977. spurningaþraut: Hvað kemur frá Olza?

977. spurningaþraut: Hvað kemur frá Olza?

Fyrri auka­spurn­ing:

Ef mér reikn­ast rétt, þá mun jóla­sveinn­inn á mynd­inni hér að ofan halda aftur til fjalla í dag. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Einn er sá ávöxtur sem við erum flest viss um að flokk­ist sem græn­meti en hann er í raun­inni ber, sem geymir bæði fræ og vökva. Berið getur verið mis­stórt — frá því að rúm­ast í teskeið og upp í að vera á við tenn­is­bolta að stærð. Hvað kall­ast þetta gríð­ar­lega útbreidda rauða ber?

2.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Bakú?

3.  Bakú stendur við gríð­ar­mikið salt stöðu­vatn sem heitir ... hvað?

4.  Hvenær birt­ist Andrés Önd fyrst? Var það 1874 — 1904 — 1934 — eða 1964?.  

5.  Bærinn Cieszyn er í Póllandi, rétt við landa­mærin að Tékk­landi. Þar er verk­smiðja sem fyr­ir­tækið Olza S.A heldur úti og fram­leiðir vöru sem lengi hefur verið flutt í miklum mæli til Íslands. Hvaða vara er það?

6.  Carrie Underwood er rétt tæp­lega fer­tug amer­ísk tón­list­ar­kona og gríð­ar­lega vin­sæl í einum til­teknum afkima nútíma tón­listar. Hvers konar músík flytur Carrie Underwood?

7.  Á árunum 1877-1893 gegndu þeir Ruther­ford Hayes, James Garfield, Chester Arthur, Grover Cleveland og Benjamin Harrison til­teknu starfi hver á fætur öðrum. Hvaða starf var það?

8.  Hvað kall­ast avocado sam­kvæmt kór­réttri íslensku?

9.  „Hoc est corpus meum“ eru orð sem höfð eru yfir við alt­ar­is­göngu í kaþ­ólskri trú og þýða „Þetta er lík­ami minn.“ Þetta segir prest­ur­inn þegar hann afhendir fólki litlu brauð­flís­ina sem á að tákna lík­ama Krists. Talið er að töfra­menn á mið­öldum hafi haft yfir ákveðna afbökun á þessum orðum þegar þeir sýndu ein­hverja sniðuga brellu sem fól í sér svip­aða umbreyt­ingu og brauð—>lík­ami. Hvernig hljóm­aði afbökun töfra­meist­ar­anna? — ef kenn­ingin er rétt?

10.  En hvað nefn­ist ann­ars brauð­flísin sem notuð er við alt­ar­is­göngur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Karl þessi stýrði eitt sinn ríki einu. Hvað hét karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tómatur.

2.  Aserbædjan.

3.  Kaspíhaf.

4.  1934.

5.  Prins Póló.

6.  Country-tón­list.

7.  Þeir voru Banda­ríkja­for­setar.

8.  Lárpera.

9.  Hocus Pocus.

10.  Obláta.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Þvöru­s­leikir.

Á neðri mynd­inni er fas­ista­for­ingi Spánar, Franco.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár