976. spurningaþraut: Hér er í boði Stratford-stig. Hve margir munu fá það?

976. spurningaþraut: Hér er í boði Stratford-stig. Hve margir munu fá það?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir for­seti Alþingis?

2.  Í hvaða stór­borg er fót­bolta­völlur Camp Nou?

3.  Hvaða sagn­fræð­ingur hefur gefið út bæði skáld­sögur og ljóð en einnig ævi­sögur, svo sem um Natan Ket­ils­son, Matthías Jochumsson skáld, Skúla Magn­ús­son fógeta og Snorra á Húsa­felli prest?

4.  Hver leik­stýrði bíó­mynd­inni Close Encounters of the Third Kind?

5.  En hver leik­stýrði mynd­inni Sódóma Reykja­vík?

6.  Kama Sutra heitir ævaforn bók sem er eins konar kennslu­bók í góðu líf­erni. Mesta athygli hafa alltaf vakið nokkrir kaflar sem kenna aðferðir við ... hvað?

7.  Bókin var fyrst sett saman á fyrstu öldum eftir Krists burð, þótt hlutar hennar séu vafa­laust eldri. En á hvaða tungu­máli var Kama Sutra skrifuð?

8.  Hver and­að­ist í Reyk­holti 22. sept­em­ber 1241?

9.  Hvaða heims­fræga rokk­hljóm­sveit gaf út lagið Immigr­ant Song árið 1970 þar sem fjallað er um Íslands­ferð hljóm­sveit­ar­innar: „We come from the land of the ice and snow / from the midnight sun where the hot springs flow ...“ og svo fram­vegis.

10.  William Shakespe­are skrif­aði að minnsta kosti 38 leik­rit, sem heita marg­vís­legum nöfnum eins og gefur að skilja. Mörg þeirra heita eftir aðal­per­són­unum. Aðeins þrjú af leik­ritum hans nafn­greina konu í titl­inum og þá í öllum til­fellum ásamt karl­manni. Til að fá stig þurfið þið að nefna tvö af þessum leik­ritum. En þeir sem eru best að sér í verkum skálds­ins og geta nefnt öll þrjú, þeir munu héðan í frá geta státað af sér­stöku Strat­ford-stigi!

***

Auka­spurn­ing seinni:

Hvað heitir konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Birgir Ármans­son.

2.  Barcelona.

3.  Þórunn Valdi­mars­dóttir.

4.  Spi­el­berg.

5.  Óskar Jónasson.

6.  Kynlíf.

7.  Sanskrít.

8.  Snorri Sturlu­son.

9.  Led Zeppelin.

10.  Leik­ritin heita Rómeó og Júlía, Anthony og Kleópatra — og svo Trojlus og Cressída!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er bav­í­ani.

Á neðri mynd­inni er Marlene Dietrich.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár