Stríð er við­bjóður Upp­gröftur á fjölda­gröf í Izyum þar sem um 450 lík fund­ust grafin. Mynd: Óskar Hallgrímsson

Ár í Úkraínu

Ljós­mynd­ar­inn Óskar Hall­gríms­son býr ásamt eig­in­konu sinni í Úkraínu. Hann hefur und­an­farið ár þurft að dvelja lang­dvölum í vari undan sprengjuregni en milli þess farið um og skrá­sett inn­rás Rússa, sam­stöðu heima­manna og bar­áttu við inn­rás­ar­her­inn og afleið­ingar hrotta­legra stríðs­glæpa. Það var að morgni 24. febr­úar sem Rússar hófu og skap­aði mesta flótta­manna­straum frá seinni heim­styrj­öld­inni.

Þremur dögum eftir inn­rás­inaMariika, konan mín, inni á bað­her­berg­inu okkar, sem við breyttum í sprengju­skýli, að spila tölvu­leik til að dreifa hug­anum frá sprengju­dr­unum í nágrenn­inu.
Alelda hús í Bakhmut eftir stór­skota­liðsárásHarðir bar­dagar geisa enn um borg­ina og aðstæður þar líkj­ast einna helst leik­mynd kvik­myndar um fyrri heims­styrj­öld­ina.
Hrakin á flóttaÁ lest­ar­stöð­inni í Kyiv í byrjun stríðs­ins þar sem fólk flúði yfir til vest­ur­hluta Úkraínu, eða yfir landa­mærin í átt til Evrópu. Talið er að um 4 millj­ónir hafi flúið land og haldi nú til í Evrópu. Svip­ur­inn á Alexu litlu segir allt sem segja þarf.
Molotov discoLyuba stillir sér upp með heima­gerða mólótovkoteila í fram­leiðslu­stöð sem sett var upp í yfir­gefnum teknóklúbbi. Í byrjun stríðs­ins var almenn­ingur hvattur til að fram­leiða heima­gerðar sprengjur handa heima­varn­ar­lið­inu.
Stund milli stríðaBjörg­un­ar­maður tekur sér augna­bliks hvíld …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár