967. spurningaþraut: Sturla var leiddur berfættur millum kirkna, og ... hvað?

967. spurningaþraut: Sturla var leiddur berfættur millum kirkna, og ... hvað?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er verið að vinna á mynd­inni hér að neðan — mynd sem ég hlýt að nefna að ég tók einmitt sjálfur!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða hávaða­sami jóla­sveinn kemur í dag?

2.  Bygging á nýju borg­ar­hverfi í Reykja­vík hófst 1966 og ef það væri nú sjálf­stætt bæj­ar­fé­lag væri það fjórði fjöl­menn­asti þétt­býl­is­staður lands­ins. Hvaða hverfi er þetta?

3.  Sókrates var Forn-Grikki og frægur ... hvað?

4.  En hver var (hér um bil) sam­tíma­maður hans Aristófa­nes? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

5.  Hver varð fyrsti ráð­herra Íslands?

6.  En hver varð fyrstur til að verða ráð­herra öðru sinni — eftir að hafa látið af emb­ætti um skeið?

7.  Hvaða orð er yfir­leitt notað yfir jap­anskar teikni­mynda­sögur?

8.  Hvar í Danmörku er haldin fræg rokk­há­tíð snemma sum­ars ár hvert?

9.  Sturla Sig­hvats­son hafði gert heil­mikið af sér í byrjun Stul­unga­aldar (13. aldar) og í yfir­bót­ar­skyni var hann leiddur ber­fættur á millum allra kirkna í bæ einum eða borg og hýddur úti fyrir þeim helstu. Í hvaða bæ eða borg gerð­ist þetta?

10.  En hvernig brugð­ust bæjar- eða borg­ar­búar við þegar þeir sáu Sturlu hýddan og hvers vegna?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Nú er nýbúið að sýna fimmtu sjón­varps­s­er­í­una sem konan á mynd­inni hér að ofan leikur aðal­hlut­verk í. Hvað heitir ser­ían? — Ef þið vitið hvað leik­konan heitir fullu nafni (skírnar- og eft­ir­nafn), þá fáiði auka­stig!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hurða­skellir.

2.  Breið­holt.

3.  Heim­spek­ingur.

4.  Gam­an­leikja­höf­undur. Leik­rita­höf­undur dugar ekki, og auð­vitað alls ekki harm­leikja­skáld.

5.  Hannes Hafstein.

6.  Hannes Hafstein. Ef ein­hver nörd vill nefna Klemens Jónsson þá gegndi hann ráð­herra­störfum nokkrum sinnum í for­föllum ráð­herra 1907-1914 en aðeins sem umboðs­maður ráð­herra, svo hann telst ekki með.

7.  Manga. (Svarið gæti verið flókn­ara, en manga dugar alveg.)

8.  Í Roskilde, Hró­arskeldu.

9.  Þetta var vita­skuld í sjálfri Róm.

10.  Í Sturl­ungu segir: „Bar hann [hýð­ing­arnar] drengiliga, sem líkligt var, en flest fólk stóð úti og undrað­ist, barði á brjóstið og harm­aði er svo fríður maður var svo hörmuliga leik­inn og máttu eigi vatni halda, bæði konur og karlar.“ Þið metið sjálf hvort svarið er nógu nákvæmt en nauð­syn­legt er að nefna að Róm­verjar hafi harmað hlut­skipti Sturlu af því hann var svo fríður, eða mynd­ar­legur eða eitt­hvað þvíum­líkt.  

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er verið að vinna silki — í Ferg­ana­dalnum í Úsbekistan, en ekki er nauð­syn­legt að vita það.

Á neðri mynd­inni er aðal­leik­konan í The Handmaid's Tale. Hún heitir Elisa­beth Moss.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár