997. spurningaþraut: Hvaða vopn stilltu nasistar sig um að nota?

997. spurningaþraut: Hvaða vopn stilltu nasistar sig um að nota?

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er af leikkonu við Þjóð­leik­húsið. Hvað heitir hún?

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í fram­haldi af fyrstu auka­spurn­ingu, þá fer leik­konan á mynd­inni um þessar mundir með hlut­verk í leik­riti eftir þýskan höf­und sem frum­sýnt var í Þjóð­leik­hús­inu á dög­unum. Hvað heitir leik­ritið?

2.  Hver gaf út laust fyrir jólin bók um Lands­dóms­málið svo­kall­aða?

3.  Bókin sner­ist um að höf­undur taldi dóm Lands­dóms yfir ... hverjum ... vera rangan?

4.  Hvaða geysi­vin­sæli sam­fé­lags­mið­ill hóf göngu sína um nafn­inu A.me?

5.  Á hvaða dögum veitir for­seti Íslands jafnan fálka­orð­una?

6.  Hvaða Norð­ur­landa­þjóð á nú flesta virka stór­meist­ara í skák á stiga­lista FIDE?

7.  Hvaða íslenski jök­ull var í eina tíð stundum nefndur Klof­a­jök­ull?

8.  Hvar starfar Mitch McConnell — nákvæm­lega?

9.  Í síð­ari heims­styrj­öld fram­leiddu þýskir nas­istar mikið magn vopna af ákveð­inni gerð. Þau voru notuð í miklum mæli gegn óbreyttum borg­urum en hins vegar afar sjaldan á víg­vell­inum gegn herjum óvin­anna. Ástæðan fyrir því er talin sú að Hitler og félagar hafi ótt­ast að ef þeir not­uðu vopnin, þá myndu Banda­menn, sem áttu enn meiri birgðir af vopn­unum, svara í sömu mynt. Hvaða vopn voru þetta?

10.  Hún fædd­ist í London í júní 2000 og hóf feril sinn með því að troða upp á götum úti. Um mitt ár 2020 gaf hún út lagið Go en það vakti litla athygli til að byrja með. Eftir mikla sókn söng­kon­unnar á sam­fé­lags­miðlum á síð­asta ári varð Go hins vegar eitt vin­sælasta lag 2021 og söng­kon­unni ungu eru nú allir vegir færir. Hvað heitir hún?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þarna með mömmu sinni? Og fyrir lár­við­ar­stig: Hvað hét mamman?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ellen B.

2.  Hannes Hólm­steinn.

3.  Geir Haarde.

4.  Tiktok.

5.  Á nýárs­dag og 17. júní.

6.  Svíar.

7.  Vatna­jök­ull.

8.  Í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings.

9.  Eiturgas.

10.  Cat Burns. Hér má sjá og heyra hana syngja lagið Go (smellið þó þarna standi Video Una­vaila­ble): 

***

Svör auka­spurn­ingum:

Leik­konan heitir Ebba Katrín.

Karlinn með mömmu sinni er Hannes Hafstein. Hún hét aftur á móti Krist­jana Havstein. Krist­jana dugar.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár