Engir smá prósar

Það er ekki annað hægt en mæla með lestri þessa stóra smáprósa­verks við sem flesta lesendur, en það er sennilega ekki ráðlegt að lesa þá í einni beit eins og maður neyðist til að gera þegar maður les sem gagn­rýnandi. Það er heldur ekki vit að lesa bara einn og einn í einu heldur er betra að lesa nokkra þannig að úr verði blanda af kímni og þyngslum, uppljómunum og angist, skrifar Jón Yngvi.

Bók

Þöglu myndirnar / Pensil­skrift

Smáprósar I og II
Höfundur Gyrðir Elíasson
Dimma
538 blaðsíður
Gefðu umsögn

Nýjasta verk Gyrðis Elíassonar er skemmtilega mótsagna­kennt, næstum óskammfeilið – og mjög í anda höfundarins. Pensil­skrift og Þöglu myndirnar er safn smáprósa, en safnið er heljar­stórt, samtals einir 277 prósar, ef ég hef talið rétt, á rúmlega 500 síðum. Þeim er skipt í tvær bækur en samt er óhjákvæmilegt að líta á þetta sem eitt verk og það verk er raunar ekki einhamt heldur virðist teygja sig í nokkrar áttir. Þannig eru smáprósar snemma í fyrra bindinu sem eru merktir með rómverskum tölu­stöfum eins og „Sikil­eyjarvörn II“ og „Kaþólsk viðhorf II“ en það er sama hvernig lesandinn leitar, hvergi finnur hann „Sikil­eyjarvörn I“ eða „Kaþólsk viðhorf I“. Jafnvel þótt gluggað sé í önnur prósasöfn Gyrðis er þá hvergi að finna – kannski eiga þeir eftir að koma í leitirnar í öðrum bókum sem tengjast þessum.

Það er eiginlega óhjákvæmilegt að lesa þetta verk í samhengi við fyrri verk skáldsins. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár