978. spurningaþraut: Þrjár höfuðborgir í Andhra Pradesh — og hvar?

978. spurningaþraut: Þrjár höfuðborgir í Andhra Pradesh — og hvar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hversu langt er í beinni loft­línu yfir Íslands frá Reykja­nesi og út á Langa­nestá? Eru það um 480 kíló­metrar — 680 kíló­metrar — 880 kíló­metrar — eða 1080 kíló­metrar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Yfir hvaða heiði er farið milli Borg­ar­fjarðar og Hrúta­fjarðar?

2.  Hvaða dag komu fyrstu bresku her­menn­irnir til Íslands til marks um að landið væri hernumið í síð­ari heims­styrj­öld?

3.  Af hvaða fugla­ætt er lund­inn?

4.  Hann var aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna 1971-1982 en þegar hann var í fram­boði til for­seta í heima­landi sínu 1986 kom í ljós að hann átti sér skugga­lega for­tíð sem her­maður og njósn­a­for­ingi í síð­ari heims­styrj­öld. Hvað hét hann?

5.  Þrátt fyrir þessar upp­ljóstr­anir náði hann kosn­ingu sem for­seti í landi sínu. Hvaða land var það?

6.  Hin banda­ríska Louise Glück verður átt­ræð á næsta ári. Hún hefur lengi feng­ist við ákveðna list­grein en lengst af hefur borið lítið á henni. Það breytt­ist árið 2020 þegar ákveðin við­ur­kenn­ing féll henni í skaut, en sú er afar eft­ir­sótt í lista­heim­inum. Hvaða við­ur­kenn­ingu fékk Louise Glück?

7.  Eitt sjálf­stætt ríki í Afríku hefur þrjár höf­uð­borgir — ein er höf­uð­borg fram­kvæmda­valds­ins, önnur höf­uð­borg lög­gjaf­ar­valds­ins og sú þriðja höf­uð­borg dóms­valds­ins. Hvaða ríki er þetta?

8.  Nefnið tvær af þessum þrem höf­uð­borgum. Ef þið hafið allar þrjár, þá fáiði Afr­íku­stig.

9.  Sami háttur — þrjár höf­uð­borgir — er líka hafður á í Andhra Pradesh, en þótt þar búi 50 millj­ónir manna, þá er það ekki sjálf­stætt ríki, heldur fylki í öðru ríki en enn fjöl­menn­ara. Partur af hvaða ríki er Andhra Pradesh.

10.  Hvers konar efni er polyester?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er hér að leika jóla­svein?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Holta­vörðu­heiði.

2.  10. maí 1940.

3.  Svart­fugla­ætt.

4.  Waldheim.

5.  Aust­ur­ríki.

6.  Nóbels­verð­laun í bók­menntum.

7.  Suður-Afríka.

8.  Pretoria, Cape Town (Höfða­borg) og Bloem­fontein.

9.  Indlandi.

10.  Gervi­efni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Vega­lengdin á fyrri mynd­inni er um 480 kíló­metrar.

Á neðri mynd­inni er Whoopi Goldberg.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Illugi ertu viss um þetta með 480 kílómetranna ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár