988. spurningaþraut: Hvaðan koma naggrísir? Já, hvaðan kom naggrísir?

Fyrri auka­spurning:

Hvað heitir land­svæðið á miðri myndinni hér að ofan? Svo er lárviðar­stig fyrir að nefna þrjú önnur landsvæði á myndinni.

***

Aðal­spurningar:

1.  Árið 1886 var Þjóð­verjinn Wilhelm Steinitz fyrsti viðurkenndi heims­meistarinn á ákveðnu sviði. Hvaða svið var það?

2.  Í hvaða landi er Ulf Kristersson forsætis­ráðherra?

3.  Á sextándu öld var tekið upp víðast í Evrópu svonefnt Gregórískt tímatal. Hver var sá Gregóríus sem tímatalið var kennt við?

4.  Milli hvaða tveggja fjarða á Íslandi liggur Öxnadals­heiði?

5.  Hvaða söngkona og rappari sendi frá sér lagið Super Bass árið 2011?

6.  En hvaða hljómsveit sendi frá sér lagið Where the Streets Have No Name árið 1987?

7.  Í hvaða landi heitir höfuð­borgin Rabat?

8.  Trúar­brögð sem spruttu fram um 1500 telja nú um 30 milljónir fylgjenda. Um er að ræða eingyðistrú og algengasta nafnið yfir guð er Wahuguru. Hvað kallast fylgis­menn þessara trúar­bragða?

9.  Náfræna appelsín­unnar er mandarínan. Hvar var mandarínan fyrst ræktuð?

10.  Naggrísir eru upprunnir í einum miklum fjall­garði, raunar einum þeim mesta í heimi. Hvaða heita fjöllin þau?

***

Seinni auka­spurning:

Á myndinni má sjá flugvélar­tegund sem er komin vel til ára sinna en þó mun vélin enn í brúki. Hvað heitir tegundin?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Skák.

2.  Svíþjóð.

3.  Hann var páfi.

4.  Skaga­fjarðar og Eyja­fjarðar.

5.  Nicki Minaj.

6.  U2.

7.  Marokkó.

8.  Sikhar.  

9.  Í Kína.

10.  Andesfjöll.

***

Svör við auka­spurningum:

Á miðri efri myndinni er Katar, ríki nokkurt í Persaflóa. Hlutar af þremur öðrum ríkjum sjást og á myndinni.

Á neðri myndinni er bandarísk njósnavél af gerðinni U2.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár