala síð­ustu þrjá mán­uði. Und­an­farin ár hefur hann minnkað mikið við sig í vinnu þannig að ég hef fengið tíma til að aðlag­ast. Í lok síð­asta sum­ars veikt­ist hann illa og lést í lok des­em­ber. Hann bað mig um að gera mitt besta til að halda áfram í búð­inni og halda henni. Sér­stak­lega af því hann var búinn að verja síð­ustu árum í að kenna mér að reka hana, svo ég ætla að reyna allt hvað ég get til að standa við lof­orðið sem ég gaf honum. 

Ég held að ég verði að vinna við blóm alla ævi, en við sjáum hvert lífið leiðir mig. Það er enn mögu­leiki að fara aftur í skóla, en ég er sáttur. Þótt ég myndi hætta hér væri ég örugg­lega að vinna áfram með blóm. 

Skemmti­leg­ast er að fá að spjalla við fólk og aðstoða það. Margir leita til okkar eftir aðstoð. Sumir eru ekki einu sinni að versla, heldur að spyrja almennra spurn­inga um blóm. Eru kannski í vand­ræðum með blómin heima eða vita ekki hvernig á að sinna blómum sem þeir hafa fengið að gjöf. Fólk vantar oft hjálp við að hugsa um blómin. Er óvisst um hvort blómin eigi að fara í volgt eða kalt vatn. Allt getur þetta skipt máli. 

Hingað leitar fólk ekki mikið vegna við­burða, en alltaf eitt­hvað, enda erum við ekki í hefð­bundnum blóma­skreyt­ingum, höfum aldrei verið það og höfum lít­inn tíma til að sinna slíku. Öðru hvoru hef ég þó tekið að mér skreyt­ingar, til dæmis fyrir brúð­ar­vendi. Hvað varðar skreyt­ingar á kistu í jarð­ar­för gefst sjaldan tími til slíks hér. Þú þarft líka að hafa sér­að­stöðu fyrir slíkt, sem er ekki til staðar hér. Oftast er sér­stakur skreyt­ari sem vinnur við slíkt. 

Hins vegar var mikið af blómum í jarð­ar­för­inni frá vinum Þóris. Hann þekkti svo marga. Þar voru blóm frá fólki sem hefur skreytt fyrir hann, heildsal­inn sem hann versl­aði lengi við mætti með blóm, sem og garð­yrkju­menn­irnir sem sjá okkur fyrir blómum.

Hvítar krísur seljast best

Hvað rósir varðar var Þórir mjög hrif­inn af kamala-rósum. Þær eru geggj­aðar því þær opna sig alveg, eins og tebolli. Þórir var hins vegar sér­stak­lega hrif­inn af krísum, sem eru stórar og standa lengi. Krísur eru líka nokkuð örugg blóm, því mörgum finnst þær fal­legar, þannig að ef fólk er óvisst með hvernig blóm á að kaupa er alltaf óhætt að mæla með krísum. Sjálfum finnst mér krísur líka fínar. Þær voru upp­á­halds­blóm okkar beggja. Krísur koma í alls konar litum en hvítar krísur selj­ast best. 

Hvít blóm hafa sér­staka merk­ingu. Hvítur er litur jarð­ar­fara og friðar. Þegar fólk er að kaupa hvít blóm er það oft vegna and­láts eða jarð­ar­fara. Hvítar liljur eru mjög algengar. Þess vegna forð­ast margir hvíta lit­inn þegar það er að kaupa blóm heim, en það hefur samt verið að breyt­ast und­an­farin ár. Bæði eru fleiri sem eru til­búnir til að taka blóm­vendi í litum fyrir jarð­ar­farir, eins eru fleiri farnir að kaupa hvít blóm fyrir heim­ilið. 

Krísur og rósirDanil segir hvítar krísur og rauðar rósir örugg blóm því flestum finn­ist þau fal­leg.

Til­finn­ingin sem ég fæ er að fólk telji að hvít blóm geti verið slæmur fyr­ir­boði, en per­sónu­lega lít ég ekki svo á. Andlát þarf heldur ekki að vera slæmt, þótt það sé sárt fyrir þá sem eftir lifa. Kveðju­stundin snýst um góðar minn­ingar og hlýjar hugs­anir. Hvað Þóri varðar, sem teng­ist okkur hér svo sterkt, þá vil ég halda í góðu minn­ing­arnar. Það var auð­vitað sárt og erfitt að hann skyldi falla frá en ég vil halda í það góða sem hann skildi eftir sig. Ég held að það sé mik­il­vægt á svona stundum að horfa fram á veg­inn í stað þess að fest­ast í því sem var. Það er mik­il­vægt að fest­ast ekki í því sem hefur þegar gerst og gleyma því að hugsa um það sem gæti orðið. Þess vegna verðum við alltaf að horfa fram á veg­inn. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár