968. spurningaþraut: Af hverju er Mosfellsbær ekki sjálfstætt ríki?


Fyrri auka­spurning:

Hér að ofan má sjá umdeildan heim­speking seint á ævinni þegar hann var nokkuð úr heimi hallur, en frægt yfir­skeggið þó enn upp á sitt besta. Hvað hét karlinn?

***

Aðal­spurningar:

1.  Nauru heitir eyríki eitt, lítið og fámennt. Í hvaða heimsálfu er Nauru?

2.  Íbúar eru tæplega 11 þúsund sem vekur spurninguna hvers vegna Mosfellsbær er ekki sjálfstætt ríki en þar eru íbúar álíka margir. En stjórnsýslu­lega hefur Nauru algjöra sérstöðu að einu leyti, því það er eina ríkið í heiminum sem ... ja, hvað dettur ykkur í hug?

3.  Hvað er skarkoli?

4.  Kvik­myndin Trainspotting frá 1996 fjallar um raunir ungs karlmanns við að losna úr viðjum eitur­lyfja. Í hvaða landi gerist hún — og hér þarf svarið að vera nákvæmt?

5.  Þessi lék aðal­hlutverkið.

Hvað heitir hann?

6.  Hversu oft sigraði Vigdís Finnboga­dóttir í forseta­kosningum?

7.  Hvaða íslenska hljómsveit gaf út hljóm­plötuna ... lifun?

8.  Meðal félaga í hljóm­sveitinni var Gunnar Jökull Hákonarson. Á hvaða hljóðfæri spilaði hann?

9.  Í hvaða trúar­brögðum er guðinn Krishna?

10.  Hvað heitir kvendýr sela­þjóðarinnar?

***

Seinni auka­spurning:

Úr hvaða bíómynd er skjáskotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Eyjaálfu.

2.  Nauru er eina ríkið í heiminum sem hefur enga formlega höfuðborg, þótt bæjar­félagið Yaren (íbúar 747) gegni því hlutverki óformlega þegar á þarf að halda. 

3.  Fisk­tegund.

4.  Skotlandi.

5.  McGregor.

6. Tvisvar (1980 og 1988). Tvívegis (1984 og 1992) var hún sjálf­kjörin.

7.  Trúbrot.

8.  Trommur.

9.  Hindúisma.

10.  Urta.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Nietzsche.

Á neðri myndinni er skjáskot úr Titanic.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár